Erlent

Hundruð mótmælenda við þinghúsið

Mahmoud Ahmadinejad Mikil ólga er enn í Íran vegna umdeildra kosningaúrslita.
fréttablaðið/AP
Mahmoud Ahmadinejad Mikil ólga er enn í Íran vegna umdeildra kosningaúrslita. fréttablaðið/AP

Hundruð mótmælenda létu í sér heyra við þinghúsið í Teheran í gær þegar Mahmoud Ahmadinejad sór embættiseið fyrir annað kjörtímabil sitt sem forseti.

Þrír mótframbjóðendur hans í embætti, helstu leiðtogar stjórnarandstöðunnar á þingi og fjöldi þingmanna var fjarverandi.

Lögregla greip til barefla og piparúða til að dreifa mannfjöldanum, sem hafði safnast saman skammt frá þinghúsinu og hrópaði slagorð gegn Ahmadinejad. Margir sögðust óska honum dauða.

Sumir mótmælendur klæddust svörtum stuttermabolum, sem tákn sorgar, en aðrir klæddust grænum fötum, sem er litur stjórnarandstöðunnar.

Úrslit forsetakosninganna, sem haldnar voru 12. júní, hafa verið umdeild. Stjórnvöld hafa verið sökuð um að falsa niðurstöðurnar. Ahmadinejad sé því ekki réttkjörinn forseti.

Ólgan í landinu undanfarnar vikur hefur verið sú mesta síðan íslömsku klerkarnir gerðu byltingu gegn keisarastjórninni. Valdastéttin er klofin í afstöðu sinni til Ahmadinejads og meira að segja íhaldsmenn úr hópi stuðningsmanna hans sjálfs hafa gagnrýnt stjórnina harðlega fyrir þá grimmilegu meðferð sem sumir mótmælendur hafa mátt sæta.

Stjórnin hefur hins vegar sakað Bandaríkjamenn og Vesturlönd um að standa að baki mótmælunum og nýta sér þau í áróðursskyni á alþjóðavettvangi.

Sjálfur sagðist Ahmadinejad í ræðu sinni ekki ætla að þola nein afskipti að utan, en hét því jafnframt að láta áfram til sín taka á alþjóðavettvangi:

„Við verðum að gegna lykilhlutverki í stjórnun heimsins," sagði hann. „Við munum ekki þegja. Við munum ekki þola vanvirðingu, afskiptasemi og móðganir."

- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×