Mikael ekki með í landsleikjunum vegna meiðsla Mikael Neville Anderson verður ekki með íslenska landsliðinu í leikjunum gegn Slóvakíu og Portúgal vegna meiðsla. Fótbolti 8. júní 2023 17:29
Hamsik gæti spilað gegn Íslandi þrátt fyrir að skórnir séu farnir á hilluna Slóvakíski knattspyrnumaðurinn Marek Hamsik lék það sem átti að vera hans seinasti leikur er Trabzonspor vann öruggan 5-1 sigur gegn Alanyaspor í tyrknesku úrvalsdeildinni í knattspyrnu síðastliðinn laugardag. Hann er þó óvænt í landsliðshópi Slóvakíu sem mætir Íslandi á Laugardalsvelli 17. júní. Fótbolti 8. júní 2023 16:30
Forseti Fiorentina kallaði West Ham-menn skepnur Forseti Fiorentina hefur kallað West Ham United-menn skepnur vegna framferðis þeirra í úrslitaleik Sambandsdeildar Evrópu í gær. Fótbolti 8. júní 2023 16:00
Inter Miami reynir einnig fá Di María og Busquets Inter Miami ætlar sér greinilega stóra hluti í bandarísku MLS-deildinni í knattspyrnu á komandi mánuðum. Lionel Messi er á leið til félagsins og nú berast fréttir af því að liðið ætli sér einnig að klófesta þá Ángel Di María og Sergio Busquets. Fótbolti 8. júní 2023 15:31
Búið að lofa Rice að hann megi fara David Sullivan, stjórnarformaður enska úrvalsdeildarfélagsins West Ham, segir að Declan Rice hafi að öllum líkindum leikið sinn seinasta leik fyrir félagið er West Ham vann 2-1 sigur gegn Fiorentina í úrslitum Sambandsdeildarinnar í gær. Sullivan hafi verið búinn að lofa Rice að hann megi fara í sumar. Fótbolti 8. júní 2023 15:00
HM-sætið hefði skilað stelpunum okkar að minnsta kosti fjórum milljónum á mann Í fyrsta sinn í sögunni fá leikmenn á HM kvenna í knattspyrnu, sem fram fer í Ástralíu og Nýja-Sjálandi í sumar, greitt beint frá Alþjóðaknattspyrnusambandinu FIFA. Stelpurnar okkar í íslenska landsliðinu hefðu þannig fengið að minnsta kosti fjórar milljónir króna á mann. Fótbolti 8. júní 2023 14:31
Hareide uppljóstrar liðinu á Ölveri: „Finnur þetta hvergi annars staðar“ Nýi landsliðsþjálfarinn Åge Hareide hefur samþykkt að mæta á sportbarinn Ölver bæði 17. og 20. júní, fyrir landsleiki Íslands við Slóvakíu og Portúgal í undankeppni EM karla í fótbolta. Fótbolti 8. júní 2023 13:04
Moyes dansaði pabbadans eftir langþráðan titil Þegar menn vinna titil í 1.097 leik á ferlinum verða þeir að fagna almennilega og það gerði David Moyes þegar West Ham United vann Sambandsdeild Evrópu í gær. Fótbolti 8. júní 2023 12:00
Liverpool staðfestir komu Mac Allister Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool hefur staðfest komu argentínska knattspyrnumannsins Alexis Mac Allister til félagsins frá Brighton & Hove Albion. Fótbolti 8. júní 2023 11:00
„Eiginkona mín tók því alls ekki vel“ Dómarinn Ívar Orri Kristjánsson segist sjálfur ekki hafa tekið sérstaklega inn á sig reiðina sem beindist að honum eftir lætin í lok leiks Breiðabliks og Víkings í Bestu deildinni í fótbolta á föstudaginn. Eiginkona hans var þó ekki hrifin af ummælum Arnars Gunnlaugssonar, þjálfara Víkings, og þau fóru vissulega í taugarnar á Ívari sjálfum. Íslenski boltinn 8. júní 2023 10:27
United gæti reynt að kaupa hinn danska Haaland Manchester United er með nokkra varakosti ef félagið nær ekki að kaupa Harry Kane frá Tottenham í sumar. Enski boltinn 8. júní 2023 10:00
Rekinn þrátt fyrir að hafa gert PSG að meisturum Paris Saint-Germain hefur rekið knattspyrnustjórann Christophe Galtier þrátt fyrir að hann hafi gert liðið að frönskum meisturum. Fótbolti 8. júní 2023 09:31
Híaði á leikmann Stjörnunnar eftir að hún skoraði sjálfsmark Breiðablik og Stjarnan gerðu 1-1 jafntefli í stórleik 7. umferðar Bestu deildar kvenna í gær. Fagn leikmanns Blika eftir jöfnunarmark liðsins hefur vakið talsverða athygli. Íslenski boltinn 8. júní 2023 09:15
Steinþór kærður af KSÍ fyrir að veðja á leiki Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ hefur kært Steinþór Frey Þorsteinsson, leikmann KA í Bestu deild karla í fótbolta, fyrir brot á veðmálareglum. Íslenski boltinn 8. júní 2023 08:42
