Erlent

Bush segist hafa fylgt samvisku sinni

George Bush fráfarandi Bandaríkjaforseti sagði í kveðjuræðu sinni til bandarísku þjóðarinnar að hann hafi alltaf fylgt sinni bestu samvisku í embættisverkum sínum.

Erlent

Drápu sjötugan mann fyrir tvær rauðvínsflöskur

Þrír ungir menn sitja nú í gæsluvarðhaldi í hafnarbænum Kragenæs í Danmörku grunaðir um að hafa orðið rúmlega sjötugum manni að bana til þess að komast yfir tvær rauðvínsflöskur. Þetta gerðist á heimili mannsins á þriðjudaginn.

Erlent

Myndband af lögreglumorði á Netinu

Myndband sem sýnir lögreglumann skjóta handtekinn mann til bana í Oakland í Kaliforníu á nýársdag fer nú sem eldur í sinu um vefinn og hefur meðal annars birst á myndskeiðavefnum YouTube.

Erlent

Allir taldir á lífi

Samkvæmt fulltrúa flugmálastjórnar Bandaríkjanna er uallir farþegarnir sem voru borð í flugvél US Airways sem hrapaði í Hudson-ánna í New York fylki í kvöld á lífi. Að minnsta kosti 150 voru um borð í vélinni.

Erlent

Innanríkisráðherra Hamas felldur ásamt syni

Said Siyam, innanríkisráðherra Hamas á Gaza-svæðinu var felldur í dag í loftárás Ísraela. Hann er einn æðsti forystumaður samtakanna sem fallið hefur frá því að árásirnar hófust fyrir rúmlega 20 dögum. Siaym var yfirmaður nokkur þúsund Palestínumanna í öryggissveit Hamas-liða á svæðinu.

Erlent

Flugvél hrapaði við New York - 135 um borð

Flugvél frá flugfélaginu US Airways hrapaði í Hudson-ánna í New York fylki fyrir stundu. Á vef BBC kemur fram að björgunarbátar séu komnir að vélinni og reyna björgunarmenn að koma farþegunum til bjargar.

Erlent

Árás á flóttamannahjálp SÞ: Vorum að verja okkur

Forsætisráðherra Ísraels segir höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í Gaza verið notaðar til árása á ísraelska hermenn. Þeir hafi einfaldlega verið að svara fyrir sig þegar þeir hafi gert árás á þær í dag. Sameinuðu þjóðirnar vísa þessu á bug og hefur flóttamannahjálp samtakanna hætt störfum á Gaza um stundarsakir.

Erlent

Milliband: Stríðið gegn hryðjuverkum var mistök

Stríðið gegn hryðjuverkum voru mistök. Það sameinaði ólíka hópa hryðjuverkamanna gegn vesturveldunum. Þetta segir David Miliband, utanríkisráðherra Breta, í grein sem birtist í breska blaðinu Guardian í dag.

Erlent

Egyptar vilja friðarviðræður í Kuwait

Egyptar, sem komið hafa fram sem milliliður í deilu Ísraels við hin palestínsku Hamas-samtök, vilja efna til friðarviðræðna í Kuwait á sunnudaginn strax að loknum efnahagsviðræðum arabaríkjanna sem þar fara fram um helgina.

Erlent

Tugir handteknir í norsku fíkniefna- og steramáli

Lögreglan í Noregi hefur handtekið 63 einstaklinga í gríðarstóru stera- og fíkniefnamáli sem teygir sig út um allt landið og yfir til Svíþjóðar. Hald var lagt á stera fyrir sem svarar til 62 milljóna íslenskra króna og fíkniefni að andvirði um 17 milljónir.

Erlent

Japanskur blaðamaður greindi frá heimildamanni sínum

Japanskur blaðamaður játaði fyrir rétti í gær að geðlæknir nokkur hefði verið leyndur heimildamaður hans við ritun bókarinnar „Ég ákvað að myrða föður minn" en bókin fjallar um geðveikan pilt sem vistaður er á hæli fyrir afbrotaunglinga eftir að hafa brennt heimili sitt til grunna með þeim afleiðingum að þrennt úr fjölskyldu hans beið bana.

Erlent

Fyrrum bæjarstjóri lést í götukappakstri

Fyrrverandi bæjarstjóri breska smábæjarins Market Weighton, sem þekktur var fyrir andúð sína á þýskum bifreiðum, lét lífið í umferðarslysi eftir að hafa att kappi við ökumann á BMW 320.

Erlent

Þriðja Heathrow-flugbrautin væntanleg

Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, mun á næstu dögum heimila lagningu þriðju flugbrautarinnar á Heathrow-flugvellinum í London en umhverfisverndarsamtök hafa deilt harkalega á þá framkvæmd.

Erlent

Friðarviðræðum framhaldið í Egyptalandi

Rúmlega þúsund Palestínumenn hafa fallið síðan árásir Ísraela á Gaza hófust fyrir rúmum þremur viku. Þetta segja læknar á svæðinu. Þriðjugur fallinna mun börn. Á sama tíma hafa þrettán Ísraelar fallið. Hart hefur verið barist nærri Gazaborg í dag. Óvíst er þó hvort hermenn halda inn í borgina af ótta við enn meira blóðbað í skotbardögum þar.

Erlent

ESB yfirtekur ekki olíu- og gasframleiðslu Breta og Hollendinga

Evrópusambandið segir það alrangt að yfirtaka eigi olíu- og gasframleiðslu Breta og Hollendinga. Í grein í breska blaðinu Daily Express í gær sagði að Evrópusambandið ætlaði að yfirtaka olíu- og gasframleiðslu Breta og Hollendinga í samræmi við leynilega valdheimild sem hefði verið skrifuð inn í Lissabon sáttmálann.

Erlent

Segja Hamas ætla að samþykkja tillögu um vopnahlé

Heimildir Sky fréttastöðvarinnar og spænsku fréttarstöðvarinnar Elpais herma að Hamas-samtökin séu í grundvallaratriðum búin að samþykja tillögu Egypta um vopnahlé. Búist er við að þetta verði tilkynnt á blaðamannafundi sem hefst klukkan 18 að íslenskum tíma.

Erlent

„Farðu til Íslands, en komdu ekki aftur"

„Bróðir mannsins míns fór um daginn í útlendingaeftirlitið til að endurnýja ferðaleyfið sitt. Hann fékk það endurnýjað en konan sem afgreiddi hann spurði hann af hverju hann færi ekki bara til Íslands eins og bróðir sinn?

Erlent

Seldi dóttur sína fyrir bjór og Gatorade

Kaliforníubúi á fertugsaldri seldi 14 ára dóttur sína fyrir bjór, kjöt og reiðufé. Kaupandinn var 18 ára gamall maður en upp komst um þessi vafasömu viðskipti þegar sá stóð ekki skil á hluta kaupverðsins. Faðirinn brást þá hinn versti við og hringdi í lögregluna.

Erlent

Ísraelsmenn sækja að miðju Gaza-borgar

Ísraelsmenn sóttu áfram í átt að miðju Gaza-borgar í morgun. Tæplega eitt þúsund Palestínumenn hafa nú fallið í átökunum. Jakob Kellenberger, forseti alþjóðlega Rauða krossins, er staddur á Gaza-ströndinni í þriggja daga heimsókn og sagði það skelfilegt sem fyrir augu bar.

Erlent