Vestfirðingar sjá fram á þrenn ný jarðgöng Miklar vegabætur er ráðgerðar á Vestfjörðum á næstu fimmtán árum, þar á meðal þrenn ný jarðgöng, samkvæmt nýbirtri samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar. Þá verður Bíldudalur tengdur Dynjandisheiði með bundnu slitlagi. Innlent 11.12.2025 21:51
Áforma vinnuvélar í Hvalárvirkjun í vor Vesturverk stefnir að því að hefja undirbúningsframkvæmdir vegna Hvalárvirkjunar á Ströndum næsta vor eftir að Hæstiréttur hafnaði kröfu virkjunarandstæðinga um að jörðin Drangavík ætti hluta af vatnasviði virkjunarinnar. Fleiri kærumál eru hins vegar í gangi. Innlent 25.11.2025 21:10
Ítalski baróninn lagði landeigendur Hæstiréttur staðfesti í gær landamerki jarðarinnar Drangavíkur í Árneshreppi gagnvart jörðunum Engjanesi, Ófeigsfirði og Laugalandi í máli eigenda Drangavíkur á hendur ítalska baróninum Felix von Longo-Liebenstein, eiganda Engjaness, og fleirum, sem fóru með sigur af hólmi á öllum dómstigum. Tveir af fimm dómurum í málinu skiluðu sératkvæði og töldu að fallast hefði átt á kröfur eigenda Drangavíkur í öllu verulegu. Innlent 25.11.2025 11:31
Bíllinn ekki í handbremsu við sundlaug og rann niður kletta Bíll sem var staðsettur á bílastæði við Krossneslaug við Norðurfjörð á Ströndum rann af bílastæðinu og fram af kletti um hádegisleytið síðastliðinn laugardag. Talsvert sér á bílnum en engin slys urðu á fólki. Innlent 30. júlí 2024 14:31
Hrikalega spennandi grillkeppni á Kótilettunni Einar Bárðarson, tíðindamaður Vísis, fylgdist grannt með helstu grillkeppni landsins sem fram fór á Kótilettunni, nema hvar, um helgina. Lífið 15. júlí 2024 16:04
Sæmdur gullmerki í síðustu opinberu heimsókninni Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands var sæmdur gullmerki Ferðafélags Íslands á tindi Glissu í heimsókn sinni Árneshreppi í dag. Heimsóknin er síðasta opinbera heimsókn Guðna i embætti. Innlent 13. júlí 2024 18:47
Stefnt á að virkjun Hvalár geti hafist eftir tvö ár Hin umdeilda Hvalárvirkjun á Ströndum er aftur komin á fullt í undirbúningi. Samningur sem Vesturverk, dótturfélag HS Orku, og Landsnet gerðu á dögunum miðar við að virkjunarframkvæmdir geti hafist eftir tvö ár. Viðskipti innlent 12. júní 2024 21:12
Tæplega fimmtungur þjóðarinnar erlendir ríkisborgarar Tæplega fimmtungur landsmanna sem búsettur er hér á landi er af erlendu bergi brotinn. Þetta sýna nýjar tölur Þjóðskrár sem miðast við 1. desember síðastliðinn. Innlent 16. janúar 2024 10:07
Nauðsynlegt að nýr viti verði byggður Gjögurviti við Strandir í Árneshreppi er fallinn. Vitavörður telur líklegt að óveður seinni partinn í gær hafi gert út af við vitann, sem hafði staðið í rúma öld. Hann segir nauðsynlegt að nýr viti verði reistur hið snarasta. Innlent 16. desember 2023 22:24
Ísfirðingar opnir fyrir sameiningu Bæjarráð Ísafjarðarbæjar segir sveitarfélagið opið fyrir viðræðum um sameiningu við Árneshrepp. Hreppsnefnd Árneshrepps lýsti í síðasta mánuði yfir vilja til viðræðna við önnur sveitarfélög um sameiningu og óskaði jafnframt eftir að fá að fylgjast með umræðum í nágrannasveitarfélögum. Innlent 5. september 2023 10:11
Áfram Árneshreppur og hvað svo? Árneshreppur á Ströndum tók þátt í verkefni Byggðastofnunar „Brothættar byggðir“. Um er að ræða verkefni sem byggir á byggðaáætlun og er hluti af áætlun Byggðastofnunar til að aðstoða byggðarlög sem standa höllum fæti. „Áfram Árneshreppur“ en svo kallast verkefnið í Árneshreppi, var hrundið af stað árið 2018 og er nú komið á loka metrana. Skoðun 17. ágúst 2023 15:30
