Tíu særðust í mótmælum við aðskilnaðarmúr 13. maí 2006 15:00 Ísraelskir hermenn fyglgja palestínskum börnum í skólann við Havat Maon í útjaðri Vesturbakkans. MYND/AP
Tíu manns hlutu sár í morgun þegar ísraelski herinn réðst til atlögu gegn Palestínumönnum sem voru að mótmæla aðskilnaðarmúrnum í nágrenni Jerúsalem. Fólkið var að mótmæla múrnum í nágrenni við þorpið Bilin, rétt hjá Ramalla, sem er um tuttugu mínútna akstur frá Jerúsalem á svæði Palestínumanna. Yfirvöld í Ísrael hafa undanfarnar vikur verið að fylla upp í göt á múrnum í nágrenni við Jerúsalem. Múrinn er farinn að hafa veruleg áhrif á Palestínumenn sem nálægt honum búa, en hann er enn í byggingu. Þegar verkinu er lokið verður um að ræða rúmlega 700 kílómetra múr sem skilur Ísraela að frá svæðum Palestínumanna. Múrinn fer sums staðar inn á svæði Palestínumanna og margir óttast að þótt eiginleg landamæri eigi að vera önnur, þá muni múrinn í raun aðgreina þau tvö þjóðfélög sem friðarsamningar gera ráð fyrir að þarna verði til frambúðar. Í átökunum í morgun skutu ísraelskir hermenn gúmmíkúlum á mótmælendur, með þeim afleiðingum að tíu hlutu sár. Ljósmyndari sem fékk skot í sig sagði að hermenn hefðu skotið af tíu til fimmtán metra færi, þótt ljóst hefði mátt vera að hann hefði verið að störfum, en ekki að mótmæla.
Erlent Fréttir Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira