Enski boltinn
Mikilvægur sigur hjá Blackburn Blackburn reif sig aðeins frá liðunum í fallsætum ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld er liðið vann afar mikilvægan heimasigur á Sunderland, 2-0. Enski boltinn 20.3.2012 15:59
Mancini vill betra og nákvæmara eftirlit Roberto Mancini knattspyrnustjóri Manchester City segir að gera þurfi breytingar á eftirliti með heilsufari leikmanna hjá enskum félagsliðum. Mancini var sjálfur undrandi á þeim aðferðum sem notaðar voru á Englandi þegar hann kom til Man City fyrir tveimur árum. Ítalinn er á þeirri skoðun að leikmenn eigi að fara í tvær ítarlegar heilsufarsskoðanir á hverju ári. Enski boltinn 20.3.2012 14:15
Muamba spurði um son sinn | er á batavegi en ástandið er alvarlegt Fabrice Muamba, leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Bolton, er á hægum batavegi eftir að hjarta hans stöðvaðist í leik gegn Tottenham s.l. laugardag. Hinn 23 ára gamli Muamba er enn í lífshættu en hann hefur m.a. rætt við fjölskyldu sína á gjörgæsludeildinni og hann spurði um son sinn skömmu eftir að hann fékk meðvitund á ný. Enski boltinn 20.3.2012 09:45
Leik Tottenham og Stoke verður ekki frestað Leikur Tottenham og Stoke í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu mun fara fram á miðvikudaginn eins og upphaflega var gert ráð fyrir. Margir af leikmönnum Tottenham voru mjög miður sín eftir leik liðsins gegn Bolton í 8-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar á laugardaginn þar sem að Fabrice Muamba leikmaður Bolton fékk hjartaáfall. Enski boltinn 19.3.2012 22:30
Suarez vill skrifa undir nýja samning Luis Suarez framherji enska úrvalsdeildarliðsins Liverpool hefur ekki alltaf átt rólega daga á Englandi frá því hann kom til liðsins frá Ajax í Hollandi. Landsliðsmaðurinn frá Úrúgvæ hefur verið orðaður við mörg lið og töldu margir að hann myndi ekki ná sér á strik í ensku knattspyrnunni á ný eftir 8 leikja keppnisbann sem margfrægt er orðið. Suarez ætlar ekki að gefast upp þrátt fyrir mótlætið og hefur hann ekki hug á því að yfirgefa Liverpool. Enski boltinn 19.3.2012 17:15
Muamba sýnir framfarir | berst enn fyrir lífi sínu Fabrice Muamba, leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Bolton, er enn í lífshættu eftir að hjarta hans stöðvaðist í leik gegn Tottenham á laugardaginn. Bolton sendi hinsvegar frá sér tilkynningu nú síðdegis þar sem kemur fram að hinn 23 ára gamli Muamba hafi sýnt framfarir á undanförnum klukkustundum. Enski boltinn 19.3.2012 16:30
Di Matteo: Ég vann ekki á bak við tjöldin gegn Villas-Boas Roberto Di Matteo, knattspyrnustjóri Chelsea, segir að hann hafi ekki unnið að því á bak við tjöldin að koma Andre Villas-Boas frá félaginu. Di Matteo tók við enska úrvalsdeildarliðinu eftir að Villas-Boas var rekinn og töldu margir að Di Matteo hafi átt sinn þátt í því að Portúgalinn var rekinn. Enski boltinn 19.3.2012 15:45
Ferguson vill fá meiri hraða í lið Man Utd | umboðsmaður Berbatov tjáir sig Hinn 31 árs gamli framherji Dimitar Berbatov skoraði 20 mörk á síðasta tímabili fyrir Englandsmeistaralið Manchester United. Búlgarinn hefur þrátt fyrir það ekki náð að festa sig í sessi í byrjunarliði Man Utd og er hann á förum frá liðinu í sumar. Umboðsmaður Berbatov segir að Sir Alex Ferguson ætli sér að breyta um leikstíl hjá Man Utd á næstu árum og Berbatov hafi ekki passað inn í þau plön. Enski boltinn 19.3.2012 13:30
