Enn ríkir óvissa 3. júlí 2004 00:01
Formenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks reyna að ná samkomulagi um þátttökuskilyrði í þjóðaratkvæðagreiðslu. Ríkisstjórnarfundur í dag. Þingmenn Framsóknar harðir á sínu. Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra og Davíð Oddsson forsætisráðherra funduðu í gær til þess að freista þess að ná samkomulagi um lagafrumvarp um þjóðaratkvæðagreiðslur, sem leggja á fyrir Alþingi á morgun. Stefnt hafði verið að því að leggja frumvarpið fram á ríkisstjórnarfundi í gær en ekkert varð úr því þar sem stjórnarflokkarnir höfðu ekki enn náð saman um lágmarks þátttökuskilyrði. Framsóknarmenn vilja að lágmarkið miðist við að 30 prósent kosningabærra kjósenda þurfi til að fella lög úr gildi en sjálfstæðismenn hafa lýst því yfir að þeir vilji að lágmarkið verði 44 prósent. Þeir stjórnarþingmenn sem Fréttablaðið ræddi við telja líklegt að Davíð og Halldór nái samkomulagi um málið fyrir ríkisstjórnarfundinn í dag. Halldór hefur umboð frá sínum þingflokki um að semja um allt að 30 prósenta mörkin. Þeir þingmenn Framsóknarflokksins sem blaðið ræddi við segja að verði niðurstaða formannanna sú að meira en 30 prósent þurfi til að fella lög úr gildi telji þeir sig óbundna til að fallast á það. Þá ríkir óvissa um afgreiðslu málsins á þingi. Reiknað er með því að frumvarpið, verði það tilbúið, verði kynnt þingflokkum beggja stjórnarflokkanna annað hvort eftir ríkisstjórnarfundinn í kvöld eða snemma í fyrramálið.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Innlent Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Innlent Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Innlent Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Erlent Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Innlent Fleiri fréttir Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Sjá meira