Erlent
Sotomayor komst í gegnum nálaraugað Hæstaréttardómarar í Bandaríkjunum fengu nýjan vinnufélaga í gærkvöldi þegar útnefning Soniu Sotomayor í embætti var samþykkt af öldungadeild þingsins. Erlent 7.8.2009 09:23
Leiðtogi Talíbana í Pakistan mögulega fallinn Líkur eru taldar á því að Pakistanski Talíbanaleiðtoginn Baitullah Mehsud hafi látist í árás ómannaðrar flugvélar á vegum Bandaríkjahers sem gerð var á miðvikudaginn. Þegar hafði verið staðfest að kona Mehsuds hafi látist í árásinni og að Mehsud hafi sloppið en nú berast fregnir af því að leiðtoginn hafi látist. Hátt settur maður innan Bandaríkjastjórnar sagði á blaðamannafundi að dauði Mahsuds geti vel verið staðreynd þrátt fyrir að ekkert hafi verið staðfest enn sem komið er. Erlent 7.8.2009 08:02
Hvarf Maddíar: Leitað að tvífara Viktoríu Beckham Einkaspæjari sem rannsakað hefur hvarf Madeileine McCann, litlu stúlkunnar sem hvarf af hótelherbergi sínu í Portúgal árið 2007 birti í gær á blaðamannafundi mynd af konu sem hann telur tengjast hvarfi hennar. Konan sást í Barcelóna á Spáni tveimur dögum eftir hvarf Maddíar og það er vitnisburður tveggja Breta sem ræddu við hana þá sem sannfærir spæjarann sem vinnur fyrir McCann hjónin, að hún tengist hvarfinu. Erlent 7.8.2009 07:55
Lestarræningja gefið frelsi til að deyja Lestarræninginn Ronnie Biggs hefur verið látinn laus úr fangelsi þar sem hann er dauðvona. Það var dómsmálaráðherra Bretlands, Jackie Straw sem tók ákvörðunin þrátt fyrir að hafa synjað Biggs áður. Frá þessu greinir the Daily Telegraph. Erlent 6.8.2009 23:45
Dauðsföllum vegna svínaflensu fjölgar - smittilfellum fækkar Níu manns létust vegna svínaflensunnar svokölluðu í Englandi í síðustu viku og er fjöldi dauðsfalla þar í landi orðinn 36, samkvæmt heilbrigðisyfirvöldum þar í landi. Erlent 6.8.2009 16:26
Miklu fleiri piltar með tannskemmdir en stúlkur Þriðji hver piltur á aldrinum 15-16 ára er með skemmdir í tannglerungi vegna gosdrykkju. Þetta sýnir ný rannsókn frá Frederiksberg í Danmörku, sem fjallað er um í tímariti danskra tannlækna. Erlent 6.8.2009 15:00
Mannréttindasamtök segja árásir Hamas stríðsglæpi Mannréttindasamtökin Human Right Watch hvetja nú Hamas samtökin í Palestínu til að fordæma eldflaugaárásir herskárra Hamasliða á Ísrael og draga hina seku til ábyrgðar. Erlent 6.8.2009 12:28
21 látinn í sprengingu í Afganistan Spengja sem sprakk í vegarkanti í suðurhluta Afganistans í morgun varð að minnsta kosti 21 óbreyttum borgara að bana. Flutningabíll sem var að flytja farþega lenti í sprengingunni að sögn afganskra yfirvalda. Sex slösuðust í árásinni. Erlent 6.8.2009 08:23
Nýjar vísbendingar í Maddí-málinu Boðað hefur verið til blaðamannafundar í London síðar í dag þar sem einkaspæjari nokkur sem rannsakað hefur hvarf Madeleine McCann, litlu stúlkunnar sem hvarf af hótelherbergi sínu í Portúgal árið 2007 mun skýra frá nýjum vísbendingum í málinu. Erlent 6.8.2009 08:17
Hillary ræðir við forseta Sómalíu Hillary Clinton utanríkisráðherra Bandaríkjanna mun í dag hitta Sheik Sharif Ahmed, forseta Sómalíu en viðræðurnar verða í Kenýa. Búist er við því að Clinton lýsi yfir stuðningi við ríkisstjórn Ahmeds sem stendur í ströngu í baráttu sinni við öfgasinnaða hópa íslamista í landinu sem er að mestu stjórnlaust. Erlent 6.8.2009 08:09
Síðasti "Tommy-inn" lagður til grafar Síðasti breski hermaðurinn sem tók þátt í fyrrri heimstyrjöldinni verður lagður til grafar í dag. Erlent 6.8.2009 07:11
Fá bætur ef það rignir í fríinu Farþegar sem ferðast með þýska flugfélaginu Lufthansa geta nú krafið félagið um bætur ef það rignir á þá í fríinu. Erlent 6.8.2009 06:00
Um 1.200 hafa látist úr svínaflensu Um 1.200 manns hafa látist eftir að hafa sýkst af svínaflensu (H1N1) samkvæmt nýjum tölum frá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni. Erlent 6.8.2009 04:30
Minni andúð og fé í boði Hjónaböndum súnnía og sía hefur fjölgað töluvert í Írak á ný, en þeim hafði fækkað mjög meðan átökin milli þessara íslömsku trúflokka voru hvað hörðust fyrir nokkrum misserum. Erlent 6.8.2009 04:00
Í eftirlitsferð við Bandaríkin Rússar hafa staðfest að tveir kafbátar, sem sáust út af austurströnd Bandaríkjanna, hafi verið rússneskir. Erlent 6.8.2009 03:00