Sjáðu mörkin hjá Gylfa | allt það helsta úr enska boltanum á Vísi Fjórir leikir fóru fram um helgina í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Þar var íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson áberandi en hann skoraði tvívegis í 3-0 sigri Swansea á útivelli gegn Fulham. Öll mörkin úr leikjum helgarinnar eru aðgengileg á sjónvarpshlutanum á Vísi. Enski boltinn 19.3.2012 12:00
Þekktur hjartalæknir hljóp úr stúkunni til að bjarga Muamba Fabrice Muamba, leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Bolton, berst enn fyrir lífi sínu á gjörgæslu á hjartadeild á sjúkrahúsi í London. Hjartað í hinum 23 ára gamli Muamba hætti að slá í miðjum bikarleik gegn Tottenham á laugardaginn og hófust endurlífgunartilraunir strax á vellinum. Einn þekktasti hjartasérfræðingu Bretlands, Dr. Andrew Deaner, var á meðal áhorfenda á White Hart Lane og hann fór strax út á völlinn til þess að aðstoða þegar hann sá í hvað stefndi. Enski boltinn 19.3.2012 11:15
Klinsmann neitar því að vera á leið til Tottenham Jürgen Klinsmann, fyrrum framherji þýska landsliðsins í fótbolta og enska úrvalsdeildarliðsins Tottenham, segir að hann hafi ekki hug á því að taka við knattspyrnustjórastöðunni hjá Tottenham. Enski boltinn 19.3.2012 10:45
Muamba liggur enn þungt haldinn á gjörgæslu Fabrice Muamba leikmaður Bolton liggur enn þungt haldinn á sjúkrahúsi eftir að hjarta hans hætti að slá í bikarleiknum gegn Tottenham á laugardag. Ástand hins 23 ára gamla Muamba er enn alvarlegt og er hann í öndunarvél á sjúkrahúsi í London. Enski boltinn 19.3.2012 10:15
Guðjón Þórðar um Gylfa: Fer í eitt af stóru liðunum Guðjón Þórðarson gaf Gylfa Þór Sigurðssyni fyrsta alvöru tækifærið í enska boltanum þegar hann var stjóri Crewe 2008-09 og sá strax hvað bjó í stráknum. Gylfi fór á kostum um helgina og skoraði tvisvar í 3-0 sigri Swansea á Fulham. Enski boltinn 19.3.2012 08:00
Independent um Gylfa: Sá renglulegi öðlast glæsileika þegar hann fær boltann við tærnar Blaðamaður Independent-blaðsins fer fögrum orðum um Gylfa Þór Sigurðsson í umfjöllun sinni um 3-0 sigur Swansea City á Fulham í ensku úrvalsdeildinni í gær. Gylfi skoraði tvö fyrstu mörk Swansea og Patrick Barcklay valdi hann að sjálfsögðu mann leiksins. Enski boltinn 18.3.2012 23:30
Rooney: Alltaf mikilvægast að skora fyrsta markið á útivelli Wayne Rooney var glaður eftir sigurinn, 5-0, gegn Wolves í ensku úrvaldsdeildinni í dag en liðið féll illa úr leik í Evrópudeildinni á fimmtudagskvöldið og því var það mikilvægt að koma sterkir til baka að mati leikmannsins. Enski boltinn 18.3.2012 22:00
Gylfi þakkar félögunum fyrir sendingarnar Gylfi Þór Sigurðsson var lítillátur í viðtölum eftir 3-0 sigur Swansea City á Fulham í ensku úrvalsdeildinni í gær en hann skoraði tvö fyrstu mörk liðsins. Gylfi hefur þar með skorað 5 mörk í 9 leikjum fyrir velska liðið síðan að hann kom á láni frá Hoffenheim í janúar. Enski boltinn 18.3.2012 20:30
Torres: Það hafa allir hér hjá Chelsea haft trú á mér Fernando Torres, leikmaður Chelsea, fór á kostum í dag gegn Leicester í enska bikarnum. Spánverjinn skoraði tvö mörk og lagði upp tvö. Enski boltinn 18.3.2012 19:45