Arsenal ætlar að gera risatilboð í Rice Arsenal, silfurlið ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili, ætlar að gera risatilboð í Declan Rice, fyrirliða West Ham United. Enski boltinn 8. júní 2023 08:30
Fyrirliði Fiorentina fékk gat á hausinn eftir að glasi var kastað í hann Cristiano Biraghi, fyrirliði Fiorentina, fékk gat á hausinn eftir að stuðningsmenn West Ham United köstuðu glösum í hann á úrslitaleik Sambandsdeildar Evrópu í gær. Fótbolti 8. júní 2023 08:01
Hrósar Frey eftir kraftaverkið mikla: „Aðrir hefðu misst klefann“ Sævar Atli Magnússon, atvinnu- og landsliðsmaður í knattspyrnu, hrósar þjálfara sínum hjá Lyngby, Frey Alexanderssyni hástert eftir að liðinu tókst að framkvæma kraftaverkið mikla og halda sæti sínu í dönsku úrvalsdeildinni. Sævari líður afar vel hjá Lyngby en framganga hans með liðinu hefur vakið áhuga annarra liða. Fótbolti 8. júní 2023 07:01
Fyrrum dómari segir KSÍ gengisfella eigin herferð til stuðnings dómurum Fyrrum knattspyrnudómari segir að Knattspyrnusamband Íslands hafi gengisfellt eigin herferð til stuðnings dómurum hér á landi. Fótbolti 7. júní 2023 23:30
Gríðarleg fjölgun áhorfenda í efstu deildum kvenna Gríðarleg aukning varð á fjölda áhorfenda á leikjum kvenna í stærstu deildum Evrópu. Á Englandi fjölgaði áhorfendum um meira en 200%. Fótbolti 7. júní 2023 23:01
Napoli lækkar verðmiðann á Osimhen sem vill til Englands Nígeríumaðurinn Victor Osimhen er á óskalista margra stórliða en sjálfur hefur hann sagst vilja spila á Englandi. Napoli hefur nú lækkað verðmiða Nígeríumannsins. Enski boltinn 7. júní 2023 22:31
Hetja West Ham: Ég er svo hamingjusamur Jarrod Bowen var hetja West Ham í úrslitaleik Sambandsdeildarinnar í kvöld. Hann skoraði sigurmark liðsins í lok leiksins gegn Fiorentina og tryggði West Ham fyrsta stóra titil félagsins í 43 ár. Fótbolti 7. júní 2023 21:45
„Eins og við værum yfirspenntar“ Ásta Eir Árnadóttir, fyrirliði Breiðabliks, segir að jafntefli hafi líklega verið sanngjörn úrslit í leiknum gegn Stjörnunni í Bestu deild kvenna í kvöld. Stjörnukonur komust yfir á 60. mínútu en Blikar jöfnuðu tíu mínútum síðar. Íslenski boltinn 7. júní 2023 21:08
Bowen tryggði West Ham sigur með marki á lokamínútunni Enska liðið West Ham er sigurvegari Sambandsdeildar UEFA eftir 2-1 sigur á Fiorentina í Prag í kvöld. Jarrod Bowen skoraði sigurmark Hamranna á lokamínútu leiksins. Fótbolti 7. júní 2023 21:04
„Fékk þau fyrirmæli að setja boltann út í teiginn“ Andrea Mist Pálsdóttir, leikmaður Stjörnunnar, segist hafa óhlýðnast fyrirmælum þegar hún skoraði mark liðsins í jafnteflinu við Breiðablik, 1-1, í Bestu deild kvenna í kvöld. Andrea skoraði beint úr hornspyrnu á 60. mínútu og kom Garðbæingum yfir. Íslenski boltinn 7. júní 2023 20:58
Messi staðfestir skiptin til Inter Miami Lionel Messi hefur nú staðfest að hann sé orðinn leikmaður Inter Miami. Bandaríska liðið hefur sömuleiðis staðfest komu Messi á Twitter. Fótbolti 7. júní 2023 20:27
Umfjöllun og myndir: Breiðablik - Stjarnan 1-1 | Stórmeistarajafntefli í Kópavogi Breiðablik og Stjarnan skildu jöfn, 1-1, í stórleik 7. umferðar Bestu deildar kvenna í kvöld. Íslenski boltinn 7. júní 2023 20:15
Fyrirliði Fiorentina blóðugur eftir að glasi var kastað úr stúkunni Plastglasi var kastað í Cristiano Biraghi fyrirliða Fiorentina í úrslitaleik Sambandsdeildarinnar gegn West Ham sem nú er í gangi í Prag. Fótbolti 7. júní 2023 19:40
N´Golo Kante verður liðsfélagi Benzema og fær fimmtán milljarða í árslaun N´Golo Kante hefur samið við Al-Ittihad um að gerast leikmaður liðsins en samningur hans við Chelsea rennur út núna í sumar. Í Al-Ittihad hittir Kante fyrir Karim Benzema. Fótbolti 7. júní 2023 19:31
Þrjátíu handteknir eftir átök á milli stuðningsmanna Fiorentina og West Ham Lögreglan í Prag hefur handtekið yfir þrjátíu manns eftir að átök brutust út fyrir úrslitaleik Fiorentina og West Ham í Sambandsdeildinni. Fótbolti 7. júní 2023 17:48
Tuchel vill selja Mané og Sané Thomas Tuchel, knattspyrnustjóri Bayern München, ætlar að hrista verulega upp í leikmannahópi Þýskalandsmeistaranna í sumar. Fótbolti 7. júní 2023 16:01