Lífið

Ráðin í The Raven

Hin ungu og upprennandi Alice Eve og Luke Evans eru í viðræðum um að leika á móti John Cusack í spennumyndinni The Raven sem er byggð á samnefndu ljóði Edgars Allans Poe. Leikstjóri er James McTeigue sem hefur á ferilskránni myndirnar V for Vendetta og Ninja Assassin.

Lífið

Skipað að fara á spítala

Leikkonan Juliette Lewis, 37 ára, sem slasaðist í árekstri í síðustu viku eftir að ökumaður keyrði á hana en stakk síðan af neitaði að fara á sjúkrahús eftir áreksturinn. Hún slasaðist ekki alvarlega en viðurkenndi að hún fann fyrir verkjum eftir áreksturinn þar sem hún var farþegi. Sannfæra þurfti Juliette um að fara á spítala en hún neitaði því hún gat ennþá gengið eftir áreksturinn þrátt fyrir eymslin sem hún fann fyrir. Sjúkraflutningarmennirnir sem komu á staðinn sögðu við mig: Við skiljum fólk ekki eftir eftir svona harðan árekstur. Þú verður að koma með okkur á spítalann til að láta skoða þig. Þeir sannfærðu mig og ég gaf eftir," útskýrði Juliette. Hún viðurkennir að hún hugsi oft um áreksturinn. Ég get ekki hugsað mér að lýsa honum. Þetta var hræðilegt ég er ennþá hálfringluð," sagði hún. Slysið minnti mig á að hugsa um litlu hlutina sem skipta svo miklu máli. Ég fór strax og hitti fjölskylduna mína og vini eftir þetta."

Lífið

Ég kyssti gaur

Gavin Rossdale, söngvari hljómsveitarinnar Bush og eiginmaður Gwen Stefani, hefur viðurkennt að hafa átt í ástarsambandi við karlkyns klæðskipting á níunda áratugnum. „Ég vildi ekki að þetta myndi hafa áhrif á Bush,“ sagði hann nýlega í viðtali.

Lífið

Fólkið á frumsýningunni

Leikritið Fólkið í kjallaranum var frumsýnt í Borgarleikhúsinu um síðustu helgi. Verkið er byggt á verðlaunasögu Auðar Jónsdóttur en leikstjóri er Kristín Eysteinsdóttir. Fullt hús var á frumsýningunni og var leikurum og aðstandendum vel tekið.

Lífið

Óútgefin lög frá Weezer

Hljómsveitin Weezer sendir í byrjun nóvember frá sér plötuna Death to False Metal. Platan inniheldur óútgefin lög sem voru samin og tekin upp á síðustu tveimur áratugum. Og já. Platan heitir í alvöru Death to False Metal og þetta er í alvöru umslagið hér til hliðar.

Lífið

Leita að stúlkum til að bera brjóstin

„Ég veit ekki hvort það sé rétt að segja að við ætlum að ganga lengra – en við ætlum að halda okkar striki,“ segir Nana Alfreðsdóttir, söngkona hljómsveitar­innar Elektru.

Lífið

Ætlar að njóta tilverunnar að fullu

Leikkonan Christina Ricci, 30 ára, ætlar að hætta að leika áður en hún verður gömul. Christina ætlar að njóta lífsins eins vel og hún getur. Hún er staðráðin í að hætta að leika og slaka aðeins á áður en hún verður gömul. Hún vill stofna fjölskyldu og koma sér vel fyrir. Ég ætla ekki að vinna þangað til ég verð sjötug og ég ætla ekki að hafa áhyggjur af útlitinu í ellinni. Eina sem ég stefni að er að njóta tilverunnar að fullu. Njóta þess að eldast, eignast börn og barnabörn og hunda," sagði Christina. Christinu má skoða í meðfylgjandi myndasafni.

Lífið

Unglingar eru gersemar

Órói er fyrsta kvikmynd Baldvins Z í fullri lengd. Reynsla hans af starfi með erfiðum unglingum á Akureyri kom að góðum notum við gerð myndarinnar. Kvikmyndin Órói í leikstjórn Baldvins Z verður frumsýnd á morgun á vegum Kvikmyndafélags Íslands. Hún er byggð á unglingabókum

Lífið

Óttast ekki hlýjan býflugubúning

„Þetta er rosalega fyndinn búningur en hann er mjög hlýr,“ segir Steinn Ármann Magnússon sem leikur Fúsa Bý í söngleiknum Dísa ljósálfur sem verður frumsýndur í Austurbæ annan laugardag.

