Erlent
523 látnir eftir jarðskjálftann í Tyrklandi Tyrkneskir fjölmiðlar segja nú að 523 hafi látið lífið í kjölfar jarðskjálftans sem gekk yfir austurhluta landsins um helgina. Að auki særðust 1.650 manns. Talið er að jarðskjálftinn hafi verið 7,2 stig. Erlent 27.10.2011 10:17
Ný kenning um upphaf lífs á jörðinni Grænland er nú talin vera vagga alls lífs á jörðinni. Þó svo að náttúra Grænlands sé ein sú kaldranalegasta sem fyrirfinnst á jörðinni þá telja vísindamenn nú að lífverur jarðar megi rekja ættir sínar til aur-eldfjalla á suðvesturhluta eyjunnar. Erlent 27.10.2011 10:01
Mozilla og Microsoft í samstarf Hugbúnaðarfyrirtækið Mozilla tilkynnti í dag um nýtt samstarf með Microsoft. Í tilkynningu á vefsíðu Mozilla kemur fram að sérstök útgáfa af vafra fyrirtækisins, Firefox, verði sérhönnuð fyrir leitarvél Microsoft, Bing. Erlent 27.10.2011 09:32
Aldrei fleiri kvenforstjórar í Bandaríkjunum Eftir að Heather Bresch tók við forstjórastól lyfjafyrirtækisins Mylan er ljóst að kvenforstjórar hafa aldrei verið fleiri en nú. Í nýjastu útgáfu Fortune 500 eru 18 konur titlaðar sem forstjórar. Erlent 27.10.2011 09:15
Argentínskur engill dauðans dæmdur í lífstíðarfangelsi Argentínski böðullinn Alfredo Astiz, betur þekktur sem Hinn ljóshærði engill dauðans, hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir glæpi gegn mannkyninu. Erlent 27.10.2011 08:11
Peta segir íslenska háhyrninga vera í þrælahaldi Bandarísku dýraverndunarsamtökin Peta hafa stefnt sjávardýragarðinum Sea World fyrir þrælahald á háhyrningum. Fjórir af þeim fimm háhyrningum sem hér um ræðir voru veiddir við strendur Íslands. Erlent 27.10.2011 08:05
Fæddi barn í miðjum listagjörningi í New York Gjörningalistakonan Marni Kotak fæddi dóttur á listasafni í New York í gærdag. Fæðingin var hluti af sýningu Kotak á safninu en hún segir að fæðingin sé æðsta stig listsköpunnar. Dóttirin reyndist myndarstúlka og var yfir 18 merkur að þyngd. Erlent 27.10.2011 08:01
Slagsmál á ítalska þinginu Til handalögmála kom á ítalska þinginu í gærdag þegar verið var að ræða þar frekari aðhaldsaðgerðir á vegum hins opinbera. Erlent 27.10.2011 07:58
Dani fékk hálfan milljarð í lottóvinning Þótt ofurvinningurinn hafi ekki gengið út í Víkingalottóinu í gærkvöldi er þó einn Dani sem hefur ástæðu til að brosa i dag. Hann fékk ofurvinninginn í jókernum og er í dag 24 milljónum danskra króna, eða um hálfum milljarði króna ríkari en í gær. Erlent 27.10.2011 07:51
Níu farast í aurskriðum á Ítalíu Að minnsta kosti níu manns hafa farist og sex er saknað á norðurvesturhluta Ítalíu eftir miklar aurskriður á þessum slóðum í gærdag. Erlent 27.10.2011 07:48
Madoff hjónin reyndu að fremja sjálfsmorð Ruth Madoff eiginkona Bernie Madoff eins þekktasta fjársvikara sögunnar segir að þau hjónin hafi reynt sjálfsmorð um jólin í fyrra. Erlent 27.10.2011 07:45
Bönkum gert að tryggja sig betur „Heimurinn fylgist með Þýskalandi og Evrópu,“ sagði Angela Merkel Þýskalandskanslari á þýska þinginu í gær, áður en hún hélt til Brussel þar sem hún reyndi ásamt hinum leiðtogum Evrópusambandsríkjanna að finna lausnir á skuldakreppunni. Erlent 27.10.2011 00:30
Axarárás fer fyrir hæstarétt Mál mannsins sem réðst inn á heimili skopteiknarans Kurt Westergaard á nýársdag í fyrra fer fyrir hæstarétt eftir úrskurð áfrýjunarnefndar í gær. Muhudiin Mohamed Geele hefur þegar verið fundinn sekur um hryðjuverk og morðtilraun í neðri dómsstigum og var dæmdur í tíu ára fangelsi í sumar. Erlent 27.10.2011 00:00
Stúdentar óttast að samskiptavefir hafi alvarleg áhrif á framtíðina Tæplega helmingur stúdenta óttast að upplýsingar sem þeir birta á samskiptavefjum, eins og Facebook, geti skaðað framtíðarmöguleika þeirra á að fá starfið sem þeir sækjast eftir. Þetta kemur fram í grein í Daily Telegraph, og er þá vitnað til skoðanakönnunar sem Information Commissioner’s Office (ICO), framkvæmdi. Erlent 26.10.2011 23:30
