„Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi segir að útboð vegna byggingar stúku við Kórinn, sem nú hefur verið dæmt ólöglegt, beri öll merki þess að Kópavogsbær hafi flýtt sér of mikið við gerð þess. Engin tilviljun sé að fyrsta skóflustunga hafi átt að vera tekin daginn fyrir kjördag í vor. Innlent 1.10.2026 12:16
Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Georgios Ntentes, sem er ákærður fyrir morðið á Edilsson Martin Zingara á Kársnesi í nóvember 2025, var sagður hafa verið í uppnámi þegar vitni við aðalmeðferð málsins sagði honum frá andlátinu. Hinn látni hafði neytt kókaíns áður en hann lést. Innlent 1.10.2026 11:33
Bíl ekið á ljósastaur Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var í gærkvöld eða nótt tilkynnt um að bíl hefði verið ekið á ljósastaur. Í dagbók lögreglu kemur fram að engin slys hafi orðið á fólki en bíllinn hafi verið tjónaður. Ekki kemur fram hvar áreksturinn átti sér stað en tilkynning barst til Stöðvar 2 sem sér um Garðabæ, Hafnarfjörð og Álftanes. Innlent 1.10.2026 06:16
Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent 30.9.2026 21:48
Hló að svari sambýliskonunnar Eiginkona Georgis Ntentes, sem er ákærður fyrir að hafa myrt Edilsson Martin Zingara á Kársnesi, segist hafa sofið allt kvöldið og ekki vitað neitt hvað hefði átt sér stað. Innlent 29. september 2026 16:17
Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Karlmaður á fimmtugsaldri er í haldi lögreglu grunaður um að hafa veist að konu á fertugsaldri í íbúð í Kópavogi. Áverkar konunnar eru sagðir alvarlegir. Innlent 29. september 2026 15:37
Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Konur sem voru nánar hinum látna í meintu manndrápsmáli á Kársnesi gáfu skýrslu fyrir dómi við aðalmeðferð málsins. Þær lýstu því þegar þær komu að hinum látna þar sem hann lá á jörðinni á heimili sínu. Innlent 29. september 2026 14:29
Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Grískur karlmaður neitar því að hafa myrt portúgalskan karlmann í Kópavogi á síðasta ári. Farið var ítarlega yfir frásögn mannsins við aðalmeðferð málsins og sönnunargögn, þar á meðal eldhúshníf, skóför og götótta hettupeysu. Innlent 29. september 2026 11:34
Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um umferðarslys í dag þar sem ekið var á hjólamann í hverfi 200 í Kópavogi. Sá hlaut minni háttar áverka en var sendur á bráðamóttöku til frekari skoðunar. Er þetta meðal þeirra mála sem koma fram í yfirliti lögreglu um störf dagsins. Innlent 28. september 2026 17:57
Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Breiðholtsbraut verður lokuð að hluta til frá því snemma í fyrramálið og langt fram á kvöld vegna malbikunarframkvæmda. Innlent 25. september 2026 17:21
Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fimm karlmenn hafa verið ákærðir fyrir nauðgun, sérstaklega hættulega líkamsárás, frelsissviptingu og hótanir í garð manns í ágúst árið 2023. Þeim er meðal annars gefið að sök að hafa troðið járnröri inn í endaþarm mannsins og svo stungið því í munn hans. Einn þeirra er ákærður fyrir að hafa tekið athæfið upp á myndskeið og deilt því í spjallhópinn „Fótbolti á Boys“ á samfélagsmiðlinum Snapchat. Innlent 25. september 2026 14:39
Fimm ára dómur Norberts staðfestur Karlmaður að nafni Norbert Walicki hefur verið dæmdur til fimm ára fangelsisvistar í Landsrétti fyrir tilraun til manndráps, með því að skera mann á háls með eldhúshnífi. Árásin átti sér stað á gistiheimili í Kópavogi í júní 2023. Innlent 25. september 2026 10:29
Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða Gunnar Dofri Ólafsson, sviðsstjóri þjónustu- og samskiptasviðs Sorpu, segir það til skoðunar að fara í mál við fólk sem skilur sorp eftir við grenndargáma sem ekki á að fleygja þar. Það varði við lög að skilja rusl eftir á víðavangi og hæsta sekt geti numið einni milljón króna. Innlent 24. september 2026 21:00
Barnið ekki í viðeigandi öryggisbúnaði Ökumaður var í gær kærður af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu fyrir að gæta þess ekki að hafa barn sitt í viðeigandi öryggis- og verndarbúnaði. Atvikið átti sér stað í umdæmi lögreglustöðvar 3 sem sinnir Breiðholti og Kópavogi. Innlent 24. september 2026 06:21
Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Kópavogsbær ætlar að skoða hvort fólk þurfi að hafa búið á Íslandi í tiltekinn tíma til að fá fulla fjárhagsaðstoð. Bæjarstjóri vísar til danskra reglna og segir hlutfall útlendinga meðal þeirra sem fá aðstoð hjá bænum hafa hækkað úr 33 í 71 prósent frá árinu 2021. Engar vísbendingar séu þó um misnotkun kerfisins. Innlent 21. september 2026 12:57
Náum verðbólgunni aldrei niður ef ríkið hægir ekki á sér Bæjarráð Kópavogs skorar á ríki og sveitarfélög að takmarka gjaldskrárhækkanir gagnvart barnafjölskyldum. Bæjarstjórinn segir það vonbrigði að ríkið hækki allar gjaldskrár um 5,2 prósent. Við náum ekki tökum á verðbólgunni ef ríkið keyrir upp sínar gjaldskrár langt umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans. Innlent 20. september 2026 14:29
Tuttugu lögðu ólöglega Lögreglan þurfti að sinna fjölda ökumanna í nótt sem voru í órétti. Að undanskildu einu innbroti er dagbók lögreglu í dag undirlögð umferðarlagabrotum. Innlent 20. september 2026 08:27
Eldur í bíl í Heiðmörk Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út eftir miðnætti í nótt vegna eldsvoða í bíl í Heiðmörk nærri Rauðhólum. Innlent 20. september 2026 01:25
Fluttur á lögreglustöð til að sanna hver hann væri Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti í dag útkalli þar sem ökumaður var handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Sá reyndist einnig vera með hníf á sér og án ökuréttinda. Þegar farþegi í bílnum neitaði að framvísa skilríkjum var hann fluttur á lögreglustöð eitt til þess að sanna hver hann væri. Innlent 19. september 2026 18:39
Eftirlýstur og með vopn á sér Eftirlýstur einstaklingur var handtekinn og vistaður í fangaklefa Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt eftir að lögregla hafði af honum afskipti og fann á honum vopn. Innlent 19. september 2026 07:13
Alelda bíll í Kópavogi Eldur logar í bíl sem stendur við Fífuhvamm í Kópavogi. Innlent 16. september 2026 22:34
Dularfullt drónaflug í Kópavogi vekur íbúum ugg Íbúar í efri byggðum Kópavogs lýsa yfir áhyggjum af óútskýrðu drónaflugi yfir bænum á kvöldin. Þeir óttast að dróninn sé nýttur til myndatöku þar sem honum sé flogið nálægt fjölbýlishúsum. Innlent 16. september 2026 20:00
Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Maður sem er grunaður um að skjóta annan mann í höndina á heimili síðarnefnda mannsins í Kópavogi í vor vildi í fyrstu meina að fjórir arabískir menn sem hefðu selt þeim sveppi hafi verið að verki. Síðan breytti hann framburði sínum og sagði að um slys hafi verið að ræða. Innlent 13. september 2026 22:00
Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Deildarstjóri samgangna hjá Reykjavíkurborg segir ekki hagkvæmt að gera gatnamót Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar fullmislæg nú. Vegagerðin telur ljósastýrðu lausnina geta annað umferð vel í tuttugu ár eftir opnun, þótt bílferðum á höfuðborgarsvæðinu sé spáð að fjölga verulega. Innlent 11. september 2026 15:14
Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Rekstrarniðurstaða samstæðu Kópavogsbæjar, A- og B-hluta, er 306 milljónum krónum betri en gert var ráð fyrir í áætlunum. Samstæðan er hins vegar neikvæð um 112 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Innlent 10. september 2026 15:02