Erlent
Drap sjálfan sig og tvö börn sín eftir að hafa komist að framhjáhaldi konunnar Iain Varma, 34 ára kokkur frá norðurhluta Devon í Bretlandi, sem lést ásamt tveimur börnum sínum í eldsvoða er talinn hafa stungið börnin sín tvö og sjálfan sig áður en hann kveikti svo í húsinu. Erlent 5.6.2007 14:23
Ætla að sýna Díönu deyja Breska sjónvarpsstöðin Channel 4 mun ekki að verða við beiðni prinsanna Williams og Harrys um að sleppa myndum af síðustu augnablikunum í lífi móður þeirra, í sjónvarpsþætti um lát Díönu prinsessu. Erlent 5.6.2007 13:30
Bush róar Rússa út af eldflaugakerfi George Bush Bandaríkjaforseti reynir nú að bera klæði á vopnin gangvart Vladimír Pútín Rússlandsforseta og fullvissa hann um að óþarfi sé að að óttast fyrirhugað eldflaugarkerfi í Austur-Evrópu. Erlent 5.6.2007 13:15
Með samúðarkveðjum -bin Laden Bróðir talibanaforingja sem féll í Afganistan í maí, segist hafa fengið samúðarbréf frá Osama bin Laden. Mullah Dadullah féll í árás Bandaríkjamanna. Fall hans er talið mesta áfall sem talibanar hafa orðið fyrir síðan þeim var steypt af stóli árið 2001. Erlent 5.6.2007 13:15
Kínverjar lofa aðgerðum í umhverfismálum Ríkisstjórn Kína hefur opinberað skýrslu þar sem fram kemur stefna þeirra og áætlaðar aðgerðir gegn loftlagsbreytingum. Í skýrslunni heitir stjórnin því að láta ekki sitt eftir liggja í baráttunni. Þó er tekið skýrt fram að ekkert verði aðhafst, ógni það örum vexti efnahagskerfis landsins. Erlent 5.6.2007 12:10
Fjársjóðsskip vekur deilur Spænsk stjórnvöld hafa lagt fram kæru hjá dómstól í Bandaríkjunum vegna skipsflaks sem bandaríska fyrirtækið Odyssey Marine Exploration hefur fundið og hirt fjársjóð úr. Fjársjóðurinn er sagður vera rúmlega þrjátíu milljarða króna virði. Erlent 5.6.2007 12:00
Hikk hikk húrra Margir Svíar eru ærir af gleði yfir því að Evrópudómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að sænska ríkið hefði ekki heimild til þess að banna einstaklingum að kaupa áfengi á netinu. Einni klukkustund eftir að fregnirnar bárust höfðu yfir 13000 manns tekið þátt í skoðanakönnun sænska Aftenposten um hvort þetta væru góðar eða slæmar fréttir. Um 75 prósent sögðust mundu versla á netinu. Erlent 5.6.2007 11:14
Fundu þrjátíu nýjar plánetur Tuttugu og átta plánetur hafa fundist á braut um aðrar stjörnur undanfarið ár. Samtals er nú vitað um 236 plánetur utan okkar sólkerfis. Vísindamenn segja milljarða byggilegra pláneta geta verið til, samkvæmt fréttavef Reuters. Erlent 5.6.2007 11:00
Elsta melóna í heimi fundin Fornleifafræðingar í Vestur-Japan grófu á dögunum upp lítinn skífulaga hlut sem þeir telja vera elstu óröskuðu leifar af melónu sem fundist hafa. Erlent 5.6.2007 10:54
Bráðnun íss hraðar hlýnun Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna segir að bráðnun jökla, íss og snjós geti haft áhrif á allt að 40 prósent jarðarbúa, að því er fram kemur í nýrri skýrslu frá stofnuninni. Erlent 5.6.2007 10:00
Telja hugsanlegt að ETA láti til skarar skríða á næstunni Aðskilnaðarhreyfing Baska, ETA, hyggst binda enda á rúmlega eins árs vopnahlé á morgun. Telja spænskir fjölmiðlar hugsanlegt að samtökin láti til skarar skríða á næstunni. Erlent 5.6.2007 09:25
Sýndu myndskeið af Castro í sjónvarpi Kúbversk sjónvarpsstöð birti í gær myndskeið af Fidel Castro, forseta Kúbu. Þetta eru fyrstu myndirnar sem birtar eru af leiðtoganum aldna í fjóra mánuði. Erlent 5.6.2007 08:49
Ríkiseinokun á áfengisinnflutningi óheimil í Svíþjóð Evrópusdómstóllinn hefur komist að þeirri niðurstöðu að sænskum stjórnvöldum sé óheimilt að banna einstaklingum að flytja áfengi sjálfir inn til landsins sem keypt er á Netinu. Erlent 5.6.2007 08:26
Vill láta reyna á sekt Poulsens Christian Poulsen, leikmaður danska landsliðsins í knattspyrnu, var í gær kærður til lögreglu fyrir ofbeldi. Það gerði nemandi í Árósum sem vill að dómstólar skeri úr um það hvar mörkin liggja inni á knattspyrnuvellinum. Erlent 5.6.2007 08:15
Nígerísk stjórnvöld í mál við Pfizer Nígerísk stjórnvöld hafa höfðað mál á hendur bandaríska lyfjarisanum Pfizer vegna meintra ólöglegra tilrauna með lyf gegn heilahimnubólgu. Segja stjórnvöld í Nígeríu að lyfjafyrirtækið hafi gert tilraunir með lyfið Trovan án þess að leita eftir leyfi hjá yfirvöldum og að börn hafi veikst og jafnvel látist af völdum aukaverkana lyfsins. Erlent 5.6.2007 08:01