Lífið

Súpermódel segir kærastanum upp

Kanadíska súpermódelið Linda Evangelista, 45 ára, er á lausu en hún sagði upp kærastanum , sem er maðurinn á bak við Hard Rock Café-hugmyndinan, Peter Morton, 64 ára, eftir fjögurra ára samband. Sagan segir að þau náðu ekki sáttum um hvar þau ættu að búa. Samkvæmt heimildarmanni vildi Peter búa í Los Angeles en Linda í Kanada eða New York. Parið trúlofaðist í fyrra þrátt fyrir að fjölskylda Peter var ekki par hrifin af hugmyndinni. Þau kynntust þegar Linda var ófrísk af syni hennar, Augustin, árið 2006, en enginn veit hver faðirinn er. Fjölmiðlafulltrúi Lindu hefur aldrei viljað ræða við fjölmiðla með hverjum hún á dregninn en eitt er vitað og það er að áður en hún kynntist Peter átti hún í ástarsambandi við fótboltastjörnuna Fabian Barthez og líka leikarann Kyle MacLachlan.

Lífið

Yoko keypti afmælisgjöf hjá Gilbert úrsmið

Yoko Ono keypti úr hjá Gilbert úrsmið sem hún gaf syni sínum, Sean Lennon, í afmælisgjöf. Sean varð 35 ára 9. október, á 70 ára fæðingarafmæli föður síns heitins, John Lennon. John fagnaði því 35 ára afmæli sínu sama dag og Sean fæddist.

Lífið

Hugleikur í flottum selskap

Aaron Sorkin er handrits­höfundur The Social Network sem er komin í kvikmyndahús hérlendis. Fréttablaðið hitti hann á blaðamannafundi í París þar sem hann ræddi um Facebook, einkalíf og eiturlyfjanotkun sína. Bandaríkjamaðurinn Aaron Sorkin er handritshöfundur The Social Network sem fjallar um stofnanda Facebook, Mark Zuckerberg, og málshöfðanir gegn honum skömmu eftir að þessi vinsæla síða var stofnuð.

Lífið

Einkaþota og risaskjáir

Tónlistarunnendur hafa beðið spenntir eftir Iceland Airwaves-hátíðinni sem er nýhafin. Fjölmargar erlendar hljómsveitir streyma til landsins og kröfur þeirra eru stundum óraunhæfar.

Lífið

Airwaves í símanum

Tónleikagestir á Iceland Air­waves geta í fyrsta sinn í ár fengið að fylgjast með ýmsu sem tengist þessari tónlistarhátíð í gegnum símann sinn. Þeir geta fylgst með biðröðum í gegnum farsímann sinn, fengið strikamerki í símann sem geymir upplýsingar um hljómsveitir, viðburði og fleira, notað smáforrit sem leiðir þá á réttan tónleikastað og fengið áminningu í símann áður en tónleikar hefjast.

Lífið

Gallalaust fólk á Facebook

Aaron Sorkin er handrits­höfundur The Social Network sem er komin í kvikmyndahús hérlendis. Fréttablaðið hitti hann á blaðamannafundi í París þar sem hann ræddi um Facebook, einkalíf og eiturlyfjanotkun sína. Bandaríkjamaðurinn Aaron Sorkin er handritshöfundur The Social Network sem fjallar um stofnanda Facebook, Mark Zuckerberg, og málshöfðanir gegn honum skömmu eftir að þessi vinsæla síða var stofnuð.

Lífið

Skottur á Kjarvalsstöðum

Hildur Hákonardóttir myndlistarkona tekur þátt í leiðsögn um sýninguna Með viljanna að vopni á Kjarvalsstöðum klukkan 15 á sunnudag, en á sýningunni eru meðal annars verk eftir Hildi.

Lífið

Styður Courteney í skilnaðarkrísunni

Leikkonan Jennifer Aniston, 41 árs, styður vinkonu sína Courteney Cox-Arquette í skilnaðarkrísunni sem hún er í. Jennifer, sem var gift leikaranum Brad Pitt reynir eins og hún getur að sýna Courteney skilning en óskar þess innilega að hún og David Arquette taki saman á ný. Haft var eftir heimildarmanni nákomnum Jennifer: Hún veit hvað það er erfitt að standa í skilnaði og hún vonar að Courteney og David taki saman aftur. Þær hafa stutt hvor aðra í gegnum tíðina og halda áfram að styðja hvor aðra í gegnum súrt og sætt.

Lífið

Brad gladdi Angelinu óvænt

Angelina Jolie var yfir sig ánægð þegar unnusti hennar, Brad Pitt, mætti óvænt til hennar ásamt börnum þeirra þar sem hún vinnur í Budapest í Ungverjalandi. Angelina sem leikstýrir kvikmynd þar í landi hætti ekki að brosa hringinn efitr að Brad mætti til hennar án þess að hún ætti von á honum þar sem hún var stödd á kafi í vinnu. Angelina kynnti Brad fyrir samstarfsfólki sínu en um er að ræða ástarmynd sem segir frá konu frá Bosníu sem fellur fyrir manni frá Serbíu.

