Íþróttir

Fréttamynd

Woods í forystu, Els í erfiðleikum

Suður-Afríski kylfingurinn Ernie Els var ekki að gera gott mót á Mastersmótinu um helgina og lauk keppni í kvöld á 10 höggum undir pari og náði sér aldrei á strik á mótinu.

Sport
Fréttamynd

Bráðabani á Masters

Spennan er í hámarki á Mastersmótinu í golfi, sem fram fer á Augusta-vellinum í Bandaríkjunum og nú er að hefjast bráðabani milli Tiger Woods og Chris DiMarco um sigurinn á mótinu.

Sport
Fréttamynd

Barrera varði titil sinn í WBC

Mexíkóski boxarinn Jose Antonio Barrera varði titil sinn í fjaðurvigt WBC sambandsins nokkuð auðveldlega í nótt, þegar hann lumbraði á Suður-Afríkumanninum Mzonke Fana.

Sport
Fréttamynd

Loeb eykur forystu sýna

Heimsmeistarin Sebastien Loeb á Peugot hefur aukið forystu sýna í Nýja-Sjálands rallinu og hefur nú tæplega mínútu forskot á finnan Marcus Grönholm, sem er í öðru sæti.

Sport
Fréttamynd

Norðurlandamót í hópfimleikum

Norðurlandamót í hópfimleikum hefst í Laugardalshöll í dag klukkan 12.30. Stjarnan í Garðabæ verður á meðal þátttakenda en félagið varð í 4. sæti á Evrópumótinu sl. haust. Þá verður sveitaglíma Íslands í íþróttahúsi Hagaskóla kl. 15 í dag en Glímusamband Ísland heldur upp á 40 ára afmælið um þessar mundir.

Sport
Fréttamynd

Ólöf lauk á pari í dag

Ólöf María Jónsdóttir golfkona úr Keili lauk keppni eftir þriðja hring í 32.-40. sæti á golfmótinu á Kanaríeyjum í dag en hún lék hringinn í dag á pari. Ólöf er í sinni fyrstu keppni á evrópsku mótaröðinni. Ólöf fór fyrstu 9 holurnar í morgun á einu höggi undir pari, eða 35 höggum en samtals fékk hú 4 fugla á hringnum í dag, þann síðasta á 18. og síðustu holunni.

Sport
Fréttamynd

Ólöf að leika vel á Spáni

Ólöf María Jónsdóttir, kylfingur úr Golfklúbbnum Keili, lék þriðja hringinn á Tenerife-mótinu á evrópsku kvennamótaröðinni í golfi á 72 höggum eða pari vallarins. Hún hefur því leikið hringina þrjá á 218 höggum eða tveimur höggum yfir pari.

Sport
Fréttamynd

Félagaskipti Baldurs ógild

Samninga- og félagaskiptanefnd KSÍ úrskurðaði að tímabundin félagaskipti leikmannsins Baldurs Sigurðssonar úr Völsungi á Húsavík til Þórs á Akureyri voru ógild þar sem samningur á milli Þórs og Völsungs lá ekki fyrir. Nefndin átelur skrifstofu KSÍ fyrir að hafa ekki haft eftirlit með framkvæmd félagaskiptanna.

Sport
Fréttamynd

Loeb með 52 sekúndna forskot

Heimsmeistarinn í rallakstri, Frakkinn Sebastien Loeb, hefur 52 sekúndna forskot í Nýja-Sjálandsrallinu. Loeb vann fjórar af átta sérleiðum dagsins. Finninn Marcus Grönholm er annar og Norðmaðurinn Petter Solberg er þriðji.

Sport
Fréttamynd

Veðurguðirnir enn erfiðir

Enn setja veðurguðirnir strik í reikninginn á Mastersmótinu í golfi en keppni var frestað síðdegis í gær vegna úrhellis. Þá voru þrír kylfingar efstir og jafnir á fimm höggum undir pari, þeir Luke Donald, David Howell og Chris DiMarco.

Sport
Fréttamynd

Ólöf María að leika vel

Ólöf María Jónsdóttir, gofkona úr Keili er að gera fína hluti á Tenerife, þar sem hún er í sinni fyrstu keppni á evrópsku mótaröðinni.

Sport
Fréttamynd

Ólöf við það að tryggja sig inn

Ólöf María Jónsdóttir er enn inni í myndinni með að komast í gegn um niðurskurðinn á Tenerife-mótinu í golfi, sem er liður í Evrópumótaröðinni þegar lítið er eftir af öðrum keppnisdegi sem stendur nú yfir. Síðustu keppendur eru nú að tínast að lokaholunni og má búast við að úrslit liggi fyrir um 7 leytið.

Sport
Fréttamynd

Ólöf áfram í evrópsku mótaröðinni

Ólöf María Jónsdóttir var rétt í þessu að ná besta árangri sem íslenskur kylfingur hefur náð þegar hún komst í gegn um niðurskurðinn á Tenerife-mótinu í golfi, sem er liður í Evrópumótaröðinni. Hún er í 40.-46. sæti eftir tvo hringi en niðurskurðurinn í dag miðaðist við 4 högg yfir pari og því glæsilegur árangur hjá Ólöfu.

Sport
Fréttamynd

Ólöf vaxandi í Tenerife

Ólöf María Jónsdóttir úr GK er að leika á tveimur höggum yfir pari í Tenerife-mótinu á Evrópsku mótaröðinni sem stendur sem hæst á Kanaríeyjum.

Sport
Fréttamynd

Rigning og eldingahætta á Masters

Leik á öðrum degi bandaríska Masters mótsins í golfi var hætt í dag vegna rigningar og hættu á eldingum en leikið er á Augusta National vellinum í Georgíu. Erfiðlega hefur gengið að leika mótið sökum veðurs en leik verður þó haldið áfram í kvöld. Bein útsending hefst á Sýn nú kl. 20.00.

Sport
Fréttamynd

Ólöf María á 76 höggum á Tenerife

Ólöf María Jónsdóttir GK var rétt í þessu að ljúka við fyrsta hring sinn á Evrópsku mótaröðinni. Lék hún hringinn á 76 höggum eða 4 höggum yfir pari. Hringurinn var nokkuð köflóttur hjá henni en hún er með 4 fugla, fjóra skolla, 2 skramba og átta pör.

Sport
Fréttamynd

Tafir á Masters vegna veðurs

Þrumuveður og miklar rigningar gætu sett strik í reikninginn þegar fyrsta risamót ársins í golfi, US Masters, hefst á Agusta-vellinum í Bandaríkjunum í dag. Keppni hefur þegar verið seinkað vegna veðurs. 93 kylfingar eru skráðir til keppni en heimamaðurinn Phil Mickelson hefur titil að verja. Sýnt verður beint frá Masters-mótinu á Sýn klukkan hálfníu í kvöld.

Sport
Fréttamynd

Á fjórum höggum yfir pari

Ólöf María Jónsdóttir braut í gær blað í sögu kvennagolfsins á Íslandi þegar hún lék fyrsta hringinn á Tenerife-mótinu á evrópsku kvennamótaröðinni og varð þar með fyrsti íslenski kvennkylfingurinn til að gera slíkt.

Sport
Fréttamynd

Ólöf María á 2 yfir pari

Ólöf María Jónsdóttir, golfkona úr GR, lék á tveimur höggum yfir pari á fyrstu 9 holunum á fyrsta mótinu hennar á evrópsku mótaröðinni.

Sport
Fréttamynd

Ólöf María hefur leik

Ólöf María Jónsdóttir úr GK er að hefja leik á Evrópumótaröðinni í Golfi í dag, en hún er fyrsti íslenski kylfingurinn sem nær þeim árangri að komast inn á mótaröðina.

Sport
Fréttamynd

Malmö tapaði fyrsta úrslitaleiknum

Guðmundur Stephensen, Íslandsmeistari í borðtennis, og félagar hans í sænska liðinu Malmö FF töpuðu 5-1 fyrir Eslöv í fyrsta úrslitaleik liðanna um sænska meistaratitilinn í borðtennis. Guðmundur lék einn leik og beið lægri hlut, 3 - 1.

Sport
Fréttamynd

Keflvíkingar fá mann til reynslu

Keflvíkingar munu dagana 12.-16. apríl fá öflugan Svía til reynslu frá Örgryte, Mikhael Johansson að nafni. Johansson er tvítugur að aldri og hefur leikið með yngri landsliðum Svía.

Sport
Fréttamynd

Woods sigurstranglegur

Jack Nicklaus telur að Tiger Woods sé sigurstranglegastur fyrir Masters-mótið sem hefst á fimmtudaginn kemur.

Sport
Fréttamynd

Nýr framkvæmdastjóri hjá BAR

Gil De Ferran, fyrrum ökumaður í Indy Racing League, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri íþróttasviðs hjá BAR-Honda í Formúlu 1 kappakstrinum.

Sport