Fréttir
Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um 1,2 milljarða Gjaldeyrisforði Seðlabanka Íslands jókst um 1,2 milljarða króna í janúarmánuði og nam hann 68,5 milljörðum króna í lok mánaðarins. Aukning gjaldeyrisforðans er tilkomin vegna reglubundinna kaupa Seðlabankans á gjaldeyri á innlendum markaði. Innlent 6.2.2006 17:35
Myndlistaskólinn í Reykjavík fékk hæsta styrkinn Menntaráð Reykjavíkur úthlutaði í dag styrkjum til fræðslu- og þróunarverkefna fyrir næsta skólaár. Alls námu styrkirnir sjötíu milljónum króna. Lögð var áhersla á verkefni sem tengjast samstarfi leik- og grunnskóla, kennslu bráðgerra barna og ensku- og íslenskukennslu fyrir nýbúabörn. Alls hlutu áttatíu og sex skólar styrk, misháa þó, og hlaut Myndlistaskólinn í Reykjavík hæsta styrkinn að uppghæð tíu milljónir og fjögurhundruð þúsund krónur til styrktar myndlistarnáms grunnskólanemenda í Reykjavík. Þá hlutu sex tónlistarskólar styrk en það er í fyrsta sinn tónlistarskólar hljóta styrk frá menntaráði. Innlent 6.2.2006 17:45
Slíta viðskiptatengslum við Danmörku Íranar hafa slitið öllum viðskiptatengslum við Danmörku. Þetta sagði viðskiptaráðherra Írans í viðtali við írönsku fréttastofuna ISNA fyrir stundu. Frá og með morgundeginum yrði engum dönskum vörum hleypt inn á viðskiptasvæði sem Íran hefði stjórn yfir. Á síðasta ári nam sala á dönskum vörum í Íran tæplega átján milljörðum íslenskra króna. Erlent 6.2.2006 17:33
Skipar verkefnisstjórn vegna búsetumála geðfatlaðra Félagsmálaráðherra hefur skipað verkefnisstjórn sem falið er að hafa umsjón með uppbyggingu búsetuúrræða og þjónustu við geðfatlaða í samræmi við þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að verja milljarði króna af söluandvirði Símans til verkefnisins. Innlent 6.2.2006 17:29
Náði ekki tilætluðum árangri og hættir því "Ég náði ekki tilætluðum árangri og þess vegna tók ég ákvörðun um að vera ekki með á listanum," segir Anna Kristinsdóttir, borgarfulltrúi R-listans, um ástæðu þess að hún tekur ekki sæti á framboðslista Framsóknarflokksins í næstu borgarstjórnarkosningum. Hún bauð sig fram í 1. sæti í prófkjöri flokksins en endaði í 2. sæti. Innlent 6.2.2006 17:21
Vill 439 milljarða dollara til varnarmála 2007 George Bush Bandaríkjaforseti hefur lagt til að Bandaríkjamenn eyði 439 milljörðum dollara í varnarmál árið 2007. Það samsvarar ríflega tuttugu og fimm þúsund milljörðum króna. Erlent 6.2.2006 17:17
Telja að sá markaður sem Sena er á eigi eftir að vaxa Dagsbrún hefur keypt allt hlutafé í útgáfufyrirtækinu Senu. Sena er hluti af Degi Group og með kaupunum fylgir tónlistarútgáfa, umboð fyrir tölvuleiki, þrjú kvikmyndahús, tónlistarveitan tonlist.is og fleira. Greitt er fyrir kaupin annars vegar með 1.600 milljónum í reiðufé og hins vegar með hlutafé í Dagsbrún. Sena er útgáfuhluti gömlu Skífunnar en Róbert keypti Skífuna af Norðurljósum árið 2004. Bréf í Dagsbrún hafa hækkað um tæp 3% í dag. Innlent 6.2.2006 17:03
Leikskólakennarar farnir að draga uppsagnir til baka Leikskólakennarar í Reykjavík eru farnir að draga uppsagnir sínar til baka eftir að borgarráð samþykkti að hækka laun þeirra í samræmi við tillögur launanefndar sveitarfélaga. Innlent 6.2.2006 16:32
Útgáfufyrirtækið Sena selt Róber Melax eigandi Dags Group hefur ákveðið að selja útgáfufyrirtækið Senu. Samkvæmt heimildum NFS er það Dagsbrún sem kaupir Senu. Sena er stærsti útgáfuaðili tónlistar á Íslandi og rekur meðal annars þrjú kvikmyndahús. Sena er útgáfuhluti gömlu Skífunnar en Róbert keypti Skífuna af Norðurljósum árið 2004. Innlent 6.2.2006 16:13
