Olíubirgðastöð í Neskaupstað 20. júní 2004 00:01
Nýtt olíudreifingarfyrirtæki ætlar að reisa olíubirgðastöð í Neskaupstað og hefja starfsemi á árinu. Þjónustan mun einskorðast við skip og býst framkvæmdastjórinn við að fyrirtækinu takist að bjóða lægra verð en þau félög sem fyrir eru á markaðnum. Fyrirtækið heitir Íslensk olíumiðlun ehf. og er til helminga í eigu danska fyrirtækisins Malik Supply sem hefur einkum sérhæft sig í sölu á olíu til skipa úti á rúmsjó, og Ólafs Þorsteins Kjartanssonar. Ólafur sagði í samtali við Stöð 2 að stefnt væri að því að hefja starfsemi seint á þessu ári. Fyrirtækið hefur fengið lóð í Neskaupstað og verður þar byggður 4000 tonna olíutankur. Ólafur segir höfnina í Neskaupstað mjög góða og til standi að gera hana enn betri og þar sé mikil skipaumferð þannig að sú staðsetning henti fyrirtækinu best. Þá hafi bæjaryfirvöld eystra sýnt mikinn samstarfsvilja. Íslensk olíumiðlun fær sína olíu frá Malik Supply sem nýtur mjög góðra kjara vegna mikilla viðskipta og því er hann bjartsýnn á að Íslenskri olíumiðlun takist að bjóða útgerðum lægra verð en félögin, sem eru fyrir á markaðnum, bjóða. Einnig muni heimsmarkaðsverð á olíu endurspeglast í verðlagningu fyrirtækisins, þ.e.a.s. allar hækkanir og lækkanir munu koma strax til framkvæmda. Þá segir hann menn ekki síður vera að horfa til erlendra skipa sem hingað koma til að landa.
Fréttir Innlent Mest lesið Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Innlent „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Innlent „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Innlent Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Fleiri fréttir Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Sjá meira