Erlent
Dæmt vegna ódæðana í Beslan Allt stefnir í að eini eftirlifandi maðurinn sem átti aðild að hryðjuverkaárásinni á barnaskóla í Beslan fyrir um einu og hálfu ári verði sakfelldur. Hryðjuverkamenn hertóku skólann og héldu honum í þrjá daga, þar til hersveitir réðust á skólann og frelsuðu gíslana. 330 féllu í skotbardaganum sem fylgdi, meirihluti þeirra börn. Erlent 16.5.2006 09:39
Fangauppreisn lokið Uppreisn fanga í 70 fangelsum í Sao Paulo í Brasilíu er lokið og hafa um 200 gíslar verið látnir lausir. Minnst 80 hafa látist í öldu ofbeldis á svæðinu sem hófst á föstudaginn. Erlent 16.5.2006 08:34
Álag á krókódílaveiðimenn mikið Eftir þrjár bannvænar árásir krókódíla í síðastliðinni viku í Flórída í Bandaríkjunum hefur álagið hjá krókódílaveiðimönnum aldrei verið meira. Fjöldi símtala sem þeir fá hefur meira en þrefaldast og eru áhyggjur Flórídabúa miklar. Árásir krókódíla á menn eru fátíðar. Erlent 16.5.2006 08:11
Hamas viðurkenni ekki Ísraelsríki Ismail Haniyeh, forsætisráðherra Palestínumanna, hafnaði í gær kröfum alþjóðasamfélagsins um að Hamas-stjórn hans viðurkenni Ísraelsríki og afneitaði ofbeldismönnum. Þetta kom fram í ræðu sem hann flutti um tíu þúsund stuðningsmönnnum sínum í borginni Rafah á Gaza-ströndinni í gær. Erlent 16.5.2006 08:06
Enn hætta við Merapi Gas og grjót halda áfram að falla niður hliðar eldfjallsins Merapi á indónesísku eyjunni Jövu. Eitthvað virðist þó hafa hægst en eldfjallasérfræðingar vara þó við að gosið geti færst í aukana fljótlega þó það virðist í rénun nú. Erlent 16.5.2006 08:03
Þjóðvarðliðar að landamærum Bush Bandaríkjaforseti tilkynnti í gærkvöldi að hann ætlaði að senda allt að 6000 þjóðvarðliða til landamæranna að Mexíkó og er það liður í nýrri áætlun sem miðar að því að stemma stigu við straumi ólöglegra innflytjenda frá Mexíkó til Bandaríkjanna. Stjórnvöld í Mexíkó eru uggandi og stjórnmálaskýrendur segja áætlunina útþynnta. Erlent 16.5.2006 07:58
Jimmy Carter gagnrýnir Bandaríkjastjórn harðlega Jimmy Carter, fyrrum forseti Bandaríkjanna og handhafi friðarverðlauna Nóbels, gagnrýnir harðlega stefnu Bandaríkjastjórnar í málefnum Palestínu. Hann segir að komið sé fram við saklaust fólk eins og dýr eingöngu vegna þess að það kaus Hamas til að stjórna landinu. Erlent 15.5.2006 22:14
Veikindadögum fækkar Veikindaleyfi starfsfólks í Bretlandi voru með minnsta móti á síðasta ári en samkvæmt upplýsingum samtaka iðnaðarins á Bretlandi hafa veikindadagar ekki verið færri í 20 ár. Viðskipti erlent 15.5.2006 16:53
Heilbrigðiskerfið gjaldþrota ef ekki fæst fé Heilbrigðiskerfi Palestínumanna verður gjaldþrota innan tveggja mánaða ef Ísraelar og vesturveldin tryggja heimastjórninni ekki fé. Fjárskortur hefur þegar kostað sjúklinga lífið. Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, hvetur Ísraela til að setjast að samningaborðinu með sér og Hamas-liðum. Erlent 15.5.2006 11:41
Tilboð sem Íranar geti ekki hafnað Evrópusambandið ætlar að gera Írönum tilboð sem Javier Solana, utanríkismálastjóri sambandsins, segir að þeim muni reynast erfitt að hafna. Hann segir tilboðið djarft og gert í þeirri von að hægt verði að binda enda á kjarnorkudeilu Írana við vesturveldin. Erlent 15.5.2006 11:36
Réttarhöldin yfir Saddam halda áfram Réttarhöldin yfir Saddam Hússein, fyrrverandi Íraksforseta, hefjast á ný í Bagdad, höfuðborg Íraks, í dag. Verjendur Hússeins taka þá til við sinn málflutning en réttarhlé hefur verið í þrjár vikur. Erlent 15.5.2006 08:11
Neyðarástand vegna flóða í Bandaríkjunum Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í nokkrum fylkjum á austurströnd Bandaríkjanna vegna mikilla flóða. Mikið hefur rignt á Nýja Englandi og í Massachusetts og hafa ár flætt yfir varnargarða og skolað burt vegum á nokkrum svæðum. Erlent 15.5.2006 08:07
Gosið í Merapi færist í aukana Eldfjallið Merapi á indónesísku eyjunni Jövu spúir nú ösku, hrauni og eldgasi um 4 km leið niður vestari hluta fjallsins. Eldgosið í fjallinu hefur enn færst í aukana. Erlent 15.5.2006 08:05
Ætla ekki að hætta við að auðga úran Forseti Írans hafnaði í dag öllum tilboðum frá Evrópusambandinu sem fela í sér að Íranir hætti að auðga úran. Forsetinn, Mahmud Ahmadinejad, sagði í viðtali við íranska sjónvarpið að ekkert þýddi að bjóða Írönum sérkjör af nokkru tagi gegn tilslökunum í þróun kjarnorkuiðnaðar. Erlent 14.5.2006 16:10
Dæmdir í lífstíðarfangelsi fyrir sprengjuárásir Tíu félagar í herskáum samtökum í Bangladess hafa verið dæmdir í lífstíðarfangelsi fyrir aðild að sprengjuárásum í landinu í ágúst síðastliðnum. Þrír til viðbótar fengu 20 ára fangelsi fyrir að standa að árásunum en þær áttu sér stað í bænum Joypurhat. Erlent 14.5.2006 15:44
Íranar hætta að auðga úran Forseti Írans hafnaði í dag öllum tilboðum frá Evrópusambandinu sem fela í sér að Íranir hætti að auðga úran. Forsetinn, Mahmud Ahmadinejad, sagði í viðtali við íranska sjónvarpið að ekkert þýddi að bjóða Írönum sérkjör af nokkru tagi gegn tilslökunum í þróun kjarnorkuiðnaðar. Erlent 14.5.2006 12:07
Íbúar við Merapi snúa aftur þrátt fyrir ótta um aukna gosvirkni Tugir íbúa sneru aftur til heimkynna sinna við eldfjallið Merapi í Indónesíu í morgun, þrátt fyrir ótta um að eldgosið í fjallinu eigi eftir að færast verulega í aukana. Erlent 14.5.2006 11:50
Mannskæðar árásir í Írak í morgun Fjöldi sprengjuárása var gerður í Írak í morgun, bæði gegn guðshúsum og hernaðarmannvirkjum, með þeim afleiðingum að 26 að minnsta kosti létu lífið og sextíu eru sárir. Erlent 14.5.2006 11:46
Rússnesk stríðstól á leið út úr Georgíu Tugir tonna af rússneskum stríðstólum eru nú á lestarvögnum út úr Georgíu. Rússar hafa verið með bækistöðvar í Georgíu síðan landið fékk sjálfstæði frá Sovétríkjunum fyrir tæpum fimmtán árum. Erlent 14.5.2006 10:55
Síamstvíburar aðskildir í Bandaríkjunum Tvær fimm mánaða gamlar stúlkur í Bandaríkjunum sofa nú í sitthvoru rúminu í fyrsta sinn á sinni stuttu æfi eftir að skurðlæknar aðskildu þær í gærkvöldi. Stúlkurnar voru samvaxnar á brjóstkassa og maga. Erlent 13.5.2006 15:11
Tíu særðust í mótmælum við aðskilnaðarmúr Tíu manns hlutu sár í morgun þegar ísraelski herinn réðst til atlögu gegn Palestínumönnum sem voru að mótmæla aðskilnaðarmúrnum í nágrenni Jerúsalem. Innlent 13.5.2006 15:00
Réðust inn á heimili fyrrverandi yfirmanns CIA Bandaríska alríkislögreglan réðst í gær til inngöngu á heimili manns sem nýlega lét af störfum sem þriðji æðsti yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar, CIA. Fimm alríkisstofnanir tóku þátt í húsleitinni, sem var gerð samkvæmt leynilegum dómsúrskurði. Talsmenn þeirra vildu ekki segja hverju væri verið að leita að, en maðurinn - Kyle Foggo - er grunaður um spillingu í tengslum við verktakasamninga. Erlent 13.5.2006 10:50
Fellibylur veldur usla á Filippseyjum Fellibylurinn Tsjantsjú olli mikilli eyðileggingu um miðbik Filippseyja í nótt og leiddi til dauða að minnsta kosti 23 manna. Erlent 13.5.2006 10:04
Varað við hamförum við Merapi Eldfjallið Merapi í Indónesíu spúði eldi og ösku í morgun á meðan þúsundir íbúa aðliggjandi svæða flúðu heimili sín. Í morgun gáfu stjórnvöld út viðvörun um yfirvofandi hamfarir og skipuðu þúsundum manna sem búa á svæðinu að hafa sig á brott. Erlent 13.5.2006 10:01
Húsleit á heimili fyrrum yfirmanns CIA Bandaríska alríkislögreglan FBI gerði í dag húsleit á heimili Kyle "Dusty" Foggo fyrrverandi yfirmanns bandarísku leyniþjónustunnar CIA Erlent 12.5.2006 22:34
Clinton í Kaupmannahöfn Fjöldi fólks beið í gær í marga klukkutíma fyrir framan Hotel d´angleterre við Kongens Nytorv í Kaupmannahöfn í von um að berja augum Bill Clinton, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Erlent 12.5.2006 07:59
Hvetur til árása á Danmörku, Noreg og Frakkland Einn af forystumönnum al-Qaida samtakanna hvetur til árása á Danmörku, Noreg og Frakkland í nýju myndbandi sem birt var á Netinu í gær. Líbýumaðurinn Mohammed Hassan, sem slapp úr einu af fangelsum Bandaríkjanna í Afganistan í fyrra, hvetur til hefnda fyrir Múhameðsteikningarnar sem birtar voru á síðasta ári. Erlent 12.5.2006 07:58
Prestur dæmdur fyrir að myrða nunnu Bandarískur prestur var í gær dæmdur í 15 ára til lífstíðarfangelsi fyrir að hafa myrt nunnu árið 1980. Gerald Robinson hafði lengi unnið með Margaret Ann Pahl en hún var stungin til bana alls 31 sinni. Erlent 12.5.2006 07:46
Grunur um fuglaflensu í hænum í Svíþjóð Grunur leikur á að hænur í Svíþjóð séu smitaðar af fuglaflensu. Búið er að einangra bú nærri Orsa í Svíþjóð og hafa fuglar sem sýnt hafa flensueinkenni verið aflífaðir. Sýni hafa verið send til greiningar hjá embætti yfirdýralæknis. Þetta er í fyrsta sinn sem grunur leikur á að alifuglar hafi sýkst af fuglaflensu í Svíþjóð. Innlent 12.5.2006 07:44
Bandaríkjamenn hafna beinum samskiptum við Írana Bandaríkjastjórn hafnar öllum beinum samskiptum við yfirvöld í Íran og segir Írana hafa ýmsa möguleika til að komast í samband við yfirvöld vilji þau nýta sér þá. Erlent 12.5.2006 07:41