Erlent

Fjórir látnir í átökum í Beirút

Stúdentar fylgjandi Líbanonstjórn annars vegar og stjórnarandstöðu hins vegar lentu í átökum í dag við Beirut Arab háskólann og breiddust átökin út á nærliggjandi götur. Sjónvarpsstöð Hezbolla í Líbanon segir fjóra hafa látið lífið, en embættismenn öryggismála hafa aðeins staðfest að einn hafi verið skotinn til bana. Öryggissveitir segja að minnsta kosti 17 manns slasaða, en óstaðfestar tölur segja 35 hafa slasast.

Erlent

Nam merki úr neyðarsendi flugvélar sem fórst

Bandarískt herskip hefur numið merki frá neyðarsendi flugvélarinnar sem fórst með 102 manns innborðs í Indónesíu á nýársdag. Bandaríska sendiráðið í Jakarta í Indónesíu greindi frá því að merkin væru úr flugrita og frá kassa með upptökum af samtölum í flugstjórnarklefa.

Erlent

Katsav fær tímabundið leyfi frá störfum

Ísraelska þingið samþykkti naumlega í dag að veita Moshe Katsav, forseta landsins, launalaust leyfi vegna ásakana um nauðgun og önnur kynferðisbrot. Greint var frá því fyrr í vikunni að saksóknarnir hygðist ákæra forsetann fyrir brotin en hann hefur alla tíð neitað sök.

Erlent

Hóta áframhaldandi árásum

Grísku öfgasamtökin Byltingarbaráttan hótuðu í morgun að standa fyrir fleiri árásum í landinu, bæði á ráðamenn og byggingar. Í yfirlýsingu sinni lýsa samtökin ábyrgð á flugskeytaárás á bandaríska sendiráðið í Aþenu fyrr í mánuðinum en enginn slasaðist í henni.

Erlent

Herinn kynnir nýtt vopn

Bandaríkjaher hefur kynnt nýtt vopn sem talsmenn hans segja að valdi brunatilfinningu en skaði ekki þá sem fyrir verða. Um er að ræða sérstaka hitabyssu sem skýtur örbylgjum að fólki af allt að 450 metra færi.

Erlent

Hóta fleiri árásum í Grikklandi

Vinstrisinnaðir hryðjuverkamenn sem skutu handsprengju að bandaríska sendiráðinu í Aþenu fyrr í mánuðinum hótuðu í morgun fleiri árásum á grísk og bandarísk skotmörk. Byltingarbaráttuhópurinn svonefndi lýstu ábyrgð á hendur sér í fimm síðna yfirlýsingu þar sem ríkisstjórnir Bandaríkjanna og Grikklands voru gagnrýndar.

Erlent

Safna fé fyrir Líbanon

Líbönsku ríkisstjórninni hefur verið lofað jafnvirði tvö hundruð milljarða íslenskra króna til enduruppbyggingar landsins. Þetta var ákveðið í morgun á alþjóðlegri ráðstefnu sem nú fer fram í Frakklandi. Stjórnarandstæðingar segja að með fjárstuðningnum sé verið að hlaupa undir bagga með stjórnvöldum, ekki þjóðinni.

Erlent

Öflugur jarðskjálfti á Taívan

Öflugur jarðskjálfti hristi upp í Taívan í dag. Ekki hefur frést af manntjóni eða skemmdum. Skjálftinn mældist 6,2 á Richterskalanum. Hann átti upptök sín á 5 kílómetra dýpi undir sjávarbotninum úti fyrir austurströnd eyjunnar. Jarðskjálftar eru tíðir í Taívan.

Erlent

British Airways fellir niður hundruð fluga

Búist er við öngþveiti á flugvöllum í Bretlandi í næstu viku þegar British Airways fellir niður hundruð fluga. Allt flug félagsins frá Heathrow flugvelli verður fellt niður í tvo daga í næstu viku. Þá verður allt innanlands- og Evrópuflug fellt niður frá Gatwick flugvelli á sama tíma, frá kl. 1 aðfaranótt þriðjudags til miðnættis á miðvikudegi. Ákvörðunin var tekin eftir að samningaumleitanir flugliða og flugfélagsins sigldu í strand.

