Fleiri fréttir

Íbúðafjárfesting dróst saman um helming milli ára

Íbúðafjárfesting dróst saman um helming milli áranna 2009 og 2008, það er milli fyrstu þriggja ársfjórðugna beggja ára. Þetta er mesti samdráttur á þessu sviði hérlendis frá því að byrjað var að reikna þróunina út á ársfjórðungsgrundvelli árið 1997.

Skuldatryggingaálag ríkisins á leið upp úr þakinu

Skuldatryggingaálag á íslenska ríkið hefur snarhækkað í morgun og eru 5 ára skuldatryggingar á ríkissjóð nú verðlagðar á 648 punkta samkvæmt CMA gagnaveitunni. Það jafngildir 95 punkta hækkun frá lokun í gær.

Nær 300 viðskiptahugmyndir keppa um Gulleggið

Búið er að loka fyrir skráningar í frumkvöðlakeppni Innovit, Gulleggið 2010. Nær 300 viðskiptahugmyndir voru sendar inn. Keppnin er samstarfsverkefni framsækinna fyrirtækja á Íslandi, Samtaka Iðnaðarins, Nýsköpunarsjóðs Atvinnulífsins, Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík, Háskólans á Bifröst og Keilis.

Vísitala byggingarkostnaðar hækkaði um 1,1% milli mánaða

Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð miðað við nýjan grunn um miðjan janúar 2010 er 101,1 stig sem er hækkun um 1,1% frá fyrri mánuði. Þar af hafði hækkun virðisaukaskatts úr 24,5% í 25,5% 0,6% áhrif á vísitöluna.

Svíar ásælast hlut í Skeljungi

Sænska fyrirtækið Atlantic Tank Storage, dótturfyrirtæki Scandinavian Tank Storage, er á meðal þeirra þriggja sem lagt hafa fram tilboð í 49 prósenta hlut Íslandsbanka í Skeljungi og tengd félög, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Aðrir sem boðið hafa í hlutinn eru núverandi meirihlutaeigendur, þau Guðmundur Örn Þórðarson, Birgir Þór Bieltvedt og Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir, auk Guðbjargar Matthíasdóttur, útgerðarkonu í Vestmannaeyjum.

Bakkabræður halda hlut sínum til 2012

Eignarhaldsfélag Ágústs og Lýðs Guðmundssona mun halda áfram utan um 39,6 prósenta hlut í Bakkavör a.m.k til ársins 2012 vegna sérstakra ákvæða sem bræðurnir settu inn í lánasamninga félagsins eftir bankahrunið. Hins vegar mun allur hagnaður af hlut bræðranna fara til Exista, kröfuhöfum þess félags til hagsbóta.

Kalli í Pelsinum grunaður um fjársvik og skuldar þrjá milljarða

Athafnamaðurinn Karl Steingrímsson, sem nú hefur stöðu sakbornings vegna gruns um fjársvik við sölu á fasteign til kínverska sendiráðsins, hefur um árabil verið meðal umsvifamestu manna í fasteignabransanum á Íslandi. Veldi hans fylgja skuldir upp á yfir þrjá milljarða.

Velta skuldabréfa nam 4,35 milljörðum í dag

Heildarvelta skuldabréfa í dag nam 4,35 milljörðum króna í dag. Þar af nam heildarvelta verðtryggðra íbúðabréfa 1,46 milljörðum og heildarvelta óverðtryggð rikisbréfa nam 2,89 milljörðum.

Notendur viðskiptavefsins Meniga 3.000 talsins

Notendur viðskiptavefsins Meniga hjá Íslandsbanka eru nú tæplega 3.000 og þeim fjölgar hratt. Allir viðskiptavinir Íslandsbanka geta fengið aðgang að Meniga í gegnum Netbanka Íslandsbanka.

SA: Fjárfestingar á Íslandi stefna í sögulegt lágmark

Mikill samdráttur í fjárfestingum atvinnuveganna á síðasta ári og takmörkuð áform um fjárfestingar á árinu 2010 valda því að ástæða er til þess að hafa áhyggjur af þróuninni í atvinnumálum. Óvissa um framtíðina, háir vextir, gjaldeyrishöft, skattahækkanir og minnkandi kaupgeta stuðla almennt að slæmu andrúmslofti fyrir fjárfestingar.

Fjórir lykilstjórnendur Byrs farnir frá sjóðnum

Fjórir lykilstjórnendur Byrs eru farnir frá sparisjóðnum. Þeir voru eigendur félagsins Húnahorns, sem átti stofnfjárbréfin í Byr sem Exeter keypti. Viðskiptin áttu sér stað skömmu eftir bankahrun en sérstakur saksóknari rannsakar þau.

Kraftvélar gjaldþrota, kúnnar flestir dauðir og tekjurnar farnar

Kraftvélar og tengd fyrirtæki hafa verið lýst gjaldþrota og var beiðni um gjaldþrotaskipti lögð fram nú klukkan ellefu. Fyrirtækið hefur um árabil, verið eitt öflugasta fyrirtækið í innflutningi og þjónustu við vinnuvélar og verktaka og verið með umboð fyrir Komatsu vinnuvélar.

