Hallgrímur Helga borgarlistamaður 17. júní 2004 00:01
Hallgrímur Helgason, myndlistarmaður og rithöfundur var í dag valinn borgarlistamaður af menningarmálanefnd Reykjavíkur. Útnefning borgarlistamanns er heiðursviðurkenning til handa reykvískum listamanni sem með listsköpun sinni hefur skarað fram úr og markað sérstök spor í íslensku listalífi. Hallgrímur nam við Myndlista- og Handíðaskólann veturinn 1979-80 og Listaakademíuna í München 1981-82. Frá árinu 1982 hefur hann starfað sjálfstætt sem myndlistarmaður og rithöfundur. Hallgrímur hefur haldið yfir 20 einkasýningar hér heima, í Boston, New York, París og Malmö og verk hans hafa verið sýnd á yfir 30 samsýningum í ýmsum löndum. Fyrsta skáldsaga hans kom út árið 1990 og hann hefur síðan gefið út tvær aðrar skáldsögur og eitt kvæðasafn. Þekktasta bók Hallgríms er "101 Reykjavík" (1996) en kvikmynd byggð á bókinni var frumsýnd á Íslandi 1. júní 2000 og hefur síðan verið sýnd á mörgum kvikmyndahátíðum erlendis. Hallgrímur hefur einnig skrifað nokkur verk fyrir leikhús og kom fram sem grínstæðingur í Kaffileikhúsinu haustið 1995. Sama ár hóf hann að vinna með teiknimyndapersónuna Grim sem er einskonar hliðarsjálf listamannsins. Aðrir sem hlotið hafa viðurkenninguna borgarlistamaður eru eftirtaldir:1995 Guðmunda Andrésdóttir, 1996 Jón Ásgeirsson, 1997 Hörður Ágústsson, 1998 Thor Vilhjálmsson, 1999 Jórunn Viðar, 2000 Björk, 2001 Kristján Davíðsson, 2002 Hörður Áskelsson, 2003 Ingibjörg Haraldsdóttir. Menningarmálanefnd Reykjavíkur skipa: Stefán Jón Hafstein formaður (R), Ármann Jakobsson (R), Ásrún Kristjánsdóttir (R), Gísli Marteinn Baldursson (D) og Rúnar Freyr Gíslason(D).
Fréttir Innlent Mest lesið Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? Innlent Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Innlent „Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Innlent Óttast að stefni í kreppuverðbólgu Innlent Gat ekki hringt í 112 þegar alblóðugur maður bankaði upp á Innlent Íslendingur og útlendingur í gæsluvarðhaldi vegna mannsláts í Kópavogi Innlent Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Ákærður fyrir að nauðga stúlku í heitum potti fyrir rúmum áratug Innlent Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni Innlent Leita ferðamannanna sem skildu fimm ára son sinn eftir í bíl Innlent Fleiri fréttir Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu ,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Fyrir fólk sem búi á almyrkvaslóðinni sé nóg að „vera úti í garði og upplifa allt“ Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni „Við sem samfélag þurfum að standa keik á móti þessu“ Aðallega „karlar að drepa aðra karla“ „Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Í gæsluvarðhaldi en segist einungis hafa verið bílstjóri Billy Long kominn á klakann Helga Lára Haarde aðstoðar Hildi Fólksfjöldi á Hellissandi tífaldast Leita ferðamannanna sem skildu fimm ára son sinn eftir í bíl Pysjutímabilið formlega hafið Bílstjóri ákærður fyrir að nauðga fatlaðri konu Bein útsending: Umdeildur fundur Baudenbacher Neitaði að borga og sló vagnstjórann Gat ekki hringt í 112 þegar alblóðugur maður bankaði upp á Huga þurfi líka að heimferðinni Íslendingur og útlendingur í gæsluvarðhaldi vegna mannsláts í Kópavogi Ákærður fyrir að nauðga stúlku í heitum potti fyrir rúmum áratug Bónus lokað vegna eldsvoða um helgina Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Báturinn fannst eftir nokkuð umfangsmikla leit Þurfa dýr að vera með sólmyrkvagleraugu þann 12. ágúst? Þrír handteknir á Þingvöllum Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? TF-SIF grennslast fyrir um skemmtibát á Sundunum Aukinn viðbúnaður vegna almyrkva á Reykjanesi Manndráp í Kópavogi og styttist óðfluga í sólmyrkvann Björgun við Háafoss krefjandi vegna böruburðar Sjá meira