Sport

Tugir hlupu af stað í Bakgarðshlaupinu

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Garpur I. Elísabetarson skrifa
Hressir hlauparar hófu keppni í morgun
Hressir hlauparar hófu keppni í morgun Sportmyndir/Gummi stóri

Bakgarðshlaupið fer fram í Öskjuhlíðinni núna um helgina. Keppnin er í beinni útsendingu á Vísi og fylgst er með nýjustu vendingum í vaktinni hér neðst.

Keppnin gengur út á það að hlaupa 6,7 kílómetra hring á klukkustund í eins margar klukkustundir og hlauparinn getur. Hlaupið er af stað á heila tímanum og hafa keppendurnir eina klukkustund til að ljúka hringnum. Alls eru 180 skráðir í hlaupið.

Guðjón Ingi Sigurðsson fór með sigur úr býtum í síðasta hlaupi í september 2025. Þá hljóp hann 43 hringi, á 43 klukkustundum, sem eru rúmir 288 kílómetrar. Þorleifur Þorleifsson á hins vegar Íslandsmetið en hann fór 62 hringi í október 2024.

Vert er að taka fram að hlaupari er ekki talinn hafa klárað hringinn nema hann fari yfir rásmarkið í byrjun þess næsta. Hringjafjöldinn á skjánum standa fyrir loknum hringjum.

Ef vaktin birtist ekki er ráð að endurhlaða síðunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×