Dregið í undanúrslit enska bikarsins | Liverpool gæti mætt Everton Nú rétt í þessu var dregið í undanúrslitin í enska bikarnum. Báðir leikirnir fara fram á Wmebley. Enski boltinn 18.3.2012 18:16
Rodgers ætlar að reyna að halda Gylfa hjá Swansea Gylfi Þór Sigurðsson hefur slegið í gegn hjá velska liðinu Swansea City en hann er á láni frá þýska liðinu Hoffenheim fram á vor. Gylfi skoraði tvö mörk í 3-0 sigri Swansea á Fulham í gær en sigurinn skilaði liðinu upp í áttunda sæti deildarinnar. Enski boltinn 18.3.2012 17:30
Lescott: Getur reynst dýrmætt að fá Tevez aftur í liðið Joleon Lescott, leikmaður Manchester City, vill meina að endurkoma Carlos Tevez inn í liðið jafngildi að kaupa heimsklassaleikmann á þessum tímapunkti. Enski boltinn 18.3.2012 16:30
Newcastle vann góðan sigur á Norwich Newcastle vann mikilvægan sigur, 1-0, gegn Norwich í ensku úrvalsdeildinni í dag. Eina mark leiksins gerði Papiss Cissé fyrir Newcastle eftir aðeins tíu mínútna leik. Enski boltinn 18.3.2012 15:30
Liverpool komið í undanúrslit eftir sigur gegn Stoke Liverpool komst áfram í undanúrslit ensku bikarkeppninnar í dag þegar liðið var bar sigur úr býtum gegn Stoke, 2-1, á Anfield. Enski boltinn 18.3.2012 15:00
Vertonghen vill fara til Arsenal Jan Vertonghen, leikmaður Ajax, hefur mikinn áhuga á því að ganga til liðs við enska knattspyrnufélagið Arsenal. Enski boltinn 18.3.2012 14:45
Aron Einar og félagar gerðu jafntefli við Burnley Cardiff og Burnley gerðu markalaust jafntefli í ensku Championhip deildinni í dag og komst leikurinn aldrei á flug. Enski boltinn 18.3.2012 14:30
Leik Aston Villa og Bolton í vikunni frestað | Muamba enn í lífshættu Ákveðið hefur verið að fresta leik Aston Villa og Bolton Wanderers í ensku úrvalsdeildinni sem átti að fara fram á þriðjudagskvöld. Enski boltinn 18.3.2012 14:00
Chelsea komið í undanúrslit enska bikarsins | Torres gerði tvö mörk Chelsea flaug sannfærandi áfram í undanúrslit ensku bikarkeppninnar þegar þeir unnu Leicester, 5-2, í 8-liða úrslitum keppninnar. Fernando Torres gerði tvö mörk í leiknum og lagði upp tvö önnur mörk sem verður að teljast frétt dagsins í knattspyrnuheiminum. Enski boltinn 18.3.2012 13:45
Mancini heldur starfinu þó svo að liðið hafni í öðru sæti Roberto Mancini, knattspyrnustjóri Manchester City, hefur fengið þau skilaboð frá forráðarmönnum City að starf hans sé ekki í hættu þó svo að liðið nái ekki að tryggja sér Englandsmeistaratitilinn. Enski boltinn 18.3.2012 13:30
Manchester United valtaði yfir Wolves Manchester United valtaði yfir Wolves, 5-0, í ensku úrvalsdeildinni í dag en leikurinn fór fram á Molineux, heimavelli Wolves. Enski boltinn 18.3.2012 13:00
Ashley Young: Spennandi fyrir mig að fá að taka þátt í titilbaráttu Ashley Young er á sínu fyrsta tímabili með Manchester United og fagnar því að fá að kynnast því að vera í titilbaráttu. Hann fékk ekki að kyntast því með Aston Villa undanfarin ár. Manchester United heimsækir Wolves í ensku úrvalsdeildinni í dag og getur náð fjögurra stiga forystu með sigri. Enski boltinn 18.3.2012 11:45
Coyle: Næstu 24 tímar skipta öllu máli fyrir Muamba Owen Coyle, stjóri Bolton, hefur tjáð sig um veikindi miðjumannsins Fabrice Muamba sem hneig niður í fyrri hálfleik í bikarleik Tottenham og Bolton í gær. Leikurinn var í kjölfarið flautaður af. Enski boltinn 18.3.2012 11:15