Akureyri

Akureyri

Mannfjöldi: 20.050 (2025). Flatarmál: 136 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Akureyri, Hrísey, Grímsey.


Fréttamynd

Geti fundið Tækni­skólanum góðan stað á Akur­eyri

Berglind Ósk Guðmundsdóttir segir Akureyrarbæ til í að ræða það að nýr Tækniskóli verði byggður á Akureyri. Samkomulag Hafnarfjarðarbæjar og Tækniskólans um uppbyggingu í Hafnarfirði fór um þúfur og er óvissa um það hvar skólinn verður í framtíðinni.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Björgunarþyrla á Akur­eyri – staða máls

Á morgunverðarfundi Kristrúnar Frostadóttir forsætisætisráðherra í flugstöðinni á Akureyrarflugvelli 22. maí 2025 svaraði ráðherra með eftirfarandi hætti þegar spurt var að því hvort það stæði til að staðsetja eina af þyrlum Landhelgisgæslunnar á Akureyrarflugvelli: „Það stendur til að gera þetta. Ég styð þetta heilshugar.“

Skoðun
Fréttamynd

Fimm hundruð milljóna króna við­hald á dag­skrá

Ráðast þarf í mikið viðhald á Akureyrarkirkju og er áætlað að viðhaldskostnaður nemi fimm hundruð milljónum. Stefnt er að því að kirkjan verið komin í gott stand árið 2040 þegar hundrað ár verða frá vígslu hennar.

Innlent
Fréttamynd

Nicole er fyrir norðan

Síðustu daga og vikur hafa fjölmargar stórstjörnur lagt leið sína til landsins en meðal þeirra er ástralsk-bandaríska leikkonan Nicole Kidman. Hún er stödd í sólinni á Akureyri ef marka má Instagram-færslu í hringrás hennar.

Lífið
Fréttamynd

Tryllt stemning og töfrandi taktar á N1 mótinu á Akur­eyri

N1 mót stúlkna á Akureyri fór fram á Akureyri um síðastliðna helgi. Þetta er í annað skiptið sem mótið er haldið og mættu yfir sjö hundruð stúlkur til leiks með sínum liðum. Gleðin var við völd og tilþrifin mikil. Sýnt var frá mótinu í þættinum Sumarmótin á Sýn Sport í gær. Þáttinn má sjá í heild sinni hér.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Stelpurnar fái sam­bæri­lega upp­lifun og strákarnir

N1 mót stúlkna fer fram á Akureyri í annað sinn um helgina en sambærilegt mót fyrir stráka hefur farið fram síðustu fjörutíu ár. Framkvæmdastjóri KA segir mótið komið til að vera og vonast til að stúlkurnar skapi minningar fyrir lífstíð.

Innlent
Fréttamynd

Far­þegar elska lopa­peysur

Sölubás Rauða krossins við Ráðhústorgið á Akureyri þar sem gestir og gangandi versla sér prjónaföt er gríðarlega vinsæll meðal ferðamanna. Sjálfboðaliðar sjá um að prjóna fötin og þvo.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Al­var­legt að ógna fólki með því sem það heldur að sé vopn

Margrét Valdimarsdóttir, dósent í félags- og afbrotafræði, segir að þó svo að leikfangabyssa sé notuð til að ógna sé það alvarlegt því fólk geri ekki endilega greinarmun á henni og raunverulegri byssu. Margrét segir mikilvægt að lögregla hafi brugðist við slíku atviki á Akureyri um helgina. Hún segir áríðandi að stjórnmálamenn bregðist ekki við slíkum atvikum með að ala á ótta eða andúð í garð ákveðinna hópa í samfélaginu. 

Innlent
Fréttamynd

Elísa með met í fyrsta hlaupinu eftir mánuð í meiðslum

Þrjú brautarmet féllu í Súlum Vertical-fjallahlaupinu sem fór fram í kringum Akureyri um verslunarmannahelgina. Sigurjón Ernir Sturluson, Elísa Kristinsdóttir og Einar Árni Gíslason náðu öll að setja nýtt met. Sigurjón Ernir setti sitt met í Súlum en hin tvö í Fálkanum.

Sport
Fréttamynd

Vopnin reyndust vera „ná­kvæmar eftir­líkingar“

Fimmmenningarnir sem voru handteknir í gær í aðgerðum lögreglu og sérsveitarinnar á Akureyri reyndust ekki vera með alvöru skotvopn í fórum sínum heldur „nákvæma eftirlíkingu af skotvopni“ að sögn lögreglunnar á Norðurlandi eystra.

Innlent
Fréttamynd

Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei

„Við ákváðum strax að sagan hans Hjalta mætti ekki enda þarna. Það var of seint fyrir Hjalta, en vonandi ekki fyrir aðra. Við viljum byggja staðinn sem hefði getað hjálpað honum,“ segir Gerður Ósk Hjaltadóttir. Gerður er móðir Hjalta Snæs Árnasonar, sem tók sitt eigið líf í marsmánuði árið 2025, eftir erfiða baráttu við geðræn veikindi. Hann var einungis 22 ára gamall.

Lífið