Búist við átakafundi hjá Framsókn 6. nóvember 2004 00:01
Búist er við átakafundi á fyrsta degi kjördæmisþings Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi, sem haldið er í Borgarnesi, þar sem fjöldi félaga hefur lýst andstöðu við þá meðferð sem Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður fékk hjá þingflokknum þegar honum var vikið úr öllum nefndum. Þetta er fyrsta tækifærið sem trúnaðarmenn flokksins í kjördæminu hafa fengið til að ræða málið á vettvangi flokksins. Atvinnumál eru hins vegar opinbert meginþema kjördæmisþingsins og kynning á viðamikilli skýrslu nefndar Framsóknarflokksins um atvinnu- og byggðamál í Norðvesturkjördæmi. Ívar Jónsson prófessor er formaður nefndarinnar. Hann segir að ásamt greiningu á stöðu atvinnu- og byggðarmála í kjördæminu grundvallist hún á nýrri hugmyndafræði, þ.e. að þróa þekkingarhagkerfi í kjördæminu og efla hefðbundna atvinnuvegi. Ívar segir aðspurður þetta ekki vera enn eina álversskýrsluna þó ein tillaga fjalli um að næsta stóriðja verði staðsett í kjördæminu. Aðaláherslan er á að verkaskipting sé á milli landshluta. Á Vesturlandi sé sérhæfing á sviði almenns landbúnaðar, sérhæfing í sjávarútvegi á Vestfjörðum og á Norðurlandi vestra sé sérhæfing í hrossarækt og byggingariðnaði. Hugsunin er að á svæðunum þróist jafnframt stofnanaklasar með opinberum stofnunum og nýsköpunar- og frumkvöðlasetrum sem starfi í tengslum við tiltekinn atvinnuveg. Áætlað er að kjördæmisþinginu í Borgarnesi ljúki síðdegis á morgun.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Fleiri fréttir Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sjá meira