Íranar segja viðræðum við Bandaríkin lokið Íranar útiloka frekari viðræður við Bandaríkjamenn um kjarnorkumál, eftir að málefnum þeirra var vísað til öryggisráðs Sameinuðu Þjóðanna. Erlent 6.2.2006 16:12
Danir hvattir til að forðast 14 lönd Dönsk stjórnvöld hvetja Dani eindregið til að ferðast ekki til fjórtán landa í heiminum, þar sem múslimar hafa hótað að drepa danska ríkisborgara. Erlent 6.2.2006 16:08
Kostnaður við mötuneyti um 580 milljónir á ári Samkvæmt fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir að kostnaður við matvæli í mötuneytum grunnskóla borgarinnar sé um 410 milljónir króna á ári og annar sérstakur kostnaður vegna mötuneyta sé um 170 milljónir. Kostnaðurinn við mötuneytin er því samtals um 580 milljónir króna. Innlent 6.2.2006 16:00
Varað við fljúgandi hálku á Öxnadalsheiði Lögreglan á Akureyri varar við fljúgandi hálku á Öxnadalsheiði. Að sögn lögreglunnar hafa þó engin óhöpp orðið í dag en hún segir að við þeim hafi legið í nokkrum tilvikum. Hálkan mun vera mjög lúmsk og eru ökumenn hvattir til að fara sér hægt og gæta fyllstu varúðar. Innlent 6.2.2006 15:54
Náttúrufræðingar semja við borgina Félag íslenskra náttúrufræðinga hefur samið við Reykjavíkurborg um kaup og kjör um fimmtíu félagsmanna sinna sem starfa hjá borginni. Samningurinn var undirritaður í síðustu viku og gildir út október 2008. Innlent 6.2.2006 15:31
Tveggja mánaða fangelsi fyrir áfengisstuld Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag mann á sextugsaldri til tveggja mánaða fangelsisvistar þar sem annar mánuðurinn er skilorðsbundin til tveggja ára fyrir fjársvik og þjófnað tengdu áfengi. Innlent 6.2.2006 15:20
Nokkur afskipti af ökumönnum vegna hraðaksturs Lögreglan í Hafnarfirði hafði afskipti af 45 ökumönnum í síðustu viku vegna umferðarlagabrota. 28 Ökumenn voru stöðvaðir vegna hraðaksturs og þrír vegna gruns um ölvun við akstur. Hraðamælingar voru gerðar í íbúðahverfum og voru þrír ökumenn stöðvaðir í tengslum við hraðakstur þar. Innlent 6.2.2006 14:03
Lögreglan á Ísafirði óskar eftir upplýsingum varðandi fíkniefnamisferli Lögreglan á Ísafirði hyggst auka eftirlit með aðilum sem grunaðir eru um meðferð fíkniefna. Almenningur er hvattur til að hafa samband við lögregluyfirvöld ef einhver grunur kviknar um meðhöndlun fíkniefna eða annað fíkniefnamisferli og þeim er heitið nafleynd sem til hennar leitar með upplýsingar. Þá er einnig ráðgert að auka eftirlit með ætluðum útivistarreglubrotum unglinga og meintri ölvun. Innlent 6.2.2006 13:11
Lögregla hefur afskipti af ökumönnum á torfærutækjum Lögreglan á Hvolsvelli hafði afskipti af nokkrum ökumönnum torfærutækja og vélhjóla í síðustu viku. Ökumennirnir reyndust ekki hafa ökuréttindi til akstursins og þar að auki þá voru torfærutækin og vélhjólin ekki skráð og því ekki með skráninganúmer. Innlent 6.2.2006 13:00
Samþykkt að nýta sér heimildir til launahækkunar Bæjarráð Akureyrarbæjar og Dalvíkurbyggðar hafa samþykkt að nýta sér heimildir sem samþykktar voru af Launanefnd sveitafélaga 28. janúar síðastliðinn. Um er að ræða tímabundnar launagreiðslur umfram gildandi kjarasamninga við stéttafélögin Einingu-Iðju, Kjöl og Félag leikskólakennara. Innlent 6.2.2006 11:54
Ráðist á höfuðstöðvar ferjufyrirtækis Til óeirða kom í morgun fyrir utan höfuðstöðvar egypsks fyrirtækis sem gerði út ferju sem sökk í Rauðahaf fyrir helgi. Um 1400 farþegar og rúmlega 200 manna áhöfn voru um borð þegar ferjan sökk og er 800 enn saknað. Erlent 6.2.2006 12:24
Líbanir biðjast afsökunar Líbanski innanríkisráðherrann hefur sagt af sér vegna árásar mótmælenda á ræðismannsskrifstofu Dana í Beirút, höfuðborg Líbanon. Líbönsk stjórnvöld hafa beðið Dani afsökunar á árásinni en reiðir mótmælendur kveiktu í vegna skopmynda af Múhameð spámanni sem birtust í Jótlandspóstinum fyrir nokkrum mánuðum. Erlent 6.2.2006 12:17
Eitt stærsta fíkniefnamál sem komið hefur upp í Leifstöð Enginn hefur verið handtekinn til viðbótar við karl og konu á þrítugsaldri sem voru handtekin í Leifsstöð við komu frá París á föstudag, eftir að um það bil fjögur kíló af amfetamíni fundust í farangri þeirra. Innlent 6.2.2006 11:39
Fyrsti andlitságræðsluþeginn fyrir almennings sjónir Fyrsti andlitságræðsluþegi í heimi kom í morgun fram fyrir almennings sjónir í fyrsta sinn. Isabelle Dinoire, er tæplega fertug frönsk kona, móðir tveggja barna. Isabelle skaddaðist alvarlega í andliti þegar hundur hennar réðst á hana. Hún gekkst undir andlitságræðsluna í lok nóvember í fyrra og að sögn lækna hafa aðgerð og eftirmeðferð gengið framar vonum. Erlent 6.2.2006 12:13
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar yrði aðskilin Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar yrði alveg aðskilin frá starfssemi Varnarliðsins, þótt hún tæki við af þyrlusveit þess. Engin knýjandi þörf væri að flytja hana frá Reykjavík til Keflavíkur, ef til yfirtökunnar kæmi. Innlent 6.2.2006 11:33
60 teknir fyrir of hraðan akstur Tæplega 60 manns voru teknir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Blönduósi um helgina. Einn ökumaðu rmældist á rúmlega 130 km hraða en hann var á pallbíl og samkvæmt lögum má hann ekki keyra hraðar en á 80 km hraða. Hann á von á hárri sekt vegna athæfisins eða um 40 þúsund króna sekt. Greiði hann innan mánaðar lækkar sektin um 10 þúsund krónur. Innlent 6.2.2006 11:28
Hákarl tefur sundkeppni Stöðva þurfti eina stærstu sundkeppni í Ástralíu í gær þegar þriggja metra langur hákarl fór að elta þátttakendur, þeim til mikillar skelfingar. Keppnin fór fram undan strönd Sydney var um það bil hálfnuð þegar vart varð við hákarlinn. Erlent 6.2.2006 10:58
Skotið á danska hermenn í Írak Skotið var á danska hersveit í írösku borginni Basra í gær. Danska útvarpið greinir frá því að sveitin hafi verið að aðstoða hóp barna sem ekið hafi verið á þegar skotið var á hermennina. Erlent 6.2.2006 10:55
Lyfjafræðideild HÍ með bestu skil á einkunnum Skrifstofustjórar og deildarforsetar lyfjafræðideildar, viðskipta- og hagfræðideildar og verkfræðideildar við Háskóla Íslands, fengu á föstudag afhentar viðurkenningar fyrir góða frammistöðu við einkunnaskil. Viðurkenningarnar koma frá fulltrúum stúdenta við Háskóla Íslands en það hefur lengi verið baráttumál stúdenta að einkunnaskil séu innan þeirra marka sem lög og reglur skólans kveða á um. Innlent 6.2.2006 10:42
Heimsafli á grásleppu minnkar um fjórðung á milli ára Heimsafli á grásleppu minnkaði um fjórðung frá árinu 2004 til 2005. Þetta kom fram á fundi fulltrúa veiðimanna og framleiðenda grásleppukavíars, LUROMA, sem haldin var í London í síðustu viku. Grásleppuhrogn voru verkuð í rúmlega 32. þúsund tunnur á síðasta ári sem er um 10 þúsund tunnum minna en árið 2004. Innlent 6.2.2006 10:34
Bæjarstjórnarfulltrúum boðið á kynningu í leikskólum Félag leikskólakennara í Vestmannaeyjum hefur boðið fulltrúum úr bæjarstjórn, fræðslufulltrúa og formanni fræðslu- og menningarráðs að koma og kynna sér starfið á leikskólum bæjarins. Kynningin verður 14. febrúar næstkomandi og mun standa yfir í fjóra tíma. Innlent 6.2.2006 09:59
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent