Erlent

Fréttamynd

Keypti far út í geim

Bandarískur kaupsýslumaður greiddi einn komma tvo milljarða króna fyrir að láta skjóta sér út í geiminn frá Kasakstan í dag, ásamt tveimur geimförum. Hann er þriðji maðurinn sem borgar fyrir að fara út í geiminn.

Erlent
Fréttamynd

Herinn verður í Írak segir Rice

Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að ekki komi til greina að senda bandaríska herinn frá Írak. Hún telur að það geti haft skelfilegar afleiðingar að yfirgefa landið og láta þannig stjórn landsins í hendur samviskulausra morðingja.

Erlent
Fréttamynd

Fjórða hvert barn í hættu

Eitt af hverjum fjórum fæddum börnum í heiminum er í hættu vegna sjúkdóma sem hægt væri að koma í veg fyrir með einfaldri bólusetningu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna.

Erlent
Fréttamynd

Saka hvort annað um óhæfi

Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands og leiðtogi Jafnaðarmanna, og Angela Merkel, leiðtogi Kristilegra demókrata, eru enn langt frá því að leysa ágreining sinn um það hvort þeirra skuli leiða stjórnarmyndunarviðræður í landinu. Í dag sökuðu þau hvort annað um að vera óhæf til að leiða landið.

Erlent
Fréttamynd

Sprengja á Bali

Í það minnsta 25 biðu bana í tvöföldu sprengjutilræði á veitingahúsum á eynni Balí á Indónesíu um kvöldmatarleytið í gær. 51 slasaðist alvarlega. Enn er ekki búið að bera kennsl á líkin en talið er að þau séu bæði af innfæddum og útlendingum.

Erlent
Fréttamynd

Senda viðbótarherlið að girðingu

Spánverjar og Marokkóbúar hyggjast senda viðbótarherlið til að takast á við hundruð afrískra innflytjenda sem hafa undanfarna daga reynt að komast yfir rammgerðar vírgirðingar á norðuströnd Afríku yfir landamæri Spánar í von um betra líf. Forsætisráðherrar landanna tveggja komust að samkomulagi um þetta í gær eftir að fimm manns höfðu látist við að reyna að komast yfir girðingarnar.

Erlent
Fréttamynd

Vinsældir Villepin aukast

Forsætisráðherra Frakklands, Dominique de Villepin, mælist nú í fyrsta sinn með meira persónulegt fylgi en innanríkisráðherra landsins, Nicolas Sarkozy, en talið er að þeir muni keppa um forsetaembættið í Frakklandi árið 2007.

Innlent
Fréttamynd

Sleppt úr haldi

Judith Miller, blaðamaður New York Times, mætti fyrir dóm í gær og freistaði þess að varpa ljósi á þátt Hvíta hússins í að ljóstra upp um nafn leyniþjónustumanns við bandarísku leyniþjónustuna CIA. Miller hafði setið í fangelsi í 85 daga þegar henni var sleppt gegn loforði um að bera vitni í sérstökum réttarhöldum um samræður hennar í júlí 2003 við Lewis Libby, starfsmannastjóra hjá Dick Cheney, varaforseta Bandaríkjanna.

Erlent
Fréttamynd

Fuglaflensa muni breiðast hratt út

Sérfræðingar innan Sameinuðu þjóðanna segja fuglaflensuna muni breiðast hratt út um allan heim og geta orðið allt að 150 milljónum manna að bana, verði ekki gerðar ráðstafanir hið snarasta til að koma í veg fyrir útbreiðslu veirunnar. Fuglaflensan hefur nú þegar orðið tugum að bana.

Erlent
Fréttamynd

Frelsaði kynlífsþræla í Birmingham

Breska lögreglan frelsaði í gærkvöldi nítján konur, flestar frá Austur-Evrópu, sem var haldið nauðugum á nuddstofu í Birmingham, en líklegt er talið að þær hafi verið þvingaðar til að stunda vændi. Konurnar, sem voru meðal annars frá Lettlandi, Tyrklandi, Póllandi, höfðu verið á nuddstofunni um nokkurt skeið.

Erlent
Fréttamynd

Mannskætt rútuslys í Kasmír

44 eru látnir og svipað margir slasaðir eftir að rúta fór út af fjallvegi í inverska hluta Kasmír-héraðs í gær. Svo virðist sem bílstjórinn hafi misst stjórn á rútunni en vegir á svæðinu þar sem slysið varð munu vera mjög þröngir og brattir. Fregnir herma að hátt í 90 manns hafi verið í rútunni sem tók aðeins 40 farþega og voru fjölmargir á þaki rútunnar þegar hún valt niður bratta hlíð.

Erlent
Fréttamynd

Opnaði barnahús í Linköping

Silvía Svíadrottning opnaði barnahús í Linköping í Svíþjóð í morgun, að íslenskri fyrirmynd, en drottningin kynntist starfsemi Barnahúss hér á landi þegar hún var hér ásamt eiginmanni sínum, Karli Gústaf Svíakonungi, í opinberri heimsókn fyrir rúmu ári. Bragi Guðbrandsson, forstöðumaður Barnaverndarstofu á Íslandi, var viðstaddur opnunina í Svíþjóð, en hann hefur veitt Svíum ráðgjöf við undirbúning starfseminnar. Stefnt er að því að opna fleiri slík hús í Svíþjóð innan tíðar.

Erlent
Fréttamynd

Höfðu verið þvingaðar til vændis

Breska lögreglan frelsaði í gærkvöldi nítján konur, flestar frá Austur-Evrópu, sem var haldið nauðugum á nuddstofu í Birmingham, en talið er að þær hafi verið þvingaðar til að stunda vændi.

Erlent
Fréttamynd

Samkomulag í nánd í Þýskalandi?

Samkomulag gæti verið að nást í stjórnarmyndunarviðræðum stóru flokkanna í Þýskalandi. Angela Merkel, formaður Kristilega demókrataflokksins, sagði á blaðamannafundi í gær að góðar líkur væru á að hún og flokkur hennar mynduðu stjórn með jafnaðarmönnum, að minnsta kosti væru meiri líkur á stjórn stóru flokkanna en nokkru öðru stjórnarmynstri.

Erlent
Fréttamynd

Sprengjuárás í Hilla í Írak

Að minnsta kosti sjö manns fórust og yfir 30 eru særðir eftir að bílsprengja sprakk í borginni Hilla í Írak í morgun. Árásin kemur í kjölfar sprengjuárásar sem varð yfir 50 manns að bana í borginni Balad, um 90 kílómetra norðan við Bagdad í gærkvöld. Þá er talið að minnsta kosti 100 manns hafi særst í sprengingunum.

Erlent
Fréttamynd

Lögreglan lét greipar sópa

Fjórum lögreglumönnum frá New Orleans hefur verið sagt upp störfum vegna gruns um að þeir hafi látið greipar sópa um verslanir eftir að fellibylurinn Katrín reið yfir borgina.

Erlent
Fréttamynd

Blaðamanni NYT sleppt úr haldi

Judith Miller, blaðamanni <em>New York Times</em>, hefur verið sleppt úr haldi eftir nær þriggja mánaða fangelsisvist. Hún var fangelsuð fyrir að neita að gefa upp heimildarmann sinn í tengslum við fréttir af því að nafni leyniþjónustukonunnar Valerie Plame var ljóstrað upp, en slíkt varðar við lög í Bandaríkjunum.

Erlent
Fréttamynd

Fá lyf við HIV-sjúkdómi nær frítt

HIV-smitaðir einstaklingar í Taílandi fá lyf við sjúkdómnum nær ókeypis frá og með morgundeginum. Lyfið kemur ekki í veg fyrir að sjúklingar fái alnæmi en hægir mjög á útbreiðslu HIV-veirunnar í líkamanum. Taíland verður þar með fyrsta landið í Asíu og eitt fyrsta í heimi til að bjóða þegnum sínum svona lyf því sem næst ókeypis.

Erlent
Fréttamynd

Roberts verður forseti Hæstaréttar

John Roberts sór síðdegis í gær embættiseið sem sautjándi forseti Hæstaréttar Bandaríkjanna við athöfn í Hvíta húsinu að viðstöddum George Bush forseta landsins og dómurum réttarins. Það var John Paul Stevens, aldursforseti réttarins og sitjandi forseti síðan William Rehnquist lést, sem las Roberts eiðstafinn. Roberts er fimmtugur að aldri og yngsti maður sem tekur við embætti forseta réttarins síðan árið 1801 þegar John Marshall sór embættiseið, þá aðeins 45 ára gamall.

Erlent
Fréttamynd

120 látnir af völdum Damrey

Að minnsta kosti 120 hafa fundist látnir eftir yfirreið fellibylsins Damrey yfir nokkur lönd í Asíu. Flestir létust í Víetnam, um 50 manns, þegar skyndiflóð urðu í norðurhluta landsins í kjölfar úrhellis sem fylgdi fellibylnum. Gripið hafði verið til mikilla varúðarráðstafana vegna fellibylsins og þurftu m.a. 330 þúsund manns að yfirgefa heimili sín í Víetnam en engu að síður létust margir þar sem erfitt reyndist að spá fyrir um skyndiflóðin.

Erlent
Fréttamynd

Breytingar samþykktar í Alsír

Langstærstur hluti kjósenda í Alsír samþykkti í gær breytingar á stjórnarskrá landsins í þjóðaratkvæðagreiðslu sem miðaði að því veita hundruðum íslamskra uppreisnarmanna sakaruppgjöf að hluta til, og binda þannig enda á áratugarlanga borgarastyrjöld í landinu. Rúmlega 97 prósent kjósenda samþykktu breytingarnar, en nærri 80 prósent af kosningabærum mönnum greiddu atkvæði.

Erlent
Fréttamynd

Hundruð flýja vegna skógarelda

Yfir 300 slökkviliðsmenn berjast nú við skógarelda sem breiðst hafa út um tæplega 7000 hektara svæði í úthverfum Los Angeles borgar að undanförnu. Mörg hundruð manns hafa orðið að flýja heimili sín og hefur eldurinn eyðilagt að minnsta kosti eitt hús og valdið stórskemmdum á fleirum, en óttast er að talan muni hækka mikið á næstu dögum.

Erlent
Fréttamynd

Sprengjuárás í Hillah

Um 200 manns hafa fallið í hryðjuverkaárásum í Írak undanfarna daga. Ljóst þykir að uppreisnarmenn ætla að kynda undir ófriðarbálinu í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórnarskrárdrög síðar í mánuðinum.

Erlent
Fréttamynd

Evrópubúar mjög drykkfelldir

Alþjóðaheilbrigðisstofnunin vekur í nýrri skýrslu athygli á því hversu margir látast af völdum áfengis eða sjúkdómum tengdum áfengi í Evrópu. Fram kemur að Evrópubúar drekka tvöfalt meira en meðaltalið er í heiminum en árið 2002 létust sex hundruð þúsund manns í Evrópu af völdum áfengis eða sjúkdóma tengdum neyslunni.

Erlent
Fréttamynd

Litlar skemmdir í hvassviðri

Björgunarsveit var kölluð út í gærkvöld þegar járnplötur fóru að fjúka úr bunka af plötum sem stóð við Gíslabæ á Hellnum á Snæfellsnesi og dreifðust víða um nágrennið. Annars gekk hvassviðrið, sem spáð var, öllu friðsamar yfir en búist var við. Í Reykjavík stóð það til dæmis ekki í nema um það bil tvær klukustundir um miðnæturbil og olli ekki vandræðum. Vindur fór þó upp í 40 metra á sekúndu í kviðum á Kjalarnesi.

Erlent
Fréttamynd

Fundu sundurbútað lík stúlku

Lögreglumenn í Lundúnum hafa fundið lík fimmtán ára stúlku sem saknað hafði verið síðan á mánudag. Lík stúlkunnar fannst sundurbútað í Catford í suðurhluta Lundúna eftir að lögregla var kölluð á staðinn í kjölfar tilkynningar um að maður hefði skorið sjálfan sig. Hann og kona hans voru bæði handtekin og sæta nú yfirheyrslum um morðið á stúlkunni.

Erlent
Fréttamynd

Alvarlegt umferðarslys í Póllandi

Að minnsta kosti ellefu eru látnir og tugir slasaðir eftir að skólabíll með hátt í 60 menntaskólanemum skall á vöruflutningabíl í austurhluta Póllands í dag. Reuters-fréttastofan hefur eftir slökkviliði á vettvangi að skólabíllinn hafi lent beint framan á vöruflutningabílnum, snúist á veginum og kjölfarið hafi kviknað í honum. Ungmenninn náðu mörg hver að forða sér úr rútunni en mörg þeirra brenndust illa.

Erlent
Fréttamynd

SÞ óánægðar með Serba

Sameinuðu þjóðirnar hafa lýst yfir óánægju sinni með árangur Serba við að ná stríðsglæpamönnum en Ratko Mladic er þar efstur á lista. Mladic hefur verið á lista stríðsglæpadómstólsins í Haag síðan árið 1995 en talið er að hann hafi stjórnað aftökum þúsunda múslíma á stríðstímum.

Erlent
Fréttamynd

Jörð skelfur á Papúa Nýju-Gíneu

Snarpur Jarðskjálfti skók Papúa Nýju-Gíneu í Suður-Kyrrahafi í gær. Ekki hefur fengið staðfest nákvæmlega hversu öflugur hann er en talið er að hann hafi verið á bilinu 6,1 til 6,8 á Richter. Engar fregnir hafa borist af manntjóni eða skemmdum á mannvirkjum en það gæti átt eftir að breytast þar sem skjálftinn var úti fyrir ströndum afskekktra héraða.

Erlent