Múlaþing

Múlaþing

Mannfjöldi: 5.232 (2025). Flatarmál: 10.671 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Egilsstaðir, Seyðisfjörður, Brúarás, Eiðar, Fellabær, Hallormsstaður, Djúpivogur, Borgarfjörður eystri.


Fréttamynd

Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpa­vogs

Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir að sérlega varasamar aðstæður verði í kvöld milli Hafnar og Djúpavogs vegna hvassviðris. Leiðin sé þekkt fyrir algenga og skeinuhætta sviptivinda. 

Veður

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Lax­eldi á Seyðis­firði

Mikil umræða hefur skapast um fyrirhugaða starfsemi Kaldvíkur í Seyðisfirði. Það er eðlilegt enda snertir málið framtíð fjarðarins, atvinnulíf, náttúru og samfélag. Skoðanir eru skiptar og mikilvægt að ólík sjónarmið fái að heyrast.

Skoðun
Fréttamynd

Stöndum með Seyðis­firði!

Hversu skýrt þurfa Seyðfirðingar að segja nei áður en á þá er hlustað? Matvælastofnun hefur gefið út leyfi fyrir sjókvíaeldi í Seyðisfirði, þvert á vilja 75% Seyðfirðinga sem eru andvígir áformunum. Seyðfirsku grasrótarsamtökin VÁ hafa haldið uppi hetjulegri baráttu gegn þessum áformum og boða nú til mótmæla gegn þeim á sunnudaginn 11. október klukkan 15:00 á Austurvelli.

Skoðun
Fréttamynd

Tíu manns veitt sál­gæsla eftir bana­slysið

Tveir ferðamenn sem fluttir voru þungt haldnir til Reykjavíkur á laugardag eftir fjögurra bíla árekstur á Austurlandi þar sem tveir aðrir létust eru ekki lengur í lífshættu. Samkvæmt upplýsingum frá Rauða krossinum var um tíu manns veitt sálgæsla vegna slyssins.

Innlent
Fréttamynd

Mennirnir sem létust voru feðgar

Mennirnir sem létust í skotárásinni í Halden í Noregi í morgun voru feðgar á áttræðis- og fimmtugsaldri. Þriðji maðurinn er alvarlega slasaður og liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi.

Erlent
Fréttamynd

„Auð­vitað alltaf erfitt að koma að svona vett­vangi“

Mikill fjöldi fólks kom að aðgerðum á Jökuldalsheiði í gær þegar fjögurra bíla árekstur varð við Háreksstaðakvísl. Það voru meðal annars aðilar frá björgunarsveitunum, Landhelgisgæslunni, lögreglunni, Rauða krossinum og slökkviliðinu sem sinntu viðbragðinu. Tveir létust í slysinu og tveir voru fluttir alvarlega slasaðir til Reykjavíkur og eru þungt haldnir.

Innlent
Fréttamynd

Átta í bílunum fjórum: Sumir al­var­lega slasaðir

Hópslysaáætlun var virkjuð á Austurlandi vegna fjögurra bíla áreksturs á Jökuldal við Háreksstaðakvísl í dag. Tilkynnt var að átta væru um borð í bifreiðunum og einhverjir alvarlega slasaðir. Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar, björgunarsveitarmenn, lögregla, sjúkralið og Rauði krossinn taka þátt í aðgerðum. Slysið er talið alvarlegt. 

Innlent
Fréttamynd

Austur­land margborgar sig

Austurland leggur meira til ríkissjóðs en það fær til baka. Tekjur ríkissjóðs sem rekja má til landshlutans eru áætlaðar 54,2 milljarðar króna á ári en útgjöldin 45,5 milljarðar. Nettóframlag Austurlands er því 8,7 milljarðar króna á ári.

Skoðun
Fréttamynd

Hvað veistu um… Djúpa­vog?

Djúpivogur er lítið og fallegt þorp á sunnanverðum Austfjörðum, þekkt fyrir rólegt yfirbragð, fallegt umhverfi og sterka tengingu við sjávarútveg.

Lífið
Fréttamynd

„Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“

Benedikta Guðrún Svavarsdóttir er hláturmildur framkvæmdastjóri á Seyðisfirði, hún gerir góðan mat og hefur gaman af því að bjóða fólki í gusur. En hún er einnig grjótharður nagli, formaður Vár – félags um verndun fjarðar og berst nú með oddi og egg gegn ráðabruggi um að koma niður sjókvíum í Seyðisfirði. Þar hefur dregið til tíðinda á undanförnum vikum og dögum.

Innlent
Fréttamynd

Gæti þaggað niður í röddum lands­byggðarinnar

Forseti sveitarstjórnar Múlaþings segir að nýjar tillögur um að færa þingsæti á milli kjördæma geti þaggað niður rödd heilu byggðasvæðanna. Það að öll atkvæði gildi jafnt sé ekki endilega sanngjarnt.

Innlent
Fréttamynd

„Það þarf að hreinsa að­eins loftið“

Formaður heimastjórnar Múlaþings segir það hafa komið sér og öðrum fulltrúum Múlaþings í opna skjöldu að starfsleyfi hafi verið gefið út til fiskeldis í firðinum. Það séu vonbrigði að frumvarp um breytingar á lögum um lagareldi hafi ekki gengið í gegn á síðasta vorþingi. 

Innlent
Fréttamynd

„Þetta er full­komið á­fall“

Félag um vernd Seyðisfjarðar er hvergi nærri af baki dottið þrátt fyrir að Kaldvík AS hafi fengið rekstrar-og starfsleyfi í gær til fiskeldis í firðinum. Formaður segir undirskriftarsöfnun hafa sýnt fram á að meirihluti bæjarbúa vilji fara aðrar leiðir til atvinnuuppbyggingar í firðinum.

Innlent
Fréttamynd

Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á lands­byggðinni

Skattahækkun á baðlón bítur fastast á landsbyggðinni, segir Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri Múlaþings. Hún segir Vök við Egilsstaði hafa gjörbylt ferðaþjónustu á Austurlandi og óttast að áform ríkisstjórnarinnar leiði til lokunar baðlónsins hluta úr ári og stöðvi frekari uppbyggingu.

Innlent
Fréttamynd

Andar­nefja í andar­slitrunum á Djúpa­vogi

Andarnefja varð innlyksa í háflóði á Djúpavogi í morgun, rak á land í Brandsvík og hefur verið föst þar síðan. Íbúar hafa staðið í ströngu við að ausa yfir andarnefjuna sjó og standa vonir til að hún komi sér sjálf út í flóði. Um tíma virtist hvalurinn of örmagna til að bjarga sér sjálfur en er byrjuð að sprikla.

Innlent
Fréttamynd

Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili

Maðurinn sem lést í Stuðlagili á mánudag hét Piotr Sójka og var 39 ára gamall pólskur ríkisborgari. Piotr var búsettur í Póllandi en var á ferðalagi hérlendis.

Innlent