Sport

Félagaskipti Baldurs ógild

Samninga- og félagaskiptanefnd KSÍ úrskurðaði að tímabundin félagaskipti leikmannsins Baldurs Sigurðssonar úr Völsungi á Húsavík til Þórs á Akureyri voru ógild þar sem samningur á milli Þórs og Völsungs lá ekki fyrir. Nefndin átelur skrifstofu KSÍ fyrir að hafa ekki haft eftirlit með framkvæmd félagaskiptanna. Á heimasíðu KSÍ segir að við þessu verður þegar brugðist og mun skrifstofa sambandsins hér eftir gera kröfu um skil á skriflegum samningi þegar tilkynning um tímabundin félagaskipti berst. Keflvíkingar hafa þegar sett sig í samband við Völsung og vilja fá Baldur að láni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×