Sport

Ólöf við það að tryggja sig inn

Ólöf María Jónsdóttir er enn inni í myndinni með að komast í gegn um niðurskurðinn á Tenerife-mótinu í golfi, sem er liður í Evrópumótaröðinni þegar lítið er eftir af öðrum keppnisdegi sem stendur nú yfir. Ólöf lék á tveimur höggum undir pari í dag lauk keppni um kaffileytið og er á 2 höggum yfir pari samanlagt. Síðustu keppendur eru nú að tínast að lokaholunni og má búast við að úrslit liggi fyrir um 7 leytið. Ólöf átti erfitt uppdráttar í byrjun móts, en hefur vaxið ásmegin eftir að líða tók á keppnina og lék á 70 höggum í dag, eftir að hafa leikið á 76 höggum í gær. Þetta kemur fram á vef Víkurfrétta, sem fylgist grannt með mótinu á Spáni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×