Áróðursmyndir Hitlers um Ísland 12. september 2004 00:01
Sjötíu ára gamlar áróðursmyndir um Ísland, sem fundust í ríkissafni Hitlersstjórnarinnar, er meðal þess sem Kvikmyndasafn Íslands sýnir í Bæjarbíói um þessar mundir. Áróðursmyndirnar voru gerðar með það fyrir augum að útlista kosti landvinninga á fjarlægum slóðum. Myndirnar eru fjórar, um tíu mínútur að lengd, og hafa aldrei áður verið sýndar á tjaldi og í fullri lengd hér á landi. Erlendur Sveinsson kvikmyndagerðarmaður hafði uppi á þeim árið 1978 hjá austur-þýska kvikmyndasafninu sem geymdi ríkissafn Hitlersstjórarinnar. Þar var honum sagt að tilgangur með gerð myndanna hefði verið að nýta þær í áróðursskyni, eða vekja áhuga þýsku þjóðarinnar á fjarlægum löndum. Tópis-Klang Film gaf myndirnar út og kallaði þær „menningarmyndir“ en sá sem var yfir því kvikmyndafyrirtæki á þeim tíma var enginn annar en Göbbels, áróðursmálaráðherra Þýskalands. Myndirnar voru hins vegar gerðar undir stjórn Austur-Þjóðverjans Pauls Burkert sem notaði alls kyns starfsheiti eins og doktor í ljósmyndum og vísindamaður í málefnum Norðurslóða. Hann fékk ýmis fyrirtæki til að kosta vísindaleiðangra til Íslands og kom hingað 1934 og 1935 með það í huga að rannsaka land og þjóð og kvikmynda. Það gerði hann og gaf að auki út tvær bækur um Ísland. Atvinnuvegirnir, jarðvarmi og vatnsföll voru meðal efnistaka Burkerts. Erlendur segir það alveg sérstaka tilfinningu að sjá þessar myndir, sem teknar eru á 35mm filmu, uppi á kvikmyndatjaldinu. Hann á því von á að myndirnar verði sýndar áfram á vegum Kvikmyndasafnsins í alls konar samhengi. Þar er meðal annars að finna einstakar myndar, teknar um borð í gamla Gullfossi og myndskeið af Landspítalanaum sem eru líklega með fyrstu myndum sem þar voru teknar.
Fréttir Innlent Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent Orbán hættir á þingi Erlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Innlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira