Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Kona var í dag flutt á sjúkrahús í kjölfar eldsvoða í Kópavogi þar sem hún hafði andað að sér reyk er hún flúði út um stigagang fjölbýlishúss. Eldur hafði komið upp í nærliggjandi kjallaraíbúð. Innlent 20.4.2026 18:04
Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Allt tiltækt slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna tilkynningar um reyk í fjölbýlishúsi í Kópavogi við Fossvog. Upp kom eldur í kjallaraíbúð, Furugrund 42 en miklar skemmdir urðu á íbúðinni vegna eldsins. Innlent 20.4.2026 15:58
Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi „Við höfum náð ótrúlegum árangri í leikskólum Kópavogs með tilkomu Kópavogsmódelsins,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi. Kópavogsbúar kynna stoltir að í fyrsta skipti fá öll tólf mánaða börn leikskólapláss í Kópavogi. Innlent 20.4.2026 10:31
Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust tilkynningar um líkamsárás í Kópavogi og húsbrot og eignaspjöll í Hafnarfirði í gærkvöldi eða nótt. Innlent 16. apríl 2026 08:38
Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Bíll hafnaði á endurvinnslustöð Sorpu við Dalveg í eftirför lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Ekki urðu miklar skemmdir á endurvinnslustöðinni. Innlent 14. apríl 2026 20:54
Það þarf kjark til að byggja bæ til framtíðar - Kópavogur er í sókn Ég er fæddur og uppalinn í Kópavogi og bý í dag á Kársnesi með fjölskyldunni minni. Í daglegu lífi skiptir máli að grunnþjónustan virki – að rusl sé hirt, snjómokstur í lagi og leikskólar mannaðir. Skoðun 14. apríl 2026 10:15
Kvíðakast einstæðingsins Hugsum okkur gamlan mann í Kópavogi, köllum hann Kristján. Hann veikist skyndilega. Kannski eftir fall, veikindi eða einfaldlega vegna þess að heilsan hefur smám saman versnað. Hann fer á spítala, fær þar góða þjónustu og kemst svo í endurhæfingu. Þar gengur honum betur. Hann nær sér að hluta og er sendur heim. Skoðun 14. apríl 2026 08:32
Þörf eftir sértæku húsnæði fyrir yngri en 25 muni „fara verulega vaxandi“ Nokkuð löng bið getur verið eftir plássi í skammtímadvöl í Kópavogi og eftir sértæku húsnæði. Tuttugu börn biðu í lok mars eftir dvöl í skammtímadvöl, elsta umsóknin er frá því í ágúst 2021. Þá bíða 28 eftir sértæku húsnæði. Meðalaldur umsækjenda er 39 ár og segir í samantekt velferðarsviðs bæjarins að þörfin muni fara verulega vaxandi hjá þeim sem yngri eru en 25 ára. Innlent 14. apríl 2026 07:55
Bæjarstjóri Kópavogs lýsir yfir sárum vonbrigðum með efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi, segir stjórnvöld hafa misst tökin á efnahagsástandinu og hún beini spjótum að öllum öðrum en sér sjálfum. Ásdís er ómyrk í máli. Innlent 10. apríl 2026 16:37
Guðmundarlundur á bólakafi Útivistarsvæðið Guðmundarlundur í Kópavogi minnir frekar á stöðuvatn en útivistarsvæði eftir storma og tilheyrandi leysingar. Framkvæmdarstjóri Skógræktarfélags Kópavogs segir vatnshæðina hafa náð tæplega metra þegar mest var. Allt horfi til betri vegar og skipulagðar fermingarveislur um helgina fari fram. Innlent 10. apríl 2026 13:14
Spjaldtölvur í námi nemenda - verkfæri djöfulsins? Ég kynntist fyrst notkun spjaldtölva í námi nemenda sem kennari í innleiðingu spjaldtölva í Kópavogi árið 2015. Á þeim tíma kenndi ég stærðfræði á unglingastigi og sá fljótt þau miklu tækifæri sem opnuðust þegar allir nemendur fengu aðgang að eigin spjaldtölvu. Skoðun 10. apríl 2026 07:33
Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Lágvöruverðsverslunin Prís tekur nú við peningum í formi seðla og mynta á nýjum afgreiðslukössum þar sem starfsmaður afgreiðir hvern viðskiptavin fyrir sig. Frá því að verslunin var opnuð fyrir tuttugu mánuðum hefur hún aðeins verið með sjálfsafgreiðslukassa og ekki tekið við reiðufé. Viðskipti innlent 8. apríl 2026 11:25
Eru grunnskólar Kópavogs að gera börnin okkar að skjáfíklum? Nýverið gerði ég þau „mistök“ að velta upp áhyggjum um aukna skjáfíkn barna og vakti athygli á hlutverki grunnskóla í þeirri þróun, þá sérstaklega í Kópavogi þar sem spjaldtölvuvæðing grunnskóla hefur farið fram. Skoðun 8. apríl 2026 10:02
Tveir fluttir á sjúkrahús eftir að eldur kviknaði í bílskúr Tveir voru fluttir á sjúkradeild eftir að kviknaði í bílskúr við íbúðarhús í Kópavogi. Dælubílar frá öllum fjórum slökkvistöðum höfuðborgarsvæðisins voru sendir á vettvang. Innlent 8. apríl 2026 07:14
Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Einungis munaði örfáum mínútum að eldri borgari á níræðisaldri yrði fyrir glerbroti úr rúðu þegar bárujárn fauk inn um glugga á svefnherbergi í Fannborg í Kópavogi. Innlent 7. apríl 2026 19:02
Harma að íbúar hafi verið í hættu við Fannborg Mannverk verktakafyrirtæki harmar að hætta hafi skapast vegna foks við Fannborg í óveðri í gær. Í yfirlýsingu kemur fram að staðið hafi til að ljúka niðurrifi þaks á framkvæmdasvæði fyrir páska en það hafi gengið hægar en áætlað hafði verið. Niðurrifinu var því hætt um kvöldmatarleyti á miðvikudegi fyrir páska. Innlent 7. apríl 2026 18:20
Stakk og skar fórnarlambið á háls Grískur karlmaður sem er ákærður fyrir að drepa portúgalskan karlmann á Kársnesi í Kópavogi í nóvember er sagður hafa stungið og skorið fórnarlamb sitt á háls. Fórnarlambið er sagt hafa látist vegna meiriháttar blóðmissis. Innlent 7. apríl 2026 11:58
Um stafrænt skólaumhverfi barna í Kópavogi Sonur minn sem er í 2. bekk í grunnskóla í Kópavogi sagði við mig um daginn að hann hlakkaði til að byrja í 5. bekk. Ég gerði fyrst ráð fyrir því að ástæðan væri sú að hann kemur til með að flytjast yfir í hinn hverfisskólann fyrir 5.-10.bekk, en þegar leið á samtalið kom annað í ljós. Barnið mitt sem hefur haft aðgang að spjaldtölvu frá upphafi skólagöngu sinnar hlakkar svo mikið til að byrja í 5. bekk því að þá fær hann að taka spjaldtölvuna með sér heim. Það segir sitt um hversu stóru hlutverki þessi tæki eru farin að gegna í lífi barnanna okkar. Skoðun 7. apríl 2026 11:30
Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Íbúi í Fannborg í Kópavogi segir stórhættu hafa verið á ferðum í dag þegar þungar bárujárnsplötur fuku af vinnusvæði á nærliggjandi byggingar. Plöturnar hafi brotið rúðu og valdið öðrum skemmdum á íbúðabyggingu. Hann gagnrýnir verktaka og lóðarhafa harðlega fyrir að hafa ekki búið betur um svæðið fyrir óveðrið í dag. Innlent 6. apríl 2026 22:12
Lágir skattar og góð þjónusta fara saman í Kópavogi Á þessu kjörtímabili hefur núverandi meirihluti í Kópavogi markvisst lagt áherslu á ábyrgan rekstur bæjarfélagsins, hagræðingu og að skila ávinningnum í formi skattalækkana og bættrar þjónustu til heimila og fyrirtækja í bænum. Skoðun 3. apríl 2026 13:03
Stjórnstöð í Kópavogi sem líkist geimferðamiðstöð Í skrifstofubyggingu í Smárahverfi í Kópavogi er stjórnstöð þakin svo mörgum tölvuskjám að minnir á geimferðamiðstöð. Stöðin á það sammerkt með NASA að þar sitja einnig sérfræðingar við skjái að fylgjast með að allt gangi vel í ferðum á fjarlægum slóðum. Innlent 2. apríl 2026 07:47
Neitar að hafa myrt mann á Kársnesi Grískur karlmaður á fertugsaldri, sem ákærður hefur verið fyrir að stinga annan mann til bana í íbúð við Skjólbraut í Kópavogi í nóvember, neitar sök í málinu. Innlent 30. mars 2026 10:16
Amma er farin í „sveitina”… Þegar ég var barn þá voru gæludýrin send í sveitina þegar þau voru orðin gömul og veik. Ég man að ég ímyndaði mér sveitabæ fullan af gömlum og veikum gæludýrum og lét mig dreyma um að gera mér ferð á þennan tiltekna sveitabæ. Hins vegar var „sveitin” lengra í burtu en sunnudags bítúrarnir leyfðu og sá ég því þessi gæludýr aldrei framar. Skoðun 30. mars 2026 10:02
Neitaði að segja til nafns og hafði í hótunum við lögreglu Einn var handtekinn í hverfi 108 í gærkvöldi eða í nótt fyrir brot á lögreglusamþykkt. Í dagbók lögreglu kemur fram að hann hafi neitað að segja til nafns og hafi svo hótað lögreglu með ofbeldi. Fram kemur í dagbók að fjórir hafi gist í fangageymslu eftir nóttina. Innlent 30. mars 2026 07:42