Innlent

Viðtal við Forest Whitaker

Nýjasta kvikmynd Baltasars Kormáks, A Little Trip to Heaven, skartar hinum heimsfræga leikara, Forest Whitaker. Hann segist hafa hrifist af handriti Baltasars og fyrri verkum hans og því ákveðið að slá til og leika í myndinni. Whitaker vonast eftir breyttum tímum í Bandaríkjunum eftir forsetakosningarnar í nóvember.  Forest Whitaker er 43ja ára gamall. Hann hefur leikið í tugum kvikmynda á rúmum tuttugu ára ferli. Whitaker segir að hann hafi fengið handritið að mynd Baltasars fyrir tveimur árum og hrifist af. Hann viðurkennir að þrátt fyrir áratuga vináttu sína við Sigurjón Sighvatsson, framleiðanda myndarinnar, þá hafi hann ekki vitað mikið um Ísland áður en hann kom hingað. „Það eina sem ég vissi var að það væri fallegt hérna og að hér væri góð tónlist. Einnig að Grænland væri kalt og Ísland grænt, þetta sem allir segja,“ segir leikarinn.  Whitaker hefur leikið í stórmyndum á borð við Platoon, The Crying Game, Panic Room og Phone Booth en hann tekur einnig oft að sér hlutverk í litlum kvikmyndum. Hann segist fyrst og fremst treysta á tilfinningu sína við hlutverkaval. „Ég er alltaf að reyna að vaxa og reyni því að finna eitthvað sem hjálpar mér við það. Oft er það líka leikstjórinn og ástríða hans. Baltasar hefur ástríðu og ákveðna sýn. Ég hafði séð myndirnar hans og vissi að hann hefði einstaka rödd og það veldur því að mig langar til að vinna með honum,“ segir Whitaker. Whitaker fylgist með stjórnmálum í heimalandi sínu. Hann segir stríðsrekstur Bandaríkjamanna áhyggjuefni og hann vonast eftir nýjum tímum heima fyrir. „Vonandi fáum við forseta sem einbeitir sér að vandamálunum heima fyrir og finnst ekki að hann geti kúgað mismunandi heimshluta.“ Hægt er að horfa á ítarlegra viðtal við Forest Whitaker úr Íslandi í dag með því að smella á hlekkinn hér að neðan.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×