Innlent

14 mánuðir fyrir kókaínsmygl

Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag Litháa á þrítugsaldri í fjórtán mánaða fangelsi fyrir fíkniefnasmygl. Maðurinn var tekinn í Leifsstöð í ágúst með tæplega 300 grömm af kókaíni innvortis í um sjötíu pakkningum. Þess má geta að maðurinn er frá sama bæ og Vaidas Jucevicius sem fannst látinn í Norðfjarðarhöfn 11. febrúar síðastliðinn. Jucevicius lést af völdum meltingartruflana vegna fíkniefnapakkninga sem hann var með innvortis, eða nokkru minna en sá sem dæmdur var í dag var með.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×