Sendu geislamengaða bíla aftur til Japans Rússnesk yfirvöld þurftu að senda sex bíla aftur til Japans þegar í ljós kom að þeir voru geislamengaðir. Erlent 26.10.2011 21:30
Framleiða Barbie dúkkur með húðflúr Barbie dúkkan hefur verið umdeild síðustu ár, þá helst vegna óraunverulegs vaxtarlags og hlutgervingu kvenna. Samkvæmt fréttastofu Reuters hefur þessi sívinsæla dúkka enn og einu sinni valdið deilum; en tískufyrirtækið Tokidoki hefur hannað nýja Barbie-dúkku - nú með húðflúrum. Erlent 26.10.2011 21:00
Indverji vinnur milljón dollara í spurningarþætti Maður frá einu af fátækasta héraði Indlands varð sá fyrsti til að hreppa risa vinning í indverskri útgáfu spurningarþáttarins Viltu vinna milljón. Erlent 26.10.2011 17:23
Siri skilur ekki Skota Skoskir iPhone notendur eru allt annað en ánægðir með Siri, nýjasta skipulagsforrit Apple. Forritið byggist á raddgreiningu og gerir notendum kleift að tala við símann. Vandamálið er að Siri skilur ekki skoskan hreim. Erlent 26.10.2011 16:35
Michael Jackson og Stieg Larsson þéna vel Michael Jackson er söluhæsta látna stjarnan, annað árið í röð. Þetta kemur fram í nýjasta tölublaði Forbes. Í blaðinu kemur fram að Jackson hafi þénað 170 milljónir dollara á síðasta ári. Erlent 26.10.2011 16:07
Fjöldagröf finnst í Líbíu Lík 267 stuðningsmanna Muammars Gaddafi, fyrrverandi einræðisherra Líbíu, fundust í Sirte í dag. Erlent 26.10.2011 15:41
Einkaleyfi mikill sigur fyrir Apple Tölvurisinn Apple hefur fengið einkaleyfi á aflæsingu snjallsíma með bendingum á snertiskjá. Einkaleyfið tekur einnig til aflæsingar á spjaldtölvum. Erlent 26.10.2011 15:00
Málverk eftir Picasso endurheimt Tvö málverk eftir Pablo Picasso sem stolin voru af myndlistarsýningu árið 2008 hafa loks komið í leitirnar. Erlent 26.10.2011 14:35
Þjóðarráð Líbíu vill að NATO framlengi dvöl sína Þjóðarráð Líbíu hefur beðið Atlantshafsbandalagið, NATO, um að framlengja dvöl sína í landinu til ársloka. Erlent 26.10.2011 14:10
Sjö milljarðasti einstaklingurinn fæðist 31. október Nýútkomin skýrsla á vegum Sameinuðu Þjóðanna útlistar þau vandamál sem fylgja fólksfjölgun jarðar. Skýrslan, sem ber heitið Ástand fólksfjölgunar 2011, kemur út nokkrum dögum áður en mannkynið verður sjö milljarðar. Erlent 26.10.2011 13:41
Fleiri finnast á lífi í Tyrklandi Björgunarmenn í Tyrklandi björguðu kennara og átján ára pilti úr húsarústum í dag. Þrír dagar eru liðnir síðan jarðskjálfti gekk yfir austurhluta landsins. Erlent 26.10.2011 13:11
Nokia kynnir Lumia 800 Nokia kynnti í dag nýja línu snjallsíma. Finnski símaframleiðandinn berst við Apple og Samsung um yfirráð á farsímamarkaðinum og er nýju símunum ætlað að berjast við iPhone 4S og nýjasta síma Samsung, Galaxy S II. Erlent 26.10.2011 12:04
Fráfall Winehouse rannsakað Niðurstöður úr réttarrannsókn á dauða söngkonunnar Amy Winehouse voru kynntar í dag. Winehouse fannst látinn á heimi sínu í Camden 23. júlí síðastliðinn. Hún var 27 ára. Erlent 26.10.2011 11:47
Kaffidrykkja dregur úr áhættu á húðkrabbameini Rannsóknir benda til að kaffidrykkja dragi úr hættu á grunnfrumukrabbameini en það er algengasta krabbamein veraldar. Erlent 26.10.2011 11:25
Lögregla og mótmælendur takast á í Oakland Lögreglumenn og mótmælendur tókust á í Oakland í Bandaríkjunum í dag. Hundruðir mótmælenda sem styðja Hernám Wall Street (e. Occupy Wall Street) voru samankomnir í Oakland þegar lögreglan tók málin í sínar hendur. Táragasi bar beitt á mótmælendur. Erlent 26.10.2011 11:03
Innrásarfloti Mongóla fundinn Fornleifafræðingar í Japan telja sig hafa fundið leifar innrásaflota Mongóla frá árinu 1281. Vísindamennirnir fundu skipið grafið í sjávarbotninum fyrir utan Nagasaki. Þeir telja að skipið sé eitt af 4.400 skipum sem eyðilöggðust í fellibyli sem gekk yfir svæðið. Erlent 26.10.2011 10:31