Bandarískum blaðakonum fagnað við heimkomuna 6. ágúst 2009 00:15 Tilfinningaþrungin stund Þær Euna Lee og Laura Ling hittu eiginmenn sína og Lee hitti einnig dóttur sína á Burbank-flugvelli í Kaliforníu í gær eftir langan aðskilnað. fréttablaðið/AP
Bandaríkin, AP Bandarísku blaðakonurnar Euna Lee og Laura Ling fengu góðar móttökur þegar þær komu til Bandaríkjanna í gær og hittu fjölskyldur sínar eftir langan aðskilnað. „Síðustu 140 dagar hafa verið þeir erfiðustu í lífi okkar,“ sagði Ling. Aðeins rúmum sólarhring áður höfðu þær óttast að verða fluttar í þrælkunarbúðir, en síðan voru þær fluttar á annan stað: „Þegar við gengum í gegnum dyrnar sáum við Bill Clinton forseta standa fyrir framan okkur,“ sagði hún. „Okkur brá en þá vissum við strax að martröðinni væri lokið og nú erum við hingað komnar, heim til okkar og frjálsar.“ Konunum var haldið í einangrun og fengu lélegt fæði, að því er systir Ling segir: „Þeim var haldið aðskildum lengst af,“ sagði hún. „Við réttarhöldin gátu þær faðmast, en svo ekki söguna meir.“ Þær Lee og Ling starfa fyrir sjónvarpsstöð, sem er í eigu Als Gore, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna. Þær voru handteknar í mars síðastliðnum við landamæri Kína og hlutu dóm fyrir að fara ólöglega yfir landamærin í fjandsamlegum tilgangi. Dómurinn hljóðaði upp á tólf ára þrælkunarvinnu. Bandaríkjamenn fylgdust með heimkomu blaðakvennanna í beinni útsendingu, en ríkissjónvarpið í Norður-Kóreu sýndi ekki myndir af blaðakonunum heldur aðeins af Clinton þegar hann kvaddi og hélt um borð í flugvélina. Óvíst er hvaða þýðingu heimsókn Clintons til Norður-Kóreu mun hafa fyrir samskipti ríkjanna. Robert Gibbs, blaðafulltrúi Baracks Obama, fullyrti að Clinton hefði ekki haft nein skilaboð meðferðis frá Obama til Kims. Hann sagði það algerlega undir Norður-Kóreu komið hvort heimsóknin yrði til þess að viðræður um kjarnorkumál gætu hafist á ný. Norður-Kóreustjórn hætti fyrr á árinu þátttöku í milliríkjaviðræðum, sem snerust um að Bandaríkin, Kína, Rússland, Japan og Suður-Kórea reyndu að fá Norður-Kóreu til þess að hætta við öll kjarnorkuáform gegn fjárhagsaðstoð og niðurfellingu refsiaðgerða. Samskiptin við Norður-Kóreumenn versnuðu enn þegar þeir gerðu tilraunir með flugskeyti og hófu kjarnorkuvinnslu á ný.gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Hormússundi lokað á ný Erlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Innlent Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Erlent Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra Innlent Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun Innlent Fleiri fréttir Skotið hafi verið á olíuflutningaskip á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Sjá meira