Bara heræfing? 11. október 2004 00:01
Rússnesku herskipin sem hafa haldið sig við norðausturstrendur Íslands síðustu dagana eru aðeins á hefðbundinni heræfingu. Þetta segir Sergej S. Gúsjín, talsmaður rússneska sendiráðsins, sem fullyrðir einnig að engir kafbátar hafi tekið þátt í æfingunni og ekkert slys hafi orðið. Ferðir rússneska norðurflotans, sjö rússneskra herskipi norðaustur af Íslandi, hafa vakið mikla athygli enda flestir sammála um að þetta sé afar óvenjuleg aðgerð hjá Rússunum. Talsmaður rússneska sendiráðsins á Íslandi segir að ekkert óvenjulegt sé á seyði; þetta sé aðeins annar áfanginn í mikilli mánaðarlangri heræfingu rússneska norðurflotans sem hófst með sameiginlegri heræfingu Rússa og Bandaríkjamanna 23. september. Sergej Gúsjín segir ferðina til Íslands síðasta áfanga í leiðangri flotans á æfingarferð, þar sem bæði flugtök og lendingar voru æfð. Hann segist ekki hafa upplýsingar um ástæðu þess að þessi staður hafi orðið fyrir valinu. Íslensk yfirvöld hafa í raun ekkert um þessa æfingu að segja enda er hún á alþjóðlegu hafsvæði og Rússum ber engin skylda til að tilkynna um ferðir sínar. Grannt er þó fylgst með ferðum Rússanna. Illugi Gunnarsson, aðstoðarmaður utanríkisráðherra segir ekkert við þetta að athuga, en velk sé fylgst með og gætur sé hafðar á að ekkert óeðlilegt fari fram. Margir telja mögulegt að slys hafi orðið á staðnum, enda ekki langt síðan Rússar leyndu því þegar kafbáturinn Kusk fórst undan Noregsströndum. Sergey segist engar heimildir hafa fyrir því að svo sé og það sé aðeins í viðvörunarskyni að Rússar hafi sent Íslendingum beiðni um að koma ekki nálægt skipunum. Hann segir að stjórnvöld í Moskvu myndu láta sendiráð Rússlands á Íslandi vita ef að slys hefði orðið. Þó gæti liðið nokkur tími uns það yrði.
Fréttir Innlent Mest lesið Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi Sjá meira