Lærði að ganga og tala upp á nýtt: „Þessi röskun er ekkert grín“ Sindri Sverrisson skrifar 9. maí 2026 23:18 Ósk Gunnarsdóttir greindist með alvarlega taugaröskun en var mætt í Öskjuhlíðina í dag. Sýn/Bjarni Hlaupakonan Ósk Gunnarsdóttir var í hjólastól fyrir sex mánuðum, þurfti að læra að skríða, labba og tala upp á nýtt, en tókst eftir allt saman að mæta og taka þátt í Bakgarði 101 í morgun. Hún átti erfitt með að halda aftur af tárunum í viðtali í kvöld.
Ósk vaknaði einn laugardagsmorgun í haust og gat sig hvergi hreyft. Þessi mikla ofurhlaupakona, sem hljóp 36 hringi eða samtals 241 kílómetra í bakgarðshlaupinu fyrir ári síðan, var þá komin með alvarlega taugaröskun. Hún ræddi við Garp Elísabetarson og Tinnu Miljevic í Öskjuhlíðinni, á milli anna við að aðstoða manninn sinn, Aron Þór Leifsson, eftir að hafa sjálf hlaupið einn hring í morgun. „Hann [Aron] er að hlaupa fyrir mig því ég veiktist alvarlega og skyndilega. Ég vaknaði að morgni 25. október og var bara lömuð. Fyrst um sinn héldu menn að þetta væri heilablóðfall en ég sem sagt greinist með FND sem er taugaröskun sem kemur út frá magaveiru. Ég þurfti að læra að skríða, labba og allt saman upp á nýtt. Talið fór líka og ég þurfti að fara í talþjálfun,“ sagði Ósk. Hljóp fyrir konur í sömu sporum Sex mánuðum síðar er hún engu að síður farin að geta hlaupið að nýju, þvert á allar spár: „Ég var að hlaupa þennan eina hring í morgun fyrir hana Guðrúnu og fyrir Söru sem eru tvær hetjur sem berjast núna líka við FND, og eru í göngugrind og hjólastól. Þessi röskun er ekkert grín og ég þarf ekki að fara neitt nánar út í það.“ Guðrún, sem Ósk vísar í, er tíu ára stúlka sem greindist einnig með FND líkt og Ósk. „Ég bjóst alls ekki við að vera hérna. Ég gerði alls konar plön með mínu taugateymi og þetta var draumurinn, að ná að hlaupa einn bakgarðshring, en það var eiginlega of hátt markmið til að skjóta á,“ sagði Ósk sem vildi ekki fara of ítarlega út í hve ótrúlega erfiðan tíma hún væri búin að vera að ganga í gegnum. „Þetta er búið að vera ógeðslega erfitt. Ég fór að hágrenja þegar þetta var búið í morgun og er að berjast við að fara ekki að grenja núna,“ sagði Ósk en viðtalið við hana má sjá í spilaranum hér að ofan.
Hlaup Bakgarðshlaup Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Fótbolti Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Fótbolti Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Fótbolti Fleiri fréttir „Versta ár ævi minnar“ Heimavöllur PSG ónothæfur eftir hitabylgjur sumarsins Verstappen skrifaði undir nýjan samning Áfram ofsótt og eltihrellirinn ákærður að nýju Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Marcus Rashford búinn að fá nóg Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina „Takk fyrir mig körfubolti“ Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Landsliðskona í Val Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fanney í markinu fyrstu tvo leikina og sex stig komin í hús Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Eiður Smári þjálfar KA Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Pablo Bertone aftur í Val Lík fannst á leikvangi Charlton Monaco riftir samning við Pogba Keflavík heldur áfram að styrkja sig Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Daníel Guðjohnsen úr frystinum til Þýskalands Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Myndi taka kúlu fyrir Infantino Algjört risastökk Ólivers á heimslistanum Baleba færist nær United Sjá meira