Líf og fjör víðast hvar um Verslunarmannahelgina Skemmtanahald um Verslunarmannahelgina hefur farið vel fram og enn sem komið er hafa engin stór mál komið á borð lögreglu á helstu útihátíðum. Mikil stemning hefur verið víða um landið. Lífið 5. ágúst 2023 23:15
Vonbrigði á Vestfjörðum og áfall í Árneshreppi vegna niðurskurðar Niðurskurður samgönguáætlunar seinkar uppbyggingu Vestfjarðahringsins um þrjú ár sem veldur Fjórðungssambandi Vestfirðinga miklum vonbrigðum. Í Árneshreppi eru íbúar í áfalli vegna áforma um að slá af marglofaðar vegarbætur, sem áttu að hefjast á næsta ári. Innlent 18. júlí 2023 23:33
Patreksfjörður í efsta sæti strandveiðanna Strandveiðunum þetta sumar lýkur að öllu óbreyttu í næstu viku en þá stefnir í að útgefinn kvóti klárist. Eftir fyrstu tvo mánuði er búið að landa afla í alls 49 höfnum og er Patreksfjörður í efsta sæti með mestan landaðan afla og fjölda báta. Innlent 4. júlí 2023 12:00
Þrjátíu milljónir til verslana í dreifbýli Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra hefur staðfest tillögur sérstakrar valnefndar sem fela í sér að þrjátíu milljónum króna verði úthlutað til verslunar í dreifbýli fyrir árin 2022 og 2023. Samningar vegna styrkjanna verða undirritaðir á næstu dögum. Viðskipti innlent 29. nóvember 2022 11:14
Óska eftir endurskoðun á Hvalárvirkjun og Eldvörpum á Reykjanesi Stjórn Landverndar hefur sent verkefnisstjórn 5. áfanga rammaáætlunar ósk um að taka aftur til skoðunar tvö landsvæði í orkunýtingarflokki. Annars vegar Hvalárvirkjun á Vestfjörðum og hins vegar Eldvörp á Reykjanesi. Innlent 11. nóvember 2022 16:18
Ungmennaþing á Vestfjörðum í fyrsta sinn um helgina Um fjörutíu ungmenni af öllum Vestfjörðum eru nú saman komin á Laugarhóli í Bjarnarfirði þar sem fyrsta ungmennaþing Vestfjarða fer fram. Mörg málefni eru á dagskrá, eins og um skólamál, einelti, umhverfismál og alþjóðamál. Innlent 5. nóvember 2022 15:04
Húsfyllir á forsýningu Svars við bréfi Helgu í Trékyllisvík Sérstök forsýning var á kvikmyndinni Svar við bréfi Helgu í Árneshreppi um helgina. Íbúar fjölmenntu í bíó. Lífið 29. ágúst 2022 14:01
Hvalárvirkjun aftur á dagskrá og tvö ár gætu verið í framkvæmdir Framkvæmdir við Hvalárvirkjun á Ströndum gætu hafist eftir tvö ár, að mati forstjóra HS Orku. Það er þó háð því að tilskilin leyfi verði fengin fyrir nauðsynlegum háspennulínum. Viðskipti innlent 2. júlí 2022 07:07
Lokaniðurstöður úr Árneshreppi Kjörsókn í sveitarstjórnarkosningunum í Árneshreppi var 82,9 prósent. Úlfur Eyjólfsson frá Krossnesi er fyrsti aðalmaður í sveitarstjórn. Innlent 18. maí 2022 17:44
Komast ekki til strandveiða vegna þungatakmarkana á þjóðveginum Strandveiðarnar hófust í morgun og er búist við að um og yfir sjöhundruð bátar stundi veiðarnar þetta sumarið. Í Norðurfirði á Ströndum, einni aflahæstu höfninni, neyddust sjómenn þó til að fresta brottför þar sem þungatakmarkanir á þjóðveginum norður í Árneshrepp meina flutningabílum að sækja aflann. Innlent 2. maí 2022 12:41
Lentu þyrlu Gæslunnar á borgarísjaka Landhelgisgæsla Íslands lenti þyrlu sinni, TF-GNA, á gríðarstórum borgarísjaka sem staðsettur var djúpt norður af Vestfjörðum síðdegis í gær. Innlent 2. febrúar 2022 17:26
Landhelgisgæslan varar við borgarísjaka Landhelgisgæsla Íslands varar við borgarísjaka sem er um 20 sjómílur norður af Selskeri á Húnaflóa. Áhöfnin á varðskipinu Þór sigldi fram hjá ísjakanum um hádegisbil í dag. Innlent 1. febrúar 2022 17:16
Vilja staðfestingu á að friðlýsingin hafi ekki áhrif út fyrir landamörk Dranga Eigendur Ófeigsfjarðar, jarðar í Árneshreppi, hafa óskað eftir staðfestingu á að nýleg friðlýsing Dranga hafi engin áhrif út fyrir landamörk Dranga. Innlent 15. desember 2021 10:39