Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Árni Gísli Magnússon skrifar 21. ágúst 2026 17:15 Frá leik Vals fyrr á tímabilinu Pawel/Vísir Valur vann dramatískan sigur á Þór/KA norður á Akureyri í 17. umferð Bestu deildar kvenna. Lillý Rut Hlynsdóttir skoraði eina mark leiksins undir lokin.Valur fer upp úr fallsæti á markatölu og styttir bilið í Þór/KA í níunda sætinu í aðeins tvö stig. Þór/KA byrjaði leikinn betur og virtust Valskonur vera ekki vera nægilega samstilltar en leikur þeirra einkenndist af því að vera lítið með boltann og þær náðu ekki að skapa sér mikið með hann. Erin Flurey var hársbreidd frá því að koma Þór/KA í forystu eftir tæplega hálftíma leik en hún hristi þá varnarmann af sér og átti skot í stöngina. Á sömu mínútu átti Hildur Anna Birgisdóttir hættulegan skalla sem fór rétt framhjá. Þór/KA hélt áfram að sækja og næst var Hulda Ósk Jónsdóttir á ferðinni. Hún átti fyrirgjöf frá hægri sem endaði ofan á þversláni. Stuttu fyrir hálfleik fékk Sonja Björg Sigurðardóttir besta færi hálfleiksins en hún vann þá skallaeinvígi í teignum en boltinn lak rétt framhjá fjærstönginni. Staðan markalaus í hálfleik Valskonur virtust hafa átt gott samtal í hálfleik og var allt annað að sjá liðið í upphafi síðari hálfleiks. Þór/KA hélt þó áfram sínu striki og Erin Flurey var aftur stutt frá því að skora á 54. mínútu en skot hennar fór yfir markið af stuttu færi eftir góðan undirbúning frá Hildi Önnu.Erin var svo í þriðja sinn í upplögðu marktækifæri á 73. mínútu en hitti ekki markið. Valskonur áttu erfitt með að skapa sér hættuleg færi en fengu hornspyrnu á síðustu mínútu venjulegs leiktíma eftir að Ísabella Sara Tryggvadóttir átti skot sem fór af tveimur varnarmönnum og rétt framhjá. Hún tók sjálf hornspyrnuna en datt í þann mund sem hún sparkaði í boltann sem endaði þó hjá Emmu Hawksins rétt við teiginn sem sendi boltann á Margréti Brynju Kristinsdóttir sem setti boltann inn á teig og þar lúrði Lillý Rut Hlynsdóttir og skallaði boltann aftur fyrir sig og í markið. Alessandra Augur í marki Þór/KA var í boltanum en það dugði ekki til. Þegar komið var fram á sjöttu mínútu uppbótartímann fékk Þór/KA hornspyrnu og eftir mikinn darraðadans í teignum fékk Arna Sif Ásgrímsdóttir boltann og lét vaða en rétt yfir markið fór hann og í þann mund kláraðist leikurinn við mikinn fögnuð Valskvenna. Atvik leiksins Eina mark leiksins sem Lillý Rut skorar í lok venjulegs leiktíma. Markalaust jafntefli virtist ætla verða niðurstaðan en Lillý sá til þess að Valur fékk stigin þrjú gegn uppeldisfélagi sínu. Stjörnur og skúrkar Lillý Rut skoraði sigurmarkið og átti góðan leik í vörninni með Helgu Rut Einarsdóttur.Ísabella Sara Tryggvadóttir kom inn af bekknum snemma í síðari hálfleik og lífgaði upp á sóknarleik Valsliðsins. Hjá Þór/KA var Arna Sif Ásgrímsdóttir sterk sem fyrr í vörninni og var lang mesta hætta liðsins í föstum leikatriðum og hefði hæglega getað skorað í dag.Hulda Ósk Jónsdóttir var mjög beinskeytt og erfið við að eiga en vantaði oft upp á ákvarðanatöku til að enda sóknirnar.Elizabeth Moore sinnti sinni vinnu á miðjunni mjög vel en það er mikil skítavinna þar sem er ósýnileg hinum almenna áhorfanda. Dómarinn Bergvin Fannar fannst mér ekki hafa alveg nógu góð tök á leiknum allan tímann og hefði ég viljað sjá fleiri gul spjöld fara á loft þegar augljós brot voru dæmd þegar ekkert nema ásetningur til að stöðva álitlega sókn áttu sér stað. Lillý Rut Hlynsdóttir skorar ekki á hverjum degi.Vísir/Vilhelm Það er spurning með markið hjá Val þar sem Ísabella Sara rennur þegar hún spyrnir boltanum með hægri fæti og fer mögulega beint í vinstri fótinn á henni og þaðan á samherja. Ef það er raunin er það svokallað tvíspark og óbein aukaspyrna dæmd fyrir Þór/KA ef mér skjátlast ekki. Stemning og umgjörð 200 manns mætti á VÍS völlinn í dag sem er fínasta mæting og gaman að sjá og umgjörð leiksins til fyrirmyndar í Þorpinu. Aðalsteinn Jóhann Friðriksson þjálfari Þór/KA.Guðmundur/Vísir „Þegar maður klárar ekki færin sín að þá fær maður það í bakið og það gerðist í dag“ Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, þjálfari Þór/KA, var sár og svekktur eftir tap á heimavelli gegn Val þar sem eina mark leiksins kom undir lok venjulegs leiktíma. „Það er mjög erfitt. Við erum mjög sár og við erum mjög svekkt yfir því að hafa ekki unnið þennan leik. Okkur fannst við ofan á í leiknum, okkur fannst við fá fleiri færi og fleiri tækifæri til að skora en stundum gerist það þegar maður klárar ekki færin sín að þá fær maður það í bakið og það gerðist í dag.“ Þór/KA var betri aðilinn í fyrri hálfleik og því hefði Aðalsteinn líklega viljað fara með forystu inn í hálfleik miðað við frammistöðuna. „Okkur fannst við eiga inni líka eftir fyrri hálfleikinn, okkur fannst við geta spilað betur, en að sama skapi þá leið okkur eins og við höfum verið það lið sem átti frekar að vera búið að skora í þessum leik þegar Valur skoraði markið og fyrir vikið förum við héðan með ekkert.“ Fannst þér leikmyndin breytast til hins verra í síðari hálfleik? „Nei, mér fannst við framan af sérstaklega fá allavega tvo dauða dauðafæri til að skora og komast yfir. Mér fannst, eins og ég sagði áðan, mér fannst við vera liðið sem áttum að skora á undan.“ Þór/KA er fellur niður í sjöunda sæti deildarinnar með tapinu og er nú aðeins tveimur stigum á undan Val í áttunda sæti og aðeins tveimur stigum frá fallsæti.Þróttur er þremur stigum á undan Þór/KA en liðin mætast einmitt í næstu umferð. „Næsta leik, það er á móti Þrótti á útivelli og við þurfum að gefa allt í það að vinna hann og það bara er svoleiðis þannig við þurfum svolítið að sleikja sárin og koma okkur saman og vera klárar í það verkefni. Það er ekki spurning.“ Besta deild kvenna Þór Akureyri KA Akureyri Íslenski boltinn