Hundruð mótmælenda við þinghúsið Hundruð mótmælenda létu í sér heyra við þinghúsið í Teheran í gær þegar Mahmoud Ahmadinejad sór embættiseið fyrir annað kjörtímabil sitt sem forseti. Erlent 6.8.2009 00:45
Bandarískum blaðakonum fagnað við heimkomuna Bandaríkin, AP Bandarísku blaðakonurnar Euna Lee og Laura Ling fengu góðar móttökur þegar þær komu til Bandaríkjanna í gær og hittu fjölskyldur sínar eftir langan aðskilnað. Erlent 6.8.2009 00:15
Ástralski forsætisráðherrann sakaður um fjöldamorð „Það er raðmorðingi í Ástralíu og við ætlum að sýna ykkur mynd af honum svo þið sjáið hver það er,“ sagði fréttaþulurinn Erin Burnett sem er þekktust fyrir að flytja yfirvegaðar fréttir af CNBC um verðbréfaviðskipti í heiminum. Erlent 5.8.2009 21:31
Líkamsræktarmorðinginn ætlaði að drepa í janúar Morðinginn George Sodini, sem fór inn í líkamsræktarstöðin LA Gym og mytri þrjár konur auk þess sem hann særði tíu aðrar í Bandaríkjunum, bloggaði um ætlun sína að myrða fólk. Þar segist hann hafa áður farið vopnaður í þeim tilgangi að myrða. Erlent 5.8.2009 21:05
Skotárás í ræktinni Að minnsta kosti fimm eru látnir eftir að maður hóf skothríð í líkamsræktarstöð í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum í nótt. Tíu eru særðir í það minnsta, en byssumaðurinn skaut sjálfan sig til bana að árásinni lokinni. Erlent 5.8.2009 08:11
Danskar löggur segja slagsmálasögur á Facebook Lögreglumenn í Dönsku borginni Bröndby liggja nú undir ámæli eftir að nokkrir þeirra skrifuðu skeyti á Fésbókarsíðu kollega síns. Í skrifunum lýsa lögreglumennirnir ánægju sinni með átök sem þeir lentu í á dögunum við pólska fótboltaáhangendur en 113 voru handteknir í slagsmálunum. Erlent 5.8.2009 08:03
Enn séns fyrir ítalska lottóspilara Enginn var með allar tölur réttar í ítalska lottóinu en dregið var í gærkvöldi. Potturinn er sá næst stærsti sem í boði hefur verið í Evrópu en sá sem hefði haft heppnina með sér í gær væri nú 116 milljónum evra ríkari eða rúmum 20 milljörðum íslenskra króna. Erlent 5.8.2009 08:01
Ferð Clintons bar árangur Heimsókn Bills Clintons fyrrverandi Bandaríkjaforseta til Norður Kóreu bar árangur því blaðakonurnar tvær sem hann vildi fá lausar úr haldi voru um borð í þotu hans á heimleiðinni en hann hélt til Bandaríkjanna í nótt. Erlent 5.8.2009 07:54
Ahmadinejad sór embættiseið Mahmoud Ahmadinejad forseti Írans sór embættiseið fyrir annað kjörtímabil sitt í morgun í Íranska þinginu. Ahmadinejad bar sigur úr býtum í kosningum á dögunum en kosningarnar hafa verið harðlega gagnrýndar og yfirvöld sökuð um kosningasvindl. Erlent 5.8.2009 07:34
Brown sinnir góðgerðarstarfi í fríinu Forsætisráðherra Bretlands, Gordon Brown, mun sinna sjálfboðastarfi í eina viku á meðan hann er í sumarfríi. Treglega tókst að fá fréttina staðfest aí Bretlandi en Brown mun ekki vilja draga athyglina að því góðgerðarstarfi sem hann mun sinna samkvæmt fréttavef BBC. Ástæðan er samkomulag við góðgerðarfélagið sjálft. Erlent 5.8.2009 00:00
Clinton frelsaði bandarískar blaðakonur Leiðtogi Norður - Kóreu, Kim Jong Il, hefur náðað tvær bandarískar blaðakonur sem þar eru í haldi, aðeins nokkrum klukkustundum eftir að Bill Clinton, fyrrum forseti Bandaríkjanna, kom í óopinbera heimsókn þangað. Erlent 4.8.2009 23:30
40 vandarhögg vegna buxna Súdönsk kona á yfir höfði sér 40 vandarhögg vegna ákæru fyrir ósiðlegan klæðaburð. Konan gekk í buxum opinberlega í síðasta mánuði. Hún lítur á þetta sem prófmál fyrir dómi og segir að vandarhöggin yrðu móðgun við fólk og trúarbrögð. Erlent 4.8.2009 19:30
Clinton fundaði með Kim Jong-il Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, átti í dag fund með Kim Jong-il, hinum umdeilda leiðtoga Norður-Kóreu. Erlent 4.8.2009 18:51
Bandarískir fangar í Íran yfirheyrðir Lögregla yfirheyrir nú bandaríkjamennina þrjá sem teknir voru höndum í Íran um helgina, að því er fram kemur í íranska ríkissjónvarpinu. Erlent 4.8.2009 11:35
Einn látinn í flugslysi í Tælandi Flugstjóri lést og nokkrir farþegar slösuðust í morgun þegar farþegaflugvél frá Bangkok Airways hlekktist á í lendingu á flugvelli á tælensku eyjunni Koh Samui sem vinsæl er á meðal ferðamanna. Erlent 4.8.2009 09:40