Erlent

Handtekin eftir dauða fallhlífastökkvara

Belgíska lögreglan hefur handtekið konu eftir að vinkona hennar hrapaði til bana í hópfallhlífarstökki í Opglabbeek í Belgíu. Konan sem lést hét Els Van Doren. Hún var 37 ára, gift og tveggja barna móðir, en átti í ástarsambandi við annan fallhlífastökkvara. Hún vissi ekki að vinkona hennar Els Clottemans átti líka í ástarsambandi við manninn. Atvikið átti sér stað í nóvember, en þegar lögreglan komst að ástarþríhyrningnum bárust böndin að Clottermans.

Erlent

Gripinn með 50 þúsund bjórdósir

Þjóðverji á fimmugsaldri var gripinn af dönskum tollvörðum þegar hann keyrði yfir landamærin til Danmerkur með tæplega 50 þúsund bjórdósir á vörubílspalli og í tengivagni. Einnig leyndust þar 2.376 dósir af gosdrykkjum og 12 lítrar af vodka. Megnið af vörunum hafði maðurinn keypt í landamærabúð í Flensborg í Þýskalandi.

Erlent

Sádi-Arabar gefa rúman milljarð dollara

Konungur Sádi-Arabíu tilkynnti í morgun að landið hygðist gefa 1,1 milljarð Bandaríkjadala, jafnvirði um 76 milljarða íslenskra króna, til uppbyggingar í Líbanon. Fulltrúar 40 landa eru saman komnir til söfnunarráðstefnu í París. Áður en ráðstefnan hófst höfðu Frakkland og Bandaríkin lofað um 100 milljörðum íslenskra króna í styrk og lán.

Erlent

Starfsmaður þingsins á kóki

Starfsmaður danska þjóðþingsins hefur verið handtekinn fyrir að hafa undir höndum örvandi fíkniefni. Dagblaðið Berlingske Tidende greindi frá því í nóvember síðastliðnum að fíkniefnaleifar hefðu fundist á þremur klósettum þinghússins í Kristjánsborgarhöll.

Erlent

Verkfall hjá British Airways í næstu viku

Flugliðar British Airways ætla í tveggja daga verkfall í lok mánaðarins eftir að slitnaði upp úr viðræðum milli flugfélagsins og stærsta starfsmannafélags þess. Gengi hlutabréfa félagsins féll í kjölfar fréttanna. Launamál og veikindaréttindi eru meðal þrætuepla.

Erlent

Íslömsk reiði skellur á Bandaríkjamönnum

Ayman al-Zawahri, næstráðandi í al Kaída, vandar Bandaríkjamönnum ekki kveðjurnar í myndbandsávarpi sem birt var á internetinu í gærkvöldi. Hann varar þá við því að íslömsk reiði skelli á þeim af fullum þunga breyti þeir ekki stefnu sinni. Hann segir afleiðingarnar verði verri en nokkuð sem Bandaríkjamenn hafi áður séð.

Erlent

Geta sannað hryðjuverkastarfsemi Írana í Írak

Talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins segir Bandaríkjamenn hafa sannanir fyrir því að hryðjuverkamenn í Írak njóti íransks stuðnings. Þessi sönnunargögn verða lögð fram innan skamms. Talsmaðurinn segir fimm Írana, sem sögðust vera að stofna ræðisskrifstofu þegar þeir voru handteknir í N-Írak, sannanlega ekki vera diplómata.

Erlent

Konungleg magakveisa

Magakveisa hefur bæst ofan á sjóveikina hjá rúmlega þrjú hundruð farþegum og áhafnarmeðlimum skemmtiferðaskipsins Queen Elizabeth annarrar. Þetta þykir óvenju slæm pest þar sem 17 prósent farþega hafi smitast og lagst í rúmið með ælupest.

