Rannsókn á frumstigi 23. september 2004 00:01
Rannsókn á einu umfangsmesta fíkniefnamáli síðustu ára sem staðið hefur yfir síðan í mars er á frumstigi og heldur áfram næstu vikur að sögn Ásgeirs Karlssonar, yfirmanns fíkniefnadeildar lögreglunnar í Reykjavík. Hann segir að enn sé ekki allt komið fram í málinu. Upphaf málsins var þegar tæplega þrjú kíló af amfetamíni og nokkuð af kókaíni fannst í vörusendingu í Dettifossi, skipi Eimskipafélagsins. Lögreglan og tollgæslan í Reykjavík hófu rannsókn í framhaldinu sem leiddi til að mikið magn af amfetamíni fannst í vörusendingu í Dettifossi. Heimildir blaðsins herma að það hafi verið um átta kíló en lögreglan viljað staðfesta það. Þriðja sendingin voru 2.000 skammtar af LSD sem komu með pósti í síðustu viku. Ein kona og þrír menn voru handtekin á föstudaginn fyrir viku og hafa öll verið úrskurðuð í gæsluvarðhald. Fíkniefnadeildin hefur verið í samstarfi við lögregluna í Hollandi en fíkniefnasendingarnar koma allar þaðan. Einn íslenskur lögreglumaður fór til Hollands og var viðstaddur þegar tveir Íslendingar voru handteknir þar í landi. Annar var handtekinn sama dag og fjórmenningarnir en hinn síðasta mánudag þegar húsleit var gerð þar sem þeir dvöldu í Hollandi. Þar fundust kannabisplöntur og rúmt kíló af kókaíni. Tvær af þremur fíkniefnasendingunum komu með Dettifossi. Í yfirlýsingu frá Eimskipafélag Íslands segir að forráðamenn og starfsfólk harmi að skip félagsins hafi verið misnotað til að flytja ólögleg og lífshættuleg fíkniefni til landsins. Félagið leggur áherslu á forvarnir og öflugt eftirlit til að koma í fyrir smygl á fíkniefnum og vinnur í nánu sambandi við lögreglu og tollayfirvöld í öllum höfnum sem skipin hafa viðkomu í.
Fréttir Innlent Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira