Mistök í lagasetningu 8. desember 2004 00:01
Baldur Guðlaugsson, ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins, segir að ekki sé enn vitað hvað dómur Hæstaréttar um erfðafjárskatt frá því á föstudag hafi áhrif á marga. Þá komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að sex erfingjar þyrftu ekki að greiða erfðafjárskatt vegna þess að engin heimild hefði verið fyrir skattlagningu. Með samþykkt á nýjum lögum þann 1. apríl um erfðafjárskatt voru eldri lög felld úr gildi. Með breytingunni var því ekki heimild fyrir skattálagningu á bú þeirra sem létust fyrir þann tíma og ekki hafði verið gefið út leyfi fyrir setu í óskiptu búi. Einnig skiptir máli hvenær erfðafjárskýrsla var lögð fram, því ný lög sem kváðu skýrar á um gildistökuna voru samþykkt þann 20. apríl. Ragnar Hall, sem sótti málið fyrir hönd erfingjanna, segir þetta hafa verið mistök í lagasetningu, því varla geti það hafa verið ætlunin að fella niður skatt. Baldur tekur undir það og segir að þetta sé ekki nokkuð sem menn geri vísvitandi. "Það er óheppilegt að þetta gerist. Það er eins og gengur, stundum kemur í ljós að það hafa átt sér stað mistök í lagasetningu."
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent Spjótin beinast að syni Reiners Erlent Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Árásarfeðgarnir nafngreindir Erlent Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Innlent Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Erlent Fleiri fréttir Faðir sem missti þrjú börn í Súðavík tjáir sig um uppgjör rannsóknarnefndar Bíll bilaði og Hvalfjarðargöngum lokað um stund Kanna áhuga á mögulegu framboði Guðlaugs í borginni Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Í takt við það sem verið hefur Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Bein útsending: Kynna skýrslu um snjóflóðið í Súðavík Þurftu að lenda í Liverpool á leið til Manchester Súðavíkurskýrslan afhent forseta Alþingis Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Heyrði skothvellina á Bondi strönd Vinstri beygjan bönnuð Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Magnea sækist eftir 2.-4. sæti á lista Samfylkingar Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Handtekinn með stóran hníf Leggja til að bókasafnsgreiðslur verði hækkaðar Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Ekkert því til fyrirstöðu að Ísland taki þátt í drónakaupum Ekkert ákveðið varðandi framboð: „Ég er í tveimur flokkum“ Hálka þegar bíll valt í Biskupstungum Sjá meira