Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna
1 2 3 … 3 ›
Orðhengilsháttur vill einkenna ESB-umræðuna Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er önnum kafinn einstaklingur en hún heldur áfram að koma á óvart hvað varðar viðtöl við fjölmiðla. Hún var mætt í Brennsluna á FM 957 í morgun í ítarlegt viðtal um ESB og kosningarnar um aðildarviðræður. Innlent 11.3.2026 11:37
Segir Ísland geta klárað viðræður á einu og hálfu ári Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, segir að Ísland gæti orðið 28. aðildarríki Evrópusambandsins. Hægt yrði að klára aðildarviðræður, verði þær samþykktar í þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst, á einu og hálfu ári. Þá þyrfti að halda aðra atkvæðagreiðslu um aðild að sambandinu. Erlent 11.3.2026 07:46
Sjái þegar merki um að forspá um klofningu þjóðarinnar standist Prófessor í fjölmiðlafræði segist þegar sjá skautun á samfélagsmiðlum vegna fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst og bendir á að bæði meiri- og minnihluti hafi talið atkvæðagreiðsluna muna skipta þjóðinni í fylkingar. Rannsóknir sýni fram á að sífellt færri leiti frétta úr ólíkum áttum. Innlent 10.3.2026 23:55
Krafði Sigmund svara varðandi MAGA og uppskar skammir Þingmenn stjórnarandstöðunnar brugðust ókvæða við því þegar Dagur B. Eggertsson sagði Miðflokkinn þurfa að gera hreint fyrir sínum dyrum varðandi ætluð tengsl við MAGA-hreyfinguna svokölluðu. „Ælir út úr sér óhróðri og drullu!“ sagði Þorgrímur Sigmundsson Miðflokki til að mynda. Innlent 10.3.2026 17:24
Ráðleggur Þorgerði fram að þjóðaratkvæðagreiðslu Heiða Kristín Helgadóttir, fyrrverandi varaþingmaður, hefur verið ráðin ráðgjafi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra fram að þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið, sem stefnt er á að halda í lok ágúst. Innlent 10.3.2026 14:07
Óttast ekki að þjóðaratkvæðagreiðslunni verði seinkað Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segist ekki óttast að langar umræður á Alþingi um þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður við ESB muni seinka atkvæðagreiðslunni sem til stendur að blása til 29. ágúst. Hún hafnar ásökunum um samráðsleysi og segist hugsi yfir því að þingmenn stjórnarandstöðunnar hafi ekki svarað því hvort þeir muni virða niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Innlent 10.3.2026 13:51
Kristrún vísar þögn um ESB-málið á bug Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist ekki ætla að liggja á skoðunum sínum varðandi þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið, þvert á fullyrðingar pólitískra andstæðinga hennar þar um. Innlent 10.3.2026 13:50
Frekari ESB-umræður í þinginu Fyrsta umræða um þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu heldur áfram á Alþingi á þingfundi dagsins. Málið var rætt langt fram á kvöld í gærkvöldi. Innlent 10.3.2026 13:30
Trump sagður beita sér í ESB-umræðunni hér á landi Ríkisstjórn Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, vill halda Íslandi utan Evrópusambandsins, þar sem innganga myndi veikja samningsstöðu Bandaríkjanna gagnvart Íslandi hvað varðar viðskipti og koma niður á varnarmálum Bandaríkjanna. Bandarískur ráðgjafi breska stjórnmálamannsins Nigel Farage, formanns breska flokksins Reform, er sagður hafa komið tvisvar sinnum til Íslands á þessu ári. Innlent 10.3.2026 09:05
Ræddu þjóðaratkvæði fram á kvöld og halda áfram í dag Þingfundi á Alþingi lauk ekki fyrr en vel var gengið á ellefta tímann í gærkvöldi þar sem tekist var á um þingsályktunartillögu um hvort halda skuli þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aildarviðræðna við ESB. Hart var tekist á í þingsalnum og þingmenn stjórnarandstöðunnar voru ívið fjölmennari í þingsalnum. Innlent 10.3.2026 07:50
„Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Ótti við forsendubrest kjarasamninga er að aukast meðal aðila innan Samtaka atvinnulífsins. Mjög margir mismunandi þættir spila inn í aukna verðbólgu hér á landi, sem nú mælist um 5,2 prósent, en nýleg áform virðast ekki líkleg til að sporna við henni. Þetta segir Bjarni Benediktsson, nýr framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Innlent 9.3.2026 20:36
Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, opnaði umræðu um aðildarviðræður við Evrópusambandið með fyrirspurn til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum á þingi nú fyrr í dag. Víst er að stjórnarandstaðan er að búa sig í skotgrafirnar. Innlent 9.3.2026 17:30
Þriðjungur andvígur atkvæðagreiðslunni Meirihluti landsmanna er hlynntur þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Tæpur þriðjungur er andvígur. Innlent 9.3.2026 16:12
Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Þingmenn stjórnarandstöðunnar fara hörðum orðum um Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra vegna ákvörðunar hennar um að bera þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB ekki undir utanríkismálanefnd. Þeir segja það brot á þingsköpum en stjórnarliðar vísa því alfarið á bug. Hún biður stjórnandstöðuna um að treysta þjóðinni „í guðanna bænum.“ Innlent 9.3.2026 16:10
Bein útsending: ESB-ballið byrjar á Alþingi Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra mælir fyrir þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu á þingfundi dagsins, sem hefst klukkan 15. Ætla má að hart verið tekist á um málið og fylgjast má með fundinum í beinni á Vísi. Innlent 9.3.2026 14:48
Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Vaxandi meirihluti félagsmanna Samtaka iðnaðarins er andvígur aðild Ísland að Evrópusambandinu. Aðeins um fjórðungur þeirra er hlynntur aðild samkvæmt nýrri könnun sem var gerð á meðal þeirra. Viðskipti innlent 9.3.2026 13:24
Landbúnaðarstefna ESB henti íslenskum landbúnaði illa Búast má við hörðum umræðum á Alþingi í dag um þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort haldið skuli áfram með aðildarviðræður Íslands að Evrópusambandinu. Bændasamtökin hafa ekkert á móti því að kanna hug þjóðarinnar til málsins. Landbúnaðarstefna sambandsins henti hins vegar afar illa hér á landi. Innlent 9.3.2026 12:54
„Við hefðum náð meiri árangri með því að vera innan Evrópusambandsins“ Íslensk stjórnvöld hefðu náð betri árangri í samningaviðræðum um undanþágur frá losunarheimildum ETS-kerfisins hefði Ísland verið hluti af Evrópusambandinu að mati utanríkisráðherra. Hún ítrekaði orð sín um að hún myndi ekki skrifa undir slæman samning. Innlent 8.3.2026 12:01
Mun aldrei samþykkja aðild nema að við ráðum sjálf okkar auðlindum Það verður nóg um að vera í Sprengisandi á Bylgjunni í dag. Alþjóðamálin verða áberandi en fyrstur mætir Kjartan Orri Þórsson, sérfræðingur, til að ræða sögu Írans og afskipti heimsvelda af innanríkismálum sem hafa verið tíð og afdrifarík síðustu 120 árin. Innlent 8.3.2026 09:47
„Evrópusambandið hefur meiri hag af því núna að mæta óskum Íslands“ Prófessor í stjórnmálafræði segir skotgrafir í Evrópusambandsrumræðu virkilega djúpar og að búast megi við harkalegri umræðu á Alþingi um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald viðræðna við sambandið. Innlent 7.3.2026 13:01
„Engar varanlegar undanþágur í boði lengur“ Fróðlegt viðtal var í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins í gær þar sem rætt var við Heather Grabbe, sérfræðingi hjá Brugel-hugveitunni í Brussel, sem sagði meðal annars aðspurð hvað umsóknarríki gætu samið um við Evrópusambandið að hægt væri að semja um aðlögunartíma, sem einnig hafa verið kallur tímabundnar undanþágur eða tímabundin aðlögun, en varanlegar undanþágur (opt-outs) væru hins vegar ekki lengur á boðstólum. Skoðun 7.3.2026 07:46
Útiloka að þjóðaratkvæðagreiðslan fái hraða afgreiðslu Formaður Miðflokksins útilokar að þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi viðræður við ESB muni hljóta skjóta afgreiðslu á þingi. Formaður Sjálfstæðisflokksins segir dagsetninguna henta frasakenndri stefnu ríkisstjórnarinnar en ekki þjóðinni. Þeir segja utanríkismálanefnd hafa verið hundsaða með öllu og segja ekkert að marka fyrri orð forsætisráðherra. Innlent 6.3.2026 19:13
Ríkisstjórnin feli aðgerðaleysi á bak við atkvæðagreiðsluna Formaður Sjálfstæðisflokksins segir ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að ganga til þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið vera til marks um uppgjöf á þeim verkefnum sem hún tók að sér eftir síðustu kosningar. Valkyrjurnar svokölluðu ætli að leita sér pólitísks skjóls í deilum um Evrópusambandið næstu mánuði. Innlent 6.3.2026 16:30
Ísland sé í sterkari stöðu en áður fyrir aðildarviðræður Þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið um inngöngu Íslands fer fram 29. ágúst. Það tilkynnti ríkisstjórnin á blaðamannafundi fyrr í dag. Forsætisráðherra sagði tilefni til viðræðna núna. Samningsstaða Íslendinga væri góð, betri en áður, auk þess sem mikið rót væri í alþjóðamálum. Innlent 6.3.2026 12:54
Þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram 29. ágúst Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið fer fram þann 29.ágúst, að því gefnu að þingsályktunartillaga þess efnis verði samþykkt. Mælt verður fyrir þingsályktunartillögunni í upphafi næstu viku. Innlent 6.3.2026 11:34
Bein útsending: Kynna tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu Formenn ríkisstjórnarflokkanna hafa boðað til blaðamannafundar um tillögu þeirra um þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður við Evrópusambandið klukkan 11:30. Beina útsendingu frá fundinum og textalýsingu má sjá hér á Vísi. Innlent 6.3.2026 11:01
Kynna tillöguna um þjóðaratkvæðagreiðsluna klukkan 11:30 Formenn ríkisstjórnarflokkanna hafa boðað til blaðamannafundar um tillögu þeirra um þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður við Evrópusambandið klukkan 11:30. Tillagan verður lögð fram á ríkisstjórnarfundi í dag. Innlent 6.3.2026 08:59
Kynnir hvenær þjóðaratkvæðagreiðsla um viðræður við ESB fer fram Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra kynnir þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að Evrópusambandinu (ESB) á fundi ríkisstjórnar á morgun. Beint eftir fundinn verður haldinn blaðamannafundur þar sem efnisatriði tillögunnar verða kynnt og dagsetning atkvæðagreiðslunnar. Innlent 5.3.2026 18:40
Lögregla bankar upp á vegna hótana í garð ráðamanna Lögreglan hefur þurft að hafa afskipti af fólki sem hefur haft í alvarlegum hótunum gagnvart ráðamönnum á Íslandi og fólki sem stígur fram í opinberri umræðu. Innlent 4.3.2026 15:51
Ríkisstjórnin fái kynningu um þjóðaratkvæði á föstudag Gera má ráð fyrir að utanríkisráðherra kynni þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við Evrópusambandið fyrir ríkisstjórn á föstudag. Innlent 3.3.2026 16:20