Fréttir

Fréttamynd

Óttast að gripið verði til vopna

Rýming síðustu landnemabyggðanna á Gaza gekk stórátakalaust. Hins vegar kom til átaka milli hermanna og landtökumanna á Vesturbakkanum í gær og óttast menn að þar komi til vopnaðra átaka í dag

Erlent
Fréttamynd

Sprengja sprakk nærri sendiráðsbíl

Tveir starfsmenn sendiráðs Bandaríkjanna í Afganistan særðust lítillega þegar vegsprengja sprakk nærri bílalest þeirra við höfuðborgina Kabúl í dag. Talsmaður sendiráðsins vildi ekki greina frá því hverjir hefðu særst og neitaði að svara því hvor sendiherrann sjálfur, Ronald Neumann, hefði verið í bílalestinni.

Erlent
Fréttamynd

40 starfsmenn vantar í 9 leikskóla

Af fimmtán leikskólum í Grafarvogi og Grafarholti sem Fréttablaðið spurðist fyrir hjá í gær eru aðeins sex fullmannaðir, en hina vantar nú þegar starfsmenn eða sjá fram á að þá vanti upp úr næstu mánaðamótum þegar sumarafleysingafólk hættir störfum.

Innlent
Fréttamynd

Breskra hermanna minnst

Karl Bretaprins fór í gær fyrir hátíðlegri athöfn til að minnast þess að sextíu ár eru liðin frá því að Japan gafst upp í síðari heimsstyrjöldinni en það markaði einnig lok hennar. Athöfnin var tileinkuð þeim hermönnum sem börðust fyrir hönd Breta í Austurlöndum fjær.

Erlent
Fréttamynd

Tóku öflugan jarðbor í gagnið

Öflugur jarðbor var tekinn í notkun við Miðfellsvatn í dag, en tryllitækið getur borað 150 metra á klukkustund í gegnum urð og grjót án þess að raska yfirborðinu.

Innlent
Fréttamynd

Kominn af gjörgæsludeild

Strætisvagnabílstjórinn sem slasaðist alvarlega í umferðarslysi á mótum Laugavegar og Kringlumýrarbrautar á föstudag er kominn af gjörgæsludeild en liggur áfram á Landspítalanum í Fossvogi. Hann hefur beðið fréttastofuna að koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem aðstoðuðu á slysstað, lögreglumanna, sjúkraflutningamanna og vegfarenda, auk þeirra sem hafa annast hann á sjúkrahúsinu.

Innlent
Fréttamynd

Ástarvikan hafin í Bolungarvík

Ástarvikan hófst í Bolungarvík í dag. Megintilgangurinn er að fjölga Bolvíkingum og það er að mörgu að huga. Bolvíkingar hvetja nú hvern annan til að borða egg og sjávarfang, náttúruleg frjósemislyf.

Innlent
Fréttamynd

Discovery loks til Flórída

Geimferjan Discovery er nú loks komin aftur til Flórída þaðan sem hún lagði af stað síðla júlímánaðar áleiðis til alþjóðlegu geimstöðvarinnar. Eins og kunnugt er lenti ferjan í allnokkrum vandræðum við flugtak á Canarveral-höfða á Flórída þegar gat kom á einangrun hennar og var jafnvel óttast að hún myndi farast þegar hún kæmi aftur til jarðar.

Erlent
Fréttamynd

Fjórum sleppt eftir yfirheyrslur

Þremur piltum og stúlku sem urðu vitni að morðinu á Hverfisgötu í gærkvöldi var sleppt í gærkvöldi eftir yfirheyrslur. Fjórði maðurinn var handtekinn í gærkvöldi þar sem talið var að hann gæti varpað frekari ljósi á atburðinn og verður hann yfirheyrður í dag. Hinn grunaði var í gær dæmdur í tíu daga gæsluvarðhald. Ekki fengust upplýsingar um það hjá lögreglunni hvort hinn grunaði hafi játað verknaðinn.

Innlent
Fréttamynd

Lést af völdum hnífsstungu

Tvítugur karlmaður lést af völdum hnífsstungu í húsi í Hverfisgötu 58 í Reykjavík í morgun. Fernt er í haldi lögreglu vegna málsins og verður ákveðið síðar í dag hvort gæsluvarðhalds verður krafist yfir einhverjum fjórmenninganna. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar var maðurinn stunginn í hjartastað og er talið að hann hafi látist samstundis.

Innlent
Fréttamynd

Hirtu þrjú tonn af kókaíni af báti

Sjóherinn á Frönsku Gvæjana lagði á sunnudaginn hald á þrjú tonn af kókaíni af fiskibáti frá Venesúela. Frá þessu greindu yfirvöld á staðnum í dag. Eftir ábendingu frá bandarísku strandgæslunni fylgdust frönsk yfirvöld með bátnum og létu loks til skarar skríða á fransk-gvæjönsku hafsvæði.

Erlent
Fréttamynd

Á þriðja hundrað viðburða

Menningarnótt Reykjavíkur er haldin í dag, í tíunda sinn. Hátíðin hófst með maraþonhlaupi í morgun og síðan rekur hver atburðurinn annan.

Innlent
Fréttamynd

Vegagerð í friðland kærð

Vegarslóði frá Unaðsdal á Snæfjallaströnd upp á Dalsheiði hefur nú verið gerður jeppafær ofan í Leirufjörð í Jökulfjörðum.

Innlent
Fréttamynd

Batt, pyntaði og myrti

Dómstóll í Sedgwick-sýslu í Kansas dæmdi á fimmtudaginn Dennis Rader, betur þekktan sem BTK, í tífalt lífstíðarfangelsi. Þar með er endi bundinn á harmleik sem rekur sig þrjátíu ár aftur í tímann.

Erlent
Fréttamynd

Systkin í sviðsljósinu

Íslenskar systur unnu maraþon og hálfmaraþon kvenna í Reykjavíkur-maraþoninu meðan sænskir bræður voru jafn sigursælir í maraþoni og hálfmaraþoni karla.

Innlent
Fréttamynd

Tugþúsundir í miðbænum í dag

Tugþúsundir manna arka nú um miðbæ Reykjavíkur og fylgjast með fjölbreyttri dagskrá Menningarnætur. Gert er ráð fyrir allt að hundrað þúsund manns í miðbænum í kvöld.

Innlent
Fréttamynd

Handrit Einsteins fundið

Handrit að ritgerð sem Albert Einstein birti árið 1925 fannst í skjalasafni Leiden-háskóla í Hollandi á dögunum.

Erlent
Fréttamynd

Lögreglumenn vegnir í Dagestan

Að minnsta kosti þrír lögreglumenn létust og fjórir særðust þegar bílsprengja sprakk í Dagestan í Rússlandi í dag. Interfax-fréttastofan greinir frá því að bíll, sem var hlaðinn sprengiefni, hafi sprungið við eina aðalumferðaræðina í Makhachkala, höfuðborg Dagestans, í þann mund sem lögregla ók þar fram hjá í eftirlitsferð.

Erlent
Fréttamynd

Dæmdar bætur vegna áhrifa lyfs

Kviðdómur í Texas dæmdi í gær ekkju Bandaríkjamanns sem lést í kjölfar notkunar á verkjalyfinu Vioxx 253 milljónir bandaríkjadala í bætur. Það jafngildir 16,5 milljörðum króna. Búist er við að þessi upphæð lækki verulega við áfrýjun en hlutabréf í Merck's, sem framleiðir Vioxx, féllu skarpt þegar fréttirnar bárust.

Erlent
Fréttamynd

Gripnir með marijúana

Þrír menn voru handteknir í nótt á Reykjanesbraut þar sem lítilræði af marijúana fannst við leit í bíl þeirra. Mennirnir voru látnir lausir eftir yfirheyrslu. Þá var tilkynnt um minni háttar líkamsárás í heimahúsi í Grindavík í nótt, en hún hefur ekki verið kærð.

Innlent
Fréttamynd

Ráðist á flokksskrifstofur í Írak

Byssumenn réðust á skrifstofur Lýðræðisflokks Kúrdistans í Kirkuk í norðurhluta Íraks í dag og særðu þrjá menn sem stóðu vörð um skrifstofurnar. Árásin kom í kjölfar mótmæla í borginni á vegum arabískra stjórnmálamanna sem eru andvígir því að Írak verði sambandsríki. Þeir telja að með því muni Kúrdar ná völdum í borginni.

