Sveitar­stjórnar­kosningar 2026

Sveitar­stjórnar­kosningar 2026

Fréttir og greinar tengdar sveitastjórnarkosningum sem fram fóru 16. maí 2026.

Fréttamynd

Bíða með breytingar eftir liðs­skipti Helga Áss fram yfir kosningar

Sjálfstæðismenn í borgarstjórn hafa dregið til baka tillögur um greiðslur til varaborgarfulltrúa sem þeir lögðu fram eftir að fyrsti borgarfulltrúi þeirra sagði skilið við þá í vetur. Fulltrúi þeirra segir tillögurnar lagðar fram eftir kosningar þegar nýr meirihluti verður kominn með umboð.

Innlent
Fréttamynd

Stjórn­sýslan hafi lagt undir sig landið og miðin

Pistill Halldórs Armands í Sunnudagsmogganum hefur sannarlega hitt í mark en þar fjallar hann um kerfi sem er að vaxa okkur yfir höfuð. Halldór gerir því skóna að þetta sé vegna þess að Íslendingar telji að hin sturlaða yfirbygging sé vegna þess að við teljum okkur þurfa að sanna fyrir umheiminum að við séum ekki kotbændur heldur þjóð meðal þjóða. Niðurstaðan er hins vegar nöturleg.

Innlent
Fréttamynd

Oddvitaáskorun: Mjög til í að vera smiður

Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum.

Lífið
Fréttamynd

„Mér finnst það ekki sið­ferðis­lega rétt“

Fjöldi íbúa með ótilgreint heimilisfang hefur margfaldast í Grímsnes- og Grafningshreppi frá síðustu kosningum. Sveitarstjóri segir ekki siðferðislega rétt ef fólk skráir lögheimili sitt í sveitarfélaginu fyrir kosningar og svo til baka að þeim loknum og kallar eftir betri upplýsingagjöf frá Þjóðskrá.

Innlent
Fréttamynd

Sé gríðar­lega nei­kvætt fyrir sam­fé­lagið í heild sinni

Í nýjasta þætti af Ísland í dag var ferðinni heitið á Austurland. Þar virðist sem samgöngumál, þá sérstaklega áform um Fjarðarheiðargöng, brenni á íbúum. Annars var algengt að fólk nefndi skipulagsmál, þjónustu við aldraða og skólamál aðspurt hvað væri aðkallandi. Í kjölfar breytinga á tilhögun leikskólavistar í Fjarðabyggð hafa konur tekið á sig að minnka starfshlutföll sín.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta er náttúru­lega al­gjör­lega fá­rán­legt“

Oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík segir kreditkortafærslur borgarstjóra með korti borgarinnar alvarlegt mál en að hans mati hefur borgarstjóri gefið nægilegar skýringar á færslunum og svarað vel fyrir sig. Hann segir kenningar um að einhver innan Samfylkingarinnar reyni að ná höggi á Heiðu fáránlegar.

Innlent
Fréttamynd

Oddvitaáskorunin: Þekktur sem Iceman í Noregi

Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum.

Lífið
Fréttamynd

„Sá gamli er miklu fal­legri“

Lillý Valgerður Pétursdóttir fréttamaður Sýnar brá sér austur á dögunum til að taka púlsinn á íbúum varðandi komandi sveitarstjórnarkosningar. Hún komst að ýmsu merkilegu – samgöngumálin voru vitaskuld efst á baugi – en í Fljótsdal rakst hún á kjörgrip sem nú, samkvæmt tilskipan yfirkjörstjórnar, hefur lokið leik. Aldargamall kjörkassi.

Innlent
Fréttamynd

Myndskeiðið byggi á „netmemi og tölvuleikjamenningu“

Ungliðar Miðflokksins í Mosfellsbæ koma myndbandi flokksins til varnar en þar mátti sjá ungan miðflokksmann veita pólitískum andstæðingi sínum kjaftshögg. Þeir segja myndbandið vísun í þekkt „meme“ og tölvuleikjamenningu. Þeir taka fram að oddvitar meirihlutans, sem fordæmdu myndskeiðið, séu ótengdir við unga fólkið í bæjarfélaginu.

Innlent
Fréttamynd

„Auð­vitað hef ég í­hugað það“

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri segist „auðvitað hafa íhugað“ að einhver hafi verið að reyna að koma höggi á sig með því að vekja athygli á kreditkortafærslum hennar í borgarstjóraembætti. Hún vill ekki svara því hvort hún telji andstæðinga eða jafnvel samflokksmenn sína standa þar að baki. Heiða segist ekki íhuga stöðu sína vegna málsins.

Innlent
Fréttamynd

Gagn­rýna mynd­band Mið­flokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“

Oddvitar meirihlutans í Mosfellsbæ, Viðreisnar, Framsóknar og Samfylkingar, hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir fordæma harðlega kosningamyndband Miðflokksins í Mosfellsbæ. Þar má sjá ungan mann ganga út af kjörstað eftir að hafa kosið Miðflokkinn og kýla mann sem kallaður er „libbi“ áður en hann sest upp í bíl. Oddviti Miðflokksins sakar andstæðinga sína um ritskoðun en myndbandið er horfið af síðu flokksins.

Innlent
Fréttamynd

„Ég elska þennan flug­völl“

Flugvöllurinn, flugið og flokkarnir er yfirskrift fundar sem hófst nú síðdegis á Hótel Loftleiðum á vegum Flugmálafélags Íslands. Þar voru fulltrúar allra framboða spurðir um afstöðuna sína til flugvallarins.

Innlent