Lífið

Dreymir um skurðlækni eða geimfara

Nick Cannon, 30 ára eiginmaður söngdívunnar Mariuh Carey, vill eignast börn með henni sem verða annaðhvort geimfarar eða skurðlæknar. Nick og Mariah hafa verið gift síðan 2008 en sagan segir að hún gangi með fyrsta barnið þeirra þrátt fyrir að ekkert hefur verið staðfest í þeim efnum í slúðurheiminum vestan hafs. Ég vill að börnin okkar verði heilaskurðlæknar eða geimvísindamenn," sagði Nick í viðtali við tímaritið In Touch. Mariah verður dásamleg móðir því hún er gefandi manneskja með nærandi nærveru og hún hugsar vel um alla sem verða á vegi hennar," svaraði Nick spurður hvernig móðir Mariah yrði.

Lífið

Snertir ekki gítarinn

Noel Gallagher, fyrrverandi liðsmanni Oasis, finnst ágætt að vera í pásu frá tónlistarbransanum. Hann hefur ekki spilað á gítar í marga mánuði og finnst það bara allt í lagi. „Það er fínt að láta sér leiðast,“ sagði Gallagher í viðtali við The Sun. „Að stara bara út um gluggann og velta fyrir sé

Lífið

Blaðrar blindfull í síma - myndir

Leikkonan Jessica Biel, 28 ára, viðurkennir að hún hringir í hvert einasta skipti sem hún fær sér í glas í vini sína og skilur eftir skilaboð á símsvaranum þeirra. Jessica, sem heldur því fram að hún fái sér örsjaldan í glas, segist hringja í vini sína í misgóðu ásigkomulagi sökum drykkju. Hún verður aldrei reið eða bitur en hún fær yfir sig gríðarlega þörf fyrir að tala um persónulega hluti við vinkonur sína og vini þegar hún finnur á sér. Ég er hrifin af víni en drekk örsjaldan. Undanfarið hef ég verið meira og minna í símanum sem er mjög skrýtin hegðun af minni hálfu og daginn eftir veit ég yfirlett ekki í hverja ég hringdi í eða hvað ég talaði um," sagði hún í viðtali við Stylist tímaritið.

Lífið

Vill gamaldags sjéntilmenn

Kanadíska söngkonan Avril Lavigne, 26 ára, kýs að hitta karlmenn á gamlan rómantíska mátan. Avril skildi fyrir ekki svo löngu við söngvara Sum 41, Deryck Whibley, og er í dag að hitta The Hills stjörnuna, Brody Jenner. Söngkonan hrífst af kurteisum og vel upp öldum karlmönnum. Ég er hrifin af klassískum sjéntilmönnum sem opna dyr og gefa mér blóm. Menn sem setja konuna í fyrsta sæti eru mér að skapi. Ég er gamaldags hvað það varðar," sagði Avril í viðtali við Maxim tímaritið. Hún kýs að vera heima hjá sér með vinum í stað þess að sækja næturklúbba fram á rauða morgun.

Lífið

Elti kærustuna til Íslands

„Það er æðislegt að búa á Íslandi – aðeins stærra en Færeyjar og aðeins meira að gerast,“ segir Pætur Zachariasson, söngvari hljómsveitarinnar Zach and Foes.

Lífið

Bloodgroup fer á flug á ný

Nóg er fram undan hjá hljómsveitinni Bloodgroup, sem fékk nýlega til liðs við sig söngkonuna Sunnu Margréti. Eftir Iceland Airwaves-hátíðina heldur hljómsveitin til Bandaríkjanna og svo er Evrópa handan við hornið. „Sunna stendur sig vel og það er mjög spennandi að taka alvöru ferðalag með henni. Þetta verður eldskírn,“ segir Ragnar Láki úr hljómsveitinni Bloodgroup.

Lífið

Christina Aguilera skilin

Christina Aguilera er skilin við eiginmann sinn Jordan Bratman. Christina Aguilera og Jordan Bratman giftust árið 2005, þremur árum eftir að þau hittust fyrist. Hjónin hafa ekki ákveðið að enda hjónabandið þrátt fyrir að vera skilin að borði og sæng. Haft er eftir heimildarmanni: Þau búa í dag í sitthvoru lagi en ætla að sjá til hvernig þetta þróast hjá þeim. Þau eru frekar vinir heldur en elskendur. Saman eiga þau tveggja ára son, Max.

Lífið

Leitar að litlum Ásdísum

„Ég kem til landsins fyrir jól til að kynna vöruna í verslunum um allt land og verð væntanlega í leiðinni líka að leita að litlum Ásdísum á aldrinum 16 til 20 ára til að vera andlit vörunnar með mér,“ segir fyrirsætan og athafnakonan Ásdís Rán Gunnarsdóttir.

Lífið