Innlent

Kona fannst látin í Fossvogi

Kona fannst látin í flæðarmálinu rétt fyrir neðan Fossvogskirkjugarð í gær. Ekki reyndist unnt að bera kennsl á hana þar sem hún var skilríkjalaus og enginn hafði tilkynnt hvarf hennar til lögreglu. Það var vegfarandi sem gekk fram á lík konunnar sem lá á grúfu í flæðarmálinu um miðjan dag í gær. Hann gerði lögreglu strax viðvart. Lögreglan sendi út lýsingu á konunni í fréttum í dag og um miðjan dag tókst að bera kennsl á konuna. Dánarorsök er ókunn en enginn grunur er um að konan hafi látist af mannavöldum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×