Erlent
Fréttamynd

Íslam verði meginuppspretta laga

Íslam verður „meginuppspretta“ íraskra laga og þingið mun starfa eftir reglum trúarinnar. Þetta eru nýjustu boð samningamanna sem sitja við gerð írösku stjórnarskrárinnar. Þeir eru nú þegar komnir fram yfir þann frest sem þeir gáfu sér í upphafi til að ljúka við fyrstu drög og ef þetta gengur í gegn er greinilegt að sjítar eru farnir að gefa eftir, en þeir hafa verið sammála megináherslu Bandaríkjastjórnar um að aðalatriði stjórnarskrárinnar eigi að snúast um lýðræði og mannréttindi.

Erlent
Fréttamynd

Teknir í Kópavogslaug í nótt

Lögreglan í Kópavogi stöðvaði sundleikfimi tveggja rúmlega tvítugra pilta í Kópavogslauginni í nótt, en þeir höfðu brotist þar inn og farið í laugina. Sundferðin hjá piltunum verður þó nokkuð kostnaðarsöm því kalla þurfti sundlaugarvörðinn út sem þurfti að hreinsa til eftir piltana.

Innlent
Fréttamynd

Skorar á múslima að sýna samstöðu

Á fundi með múslimaleiðtogum í Köln í Þýskalandi í gær fordæmdi Benedikt páfi XVI "grimma öfgahyggju" hryðjuverkamanna og skoraði á múslima að taka höndum saman með kristnum mönum í baráttunni gegn þeim.

Erlent
Fréttamynd

Hlupu til styrktar sykursjúkum

Yfir tvö hundruð Kanadamenn tóku þátt í Reykjavíkurmaraþoninu í morgun. Fólkið var í líflegum búningum en hópurinn hleypur til styrktar rannsóknum á sykursýki í Kanada.

Innlent
Fréttamynd

Vilja starfa nafnlausir í fangelsi

Norskir fangaverðir eru farnir að krefjast þess að starfa nafnlausir af ótta við hefndaraðgerðir fanga. Verðirnir vilja fá að skrifa nafnlausar skýrslur og sömuleiðis að bera vitni án þess að nafn þeirra komi fram. Verðirnir segja að fangarnir hóti þeim iðulega og því ættu þeir öryggisins vegna að fá að starfa nafnlaust eða undir dulnefni.

Erlent
Fréttamynd

Flóð valda usla í Rúmeníu

Flóð halda áfram að valda usla í Rúmeníu, en síðustu fjóra daga hafa 14 manns látist og 1200 þurft að yfirgefa heimili sín vegna þeirra. Alls hafa 200 hús eyðilagst og 5.500 skemmst í flóðunum, að sögn innanríkisráðherra Rúmeníu, og þá eru 88 þorp án rafmagns.

Erlent
Fréttamynd

Kosið í Palestínu 25. janúar

Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, greindi frá því í dag að þingkosningar í landinu færu fram 25. janúar á næsta ári. Upphaflega áttu þær að fara fram í júlí síðastliðnum en yfirvöld í Palestínu frestuðu þeim og báru við vandræðum með kosningalöggjöf og brottflutningi Ísraela frá landnemabyggðum á Gasa og Vesturbakkanum.

Erlent
Fréttamynd

Tvítugur maður stunginn til bana

Tvítugur Reykvíkingur var stunginn til bana í kjallaraíbúð við Hverfisgötu 58 í gærmorgun. 23 ára karlmaður var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald, grunaður um að hafa stungið hinn látna í vinstra brjóstholið. Þeir voru saman í samkvæmi í húsinu ásamt húsráðendum, karli og konu á fimmtugsaldri, og karlmanni um tvítugt.

Innlent
Fréttamynd

Stöðugur straumur í miðborgina

Stöðugur straumur er nú niður í miðborg Reykjavíkur þar sem Menningarnótt er í algleymingi. Að sögn lögreglu hefur allt gengið vel hingað til og býst hún við fólki haldi áfram að fjölga í miðbænum enda veður betra en spár gerðu ráð fyrir.

Innlent