Enginn fundur enn 3. júlí 2004 00:01
Ríkisstjórnin hefur enn ekki verið kölluð saman til aukafundar til að útkljá deilu ríkisstjórnarflokkanna um frumvarp til laga um þjóðaratkvæðagreiðslur. Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði fréttamönnum eftir ríkisstjórnarfund í gær að fundur yrði líklega boðaður aftur í dag, frekar en á morgun. Margir ráðherrar ríkisstjórnarinnar eru hins vegar fjarverandi. Ekki færri en þrír ráðherrar eru á hestamannamótinu á Gaddstaðaflötum en þeir eru þó viðbúnir því að vera kallaðir til fundar á hverri stundu. Upp úr sauð á milli ríkisstjórnarflokkanna í gær þegar framsóknarráðherrar yfirgáfu fund ríkisstjórnar eftir tæpar 15 mínútur en ráðherrar sjálfstæðisflokksins sátu sem fastast í klukkustund til viðbótar. Helsti ágreiningur flokkanna snýr að lágmarksþátttöku í þjóðaratkvæðagreiðslunni um fjölmiðlalögin. Nokkrir forystumenn sjálfstæðismanna vilja að minnst 44 prósent atkvæðisbærra manna þurfi til að fella fjölmiðlalögin úr gildi í atkvæðagreiðslu en framsóknarmenn vilja ekki að mörkin verði sett hærra en 30 prósent. Nokkuð hefur borið á í umfjöllun um málið að þessum hugtökum sé ruglað saman við lágmarkskjörsókn. Þar er hins vegar alls ekki um sama hlutinn að ræða. Formenn stjórnarflokkanna freista þess að ná samkomulagi um frumvarpið og fá það samþykkt í ríkisstjórn í dag en það verður lagt fyrir Alþingi á mánudag.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið „Hann var sagður heimskur, ljótur og að enginn annar gæti elskað hann“ Innlent „Skapaði mikla ringulreið hjá okkur og við erum hrædd“ Innlent John Alford fannst látinn í fangelsinu Erlent Hellisheiði er lokuð Innlent Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Erlent Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Erlent Stærðar alda skolaði grjóti yfir bílaplanið við Reynisfjöru Innlent Lokuðu aftur Rammagerðinni þrátt fyrir úrskurð um greiðsluskjól Innlent „Við erum ekki hrædd“ Innlent Snjóflóð þveraði veginn þegar opið var fyrir umferð Innlent Fleiri fréttir Galdrakarlinn í AUS Rammagerðin fari með fleipur í fjölmiðlum og beri sjálf ábyrgð á stöðunni Stærðar alda skolaði grjóti yfir bílaplanið við Reynisfjöru Stakar styrkveitingar taldar með í upptökutölfræðinni Hellisheiði er lokuð „Skapaði mikla ringulreið hjá okkur og við erum hrædd“ „Við erum ekki hrædd“ Vilja rauðvín á föstudögum á Selfossi Ferðalangar í vandræðum víða um land vegna færðar Uppnám á flugvellinum og fyrsti kvenkyns keppandinn Handtekinn á sjöunda tímanum í gær grunaður um ölvunarakstur Stríð, þjóðaratkvæðagreiðsla og stafræn heilbrigðisþjónusta „Hann var sagður heimskur, ljótur og að enginn annar gæti elskað hann“ Snjóflóð þveraði veginn þegar opið var fyrir umferð Nemendur MR afhentu rektor undirskriftalista Reyndu að vísa manninum í burtu en það gekk ekki Vildu helst Asíubúa í flug til Grænlands Lokuðu aftur Rammagerðinni þrátt fyrir úrskurð um greiðsluskjól Tollmiðlari í stafni S-listans í Hveragerði Kosningar hafnar um sameiningu hreppanna Hefur ekki minnstu áhyggjur af bænum sem þurfti að rýma „Nú getum við sagt það fullum hálsi“ Flutningstakmarkanir kosti samfélagið milljarða árlega Pítsan sem kostaði 7.740 krónur „Þetta er ekkert grín“ Eyþór leiðir en vill ekki stólinn Hætta við flutninga á Skólavörðuholtið „Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Reykt þorskhrogn og handgerð páskaegg í Hörpu Gestir geti spókað sig í þjóðbúningi á samstöðufundi Sjá meira