Erlent

Kvendreki eignaðist unga án karldreka

Afkvæmi meyfæðingar litu dagsins ljós í Englandi í gær, í dýragarðinum í Chester. Fimm ungar Komodo-drekans Flóru eru skriðnir úr eggi og tvö egg eru enn óklakin. Flóra hefur aldrei verið við karldreka kennd og því hefur hún frjóvgað sig sjálf.

Erlent

Safnað fyrir Líbanon

Háttsettir stjórnmálamenn víða að úr heiminum koma saman til fundar í París í dag til að safna í sjóð til uppbyggingar í Líbanon eftir stríðið síðastliðið sumar. Bandaríkin og Frakkland hafa þegar lofað um 100 milljörðum íslenskra króna í styrki og hagstæð lán en líbönsk stjórnvöld vonast til að safna um það bil sexfaldri þeirri fjárhæð.

Erlent

Uppreisnarmenn Tamiltígra flæmdir úr vígum sínum

Stjórnarhermenn á Sri Lanka hafa fínkembt svæði á austurhluta eyjunnar þar sem uppreisnarliðar Tamíltígra voru reknir frá vígum sínum á föstudag. Stjórnarhermenn sýndu fréttamönnum vopn og skotfæri sem þeir sögðust hafa gert upptæk úr vopnabúrum tígranna.

Erlent

Varnarmálaráðherra lést í þyrluslysi

Varnarmálaráðherra Ekvadors, Guadalupe Larriva, lést í flugslysi í gær þar sem tvær þyrlur rákust saman. Aðeins voru níu dagar síðan hún var sett inn í embætti af nýkjörnum forsetanum Rafael Correa. Hún var fyrsta konan til að gegna embætti varnarmálaráðherra í landinu og auk þess fyrsti almenni borgarinn.

Erlent

Íraksstefnan "þjónar ekki hagsmunum þjóðarinnar"

Utanríkismálanefnd bandarísku öldungadeildarinnar samþykkti í gær tillögu um að Íraksstefna Bush forseta "samræmdist ekki hagsmunum þjóðarinnar". Þessi samþykkt hefur hins vegar ekkert lagalegt gildi til þess að breyta ákvörðun forsetans, sem er æðsti yfirmaður herafla Bandaríkjanna.

Erlent

Stefnuræðan hlýtur blendnar viðtökur

Bush tókst ekki að sannfæra andstæðinga sína um nauðsyn þess að senda fleiri hermenn til Íraks. Yfirlýsingar hans um orkumál og andrúmsloftið hlutu mun betri viðtökur, bæði heima fyrir og erlendis.

Erlent

Vill átak gegn dauðarefsingum

Ban Ki-moon, sem í desember tók við af Kofi Annan sem framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, lýsti í gær stuðningi við tillögu Ítala um að efna til heimsátaks gegn dauðarefsingum.

Erlent

Rændi flugvél með 103 manns

Vopnaður súdanskur maður rændi Boeing 737-farþegaþotu sem var flogið frá Kartúm, höfuðborg Súdans, með 103 farþega og áhöfn innanborðs í gær. Enginn slasaðist.

Erlent

Þingforseti var yfirheyrður

Jack McConnell, forseti skoska þingsins, var yfirheyrður af lögreglu í tengslum við rannsókn á fjáröflunarmálum breska Verkamannaflokksins vegna gruns um að auðkýfingar hafi hlotið lávarðartign, og þar með sæti í lávarðadeild breska þingsins, í skiptum fyrir fjárstuðning við flokkinn.

Erlent

Nóbelsverðlaunahafa hótað

Einn þeirra sem grunaðir eru um að hafa hvatt til morðsins á tyrknesk-armenska blaðamanninum Hrant Dink hefur nú hótað Nóbelsverðlaunahafanum Orhan Pamuk.

Erlent

Iðraðist eftir 21 SMS-skilaboð

Kínverskur þjófur skilaði farsíma og þúsundum yuan sem hann hafði stolið frá konu, eftir að hún sendi honum 21 hjartnæmt SMS-smáskilaboð þar sem hún taldi hann á að skila þýfinu. Þetta kemur fram á fréttavef Reuters.

Erlent