Ráðherra sammála Hafró 17. júní 2004 00:01
Árni M. Mathiesen, sjávarútvegsráðherra, tekur að mestu undir allar tillögur Hafrannsóknarstofnunar varðandi leyfilegan heildarafla á næsta fiskveiðiári en ráðherra skrifaði undir reglugerð þar að lútandi í gær. Þannig verður heildarafli í þorski 205 þúsund tonn eins og Hafró lagði til þrátt fyrir gagnrýni margra aðila innan sjávarútvegsins. Kvóti í ýsu verður 90 þúsund tonn, ufsa 70 þúsund og aflamark í grálúðu verður 15 þúsund tonn en það er einnig í samræmi við tillögur. Margir útgerðar- og sjómenn sem Fréttablaðið hefur rætt við segja dæmalaust að ætla að draga út veiðum á fiski sem eins og sakir standa hefur ekki nóg fæði í sjónum. Loðnan hefur enn ekki fundist þrátt fyrir mikla leit og vill Hafró ekki ákveða neitt með veiðar á henni fyrr en línur skýrast hvað veldur því að hún finnst ekki lengur á Íslandsslóð.Sjávarútvegsráðherra hefur sagt að ekkert breytist varðandi veiðar á þorskinum þótt loðnan finnist í magni þegar fram líður. Loðnuveiðin á yfirstandandi fiskveiðiári er langt undir útgefnum kvóta sem var 875 þúsund tonn. Eina breytingarnar frá tillögum Hafrannsóknarstofnunar sem ráðherra gerir er að leyfilegur heildarafli á skarkola verður þúsund tonnum meiri og heildarafli rækju á djúpslóð verður 20 þúsund tonn en það breytist hugsanlega í haust enda liggja endanlegar tillögur Hafró um framhald rækjuveiða ekki fyrir fyrr en þá. Ráðherra hefur ennfremur undirritað reglugerð um hækkun á leyfilegum heildarafla í kolmunna á þessu ári en hann hækkar um 220 þúsund tonn. Sú ákvörðun byggir á mati á því hversu skip Evrópusambandsríkja geta veitt til viðbótar af kvótaaukningu sem ESB ákvað en ekki hefur tekist að semja um takmarkanir á kolmunnaveiðum og ákveða veiðiþjóðir slíkt einhliða. albert@frettabladid.is
Fréttir Innlent Mest lesið Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? Innlent Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Innlent „Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Innlent Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Innlent Gat ekki hringt í 112 þegar alblóðugur maður bankaði upp á Innlent Íslendingur og útlendingur í gæsluvarðhaldi vegna mannsláts í Kópavogi Innlent Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Ákærður fyrir að nauðga stúlku í heitum potti fyrir rúmum áratug Innlent Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni Innlent Leita ferðamannanna sem skildu fimm ára son sinn eftir í bíl Innlent Fleiri fréttir Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu ,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Fyrir fólk sem búi á almyrkvaslóðinni sé nóg að „vera úti í garði og upplifa allt“ Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni „Við sem samfélag þurfum að standa keik á móti þessu“ Aðallega „karlar að drepa aðra karla“ „Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Í gæsluvarðhaldi en segist einungis hafa verið bílstjóri Billy Long kominn á klakann Helga Lára Haarde aðstoðar Hildi Fólksfjöldi á Hellissandi tífaldast Leita ferðamannanna sem skildu fimm ára son sinn eftir í bíl Pysjutímabilið formlega hafið Bílstjóri ákærður fyrir að nauðga fatlaðri konu Bein útsending: Umdeildur fundur Baudenbacher Neitaði að borga og sló vagnstjórann Gat ekki hringt í 112 þegar alblóðugur maður bankaði upp á Huga þurfi líka að heimferðinni Íslendingur og útlendingur í gæsluvarðhaldi vegna mannsláts í Kópavogi Ákærður fyrir að nauðga stúlku í heitum potti fyrir rúmum áratug Bónus lokað vegna eldsvoða um helgina Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Báturinn fannst eftir nokkuð umfangsmikla leit Þurfa dýr að vera með sólmyrkvagleraugu þann 12. ágúst? Þrír handteknir á Þingvöllum Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? TF-SIF grennslast fyrir um skemmtibát á Sundunum Aukinn viðbúnaður vegna almyrkva á Reykjanesi Manndráp í Kópavogi og styttist óðfluga í sólmyrkvann Björgun við Háafoss krefjandi vegna böruburðar Sjá meira