Annað eingetið hákarlsafkvæmi Dýralæknum við sædýrasafn í Virginíu í Bandaríkjunum brá í brún þegar þeir komust að því við krufningu að dauður kvenkyns hákarl var þungaður. Í safninu er enginn karlkyns hákarl sömu tegundar, og ómögulegt annað en að ungviðið hafi verið eingetið. Erlent 5.6.2007 08:00
ETA bindur enda á vopnahlé sitt Aðskilnaðarhreyfing Baska, ETA, hyggst binda enda á rúmlega eins árs vopnahlé á morgun eftir því sem fram kemur í baskneska dagblaðinu Berria í dag. Erlent 5.6.2007 07:30
Sex látnir eftir lestarslys í Ástralíu Átta létust og tólf slösuðust alvarlega þegar farþegalest og flutningabíll rákust saman í norðvesturhluta Viktoríuríkis í Ástralíu í morgun. Erlent 5.6.2007 07:10
Búist við að Bush gagnrýni þróunina í Rússlandi Búist er við því að George Bush Bandaríkjaforseti gagnrýni rússnesk stjórnvöld vegna einræðistilburða þar í landi í ræðu sem hann flytur í Prag í Tékklandi í dag. Erlent 5.6.2007 06:58
Taylor segist ætla að verja mál sitt sjálfur Charles Taylor mætti ekki við upphaf stríðsglæparéttarhalda í Haag í gær. Rak lögmann sinn og ætlar að verja sig sjálfur. Sækjandi lýlsir hryllilegum glæpum. Erlent 5.6.2007 06:15
Of drukknir áhorfendur til ama Christian Heide-Jørgensen, blaðamaður hjá danska dagblaðinu Politiken sem skrifað hefur um árásina á dómarann, segir Dani enn vera að jafna sig eftir uppákomuna á Parken á laugardag. Hann telur áfengisneysluna sem slíka ekki vera aðalatriðið heldur sé slakt eftirlit á vellinum áhyggjuefni. Erlent 5.6.2007 06:00
Loftslagsbreytingar ræddar Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sat í gær fund leiðtoga evrópskra smáríkja um umhverfismál í boði Alberts II fursta í tengslum við smáþjóðaleikana sem hófust í Mónakó í gærkvöldi. Erlent 5.6.2007 05:30
Stal íbúðarfylli af kvenfötum Sextugur japanskur karlmaður fyllti eins herbergis vistarverur sínar af þúsundum stolinna kvenmannsklæða. Lögregla uppgötvaði þetta þegar hún fór heim til hans að handtaka hann fyrir að stela rándýrum kímónó-sloppi af heimili konu í borginni. Erlent 5.6.2007 05:30
Máli Kanadamanns vísað frá Peter Brownback, dómari við einn af herdómstólum Bandríkjahers yfir föngunum, sem eru í haldi í Guantanamo á Kúbu, vísaði í gær frá dómi máli eina Kanadamannsins sem þar er í haldi. Erlent 5.6.2007 05:15
Notaði klám sem heilsubót Kynlífsfíkill hefur höfðað mál gegn fyrrverandi vinnuveitenda sínum eftir að hann var rekinn fyrir að skoða klámsíður. James Pacenza, sem starfaði hjá bandaríska tölvurisanum IBM, segist hafa þjáðst af áfallastreituröskun síðan hann barðist í Víetnamstríðinu 1969 og það hafi leitt til kynlífsfíknar. Erlent 5.6.2007 04:00
Mun ræða opinskátt við Pútín Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, segist í vikunni munu ætla að „ræða opinskátt“ við Vladimir Pútín Rússlandsforseta. Tilefnið er aðvörun Pútíns um að hann muni hvergi hika við að beina kjarnorkuvopnum að Evrópu og Bandaríkjunum ef Bandaríkjamenn láta verða af því að reisa eldflaugavarnarkerfi í Tekklandi og Póllandi. Erlent 5.6.2007 03:15
Reykingamenn sátu úti og nutu góða veðursins Íslendingar voru ekki þeir einu sem tóku upp reykingabann á veitingastöðum og kaffihúsum um síðustu mánaðamót, Finnar gerðu það líka. Fyrsta reyklausa helgin gekk vel í Helsinki, að sögn Finnlandssænska dagblaðsins Hufvudstadsbladet, enda sátu reykingamenn bara úti í góða veðrinu. Erlent 5.6.2007 01:45
Átján ár liðin frá harmleiknum Þúsundir kröfðust stjórnarfarsbreytinga í Kína í gær við minningarathöfn til heiðurs fórnarlömbum ofbeldisins á Torgi hins himneska friðar 4. júní árið 1989. Erlent 5.6.2007 01:00
Augum Stóra bróður fjölgar ört Fylgst er með hverjum Breta með að meðaltali 300 myndavélum á vegum hins opinberlega daglega. Flestir telja eftirlitið réttlætanlegt en hagsmunasamtökum hrýs hugur. Ef þú ert saklaus er óþarfi að örvænta, segja yfirvöld. Erlent 5.6.2007 00:15
Réttað yfir fyrrum meðlimi Ku Klux Klan í Bandaríkjunum Réttarhöld yfir fyrrum meðlimi Ku Klux Klan hófust í Atlanta í Bandaríkjunum í dag. Maðurinn er ákærður fyrir að hafa myrt tvo svarta unglingspilta árið 1964. Málið er í hópi fjölmargra annarra mála sem tengjast kynþáttaofbeldi á 6. og 7. áratug síðustu aldar sem tekin hafa verið upp að nýju í Bandaríkjunum á undanförnum árum. Erlent 4.6.2007 23:28