Erlent

Nýjar vísbendingar í Maddí-málinu

Mynd af Maddí þegar hún hvarf og tölvugerð mynd þar sem reynt er að ímynda sér hvernig hún lítur út í dag.
Mynd af Maddí þegar hún hvarf og tölvugerð mynd þar sem reynt er að ímynda sér hvernig hún lítur út í dag.
Boðað hefur verið til blaðamannafundar í London síðar í dag þar sem einkaspæjari nokkur sem rannsakað hefur hvarf Madeleine McCann, litlu stúlkunnar sem hvarf af hótelherbergi sínu í Portúgal árið 2007 mun skýra frá nýjum vísbendingum í málinu.

Á fundinum verður birt mynd af manni sem talinn er tengjast málinu og vonast menn til þess að myndbirtingin verði til þess að vitni stígi fram sem varpað geta frekara ljósi á málið.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×