Greining Arion banka dregur úr verðbólguspá sinni

Greining Arion banka gerir nú ráð fyrir 1% hækkun verðlags í janúar og hefur því lækkað spá sína en hún gerði upphaflega ráð fyrir 1,2% hækkun verðlags. Samkvæmt endurskoðaðri spá reiknar greiningin með að ársverðbólgan nemi 8% í janúar.

Töluverður verðbólguótti er meðal fjárfesta

Óverðtryggð bréf hækkuðu um 0,86% í síðustu viku og verðtryggð bréf hækkuðu um 0,68%. Verðtryggð bréf halda því áfram að hækka og ljóst að það er töluverður verðbólguótti á meðal fjárfesta. Óverðtryggðu bréfin komu líka aðeins til baka eftir töluverða lækkun í vikunni á undan.

Stærsta salan síðan í fyrra

Samningar náðust í fyrrinótt um sölu á helmingshlut CB Holdings, félags að mestu í eigu Straums, í breska úrvalsdeildarfélaginu West Ham til nafnanna David Sullivans og David Gold fyrir rúmar fimmtíu milljónir punda, jafnvirði 10,3 milljarða króna.

Tætingslegt veldi í molum

„Við höfum vitað af þessu í nokkurn tíma og höfum fengið þau skilaboð frá skilanefnd Landsbankans að yfirtakan muni ekki hafa nein áhrif á reksturinn,“ segir Jón Ingi Jónsson, framkvæmdastjóri einkaþotuleigunnar Icejet.

Selja tryggingar hvort annars

Tryggingamiðstöðin, TM, og Sparnaður gerðu í byrjun árs samkomulag um sölu á tryggingum hvort annars. Sparnaður er umboðsaðili Versicherungskammer Bayern. Fyrirtækið býður upp á lífeyristryggingar og fjármálalausnir til einstaklinga og mun veita einstaklingum og fyrirtækjum ráðgjöf um kaup á skaðatryggingum TM.

Keypti Lýsi af vinum sínum á 235 milljónir í miðju hruni

Guðbjörg Matthíasdóttir í Vestmannaeyjum keypti Lýsi hf. af vinum sínum þeim Gunnlaugi Sævari Gunnlaugssyni og Katrínu Pétursdóttur, framkvæmdastjóra Lýsis, á 235 milljónir króna í miðju bankahruninu. Guðbjörg fékk lán fyrir öllu kaupverðinu.

Ritstjóri FT: Bretar farnir að skammast sín

Bretar eru farnir að skammast sín fyrir að ríkisstjórn þeirra hafi neytt íslenska ríkið til að taka á sig of miklar skuldbindingar í Icesavemálinu. Þetta er mat eins af ritstjórum breska blaðsins The Financial Times.

OR kaupir Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar fyrir 150 milljónir

Samkomulag hefur tekist á milli Orkuveitu Reykjavíkur og fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkisins, um kaup Orkuveitunnar á 20% hlut ríkisins í Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar. Á næstu vikum verður rekstur hitaveitunnar sameinaður öðrum veiturekstri Orkuveitunnar. Kaupverðið nam 150 milljónum króna og auk eignarhlutar ríkisins fylgir með í kaupunum nýtingarréttur af Deildartunguhver til 55 ára.

Gífurlegt tap hjá Citigroup

Citigroup, einn stærsti banki Bandaríkjanna, skilaði gífurlegu tapi á fjórða ársfjórðungi síðasta árs. Tapið nam 7,6 milljörðum dollara eða rúmlega 940 milljörðum kr.

Gríðarleg lækkun á verði sérbýla

Í desember lækkaði verð á sérbýli um 5,8% frá fyrri mánuði en verð á íbúðum í fjölbýli um 1,3%. Frá því að íbúðaverð hér á landi náði hámarki í ársbyrjun 2008 hafa íbúðir í fjölbýli lækkað um 14% en verð á sérbýlum lækkað um 18,9%.

Ólík þróun í veltu atvinnugreina, mikill samdráttur í heild

Ólík þróun veltu í hinum ýmsu atvinnugreinum undanfarið er til marks um hversu misjöfn skilyrði íslenskra fyrirtækja eru um þessar mundir. Velta í ýmsum útflutningsgreinum hefur þannig aukist talsvert á meðan þær greinar sem mest eru undir hælnum á innlendri eftirspurn horfa fram að afar snarpan samdrátt í veltu.

Bankar íhuga lögsókn vegna sendiráðskaupa

Arion banki, Glitnir og Íslandsbanki íhuga að lögsækja fyrrum eigendur stórhýsis á Skúlagötu sem Kínverska sendiráðið festi nýlega kaup á. Bankarnir telja að þeir hafi orðið af um þrjú hundruð milljónum króna við söluna.

Vill Bakkavör í nauðasamninga

Stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verslunarmanna segir hagstæðast að Bakkavör fari í nauðasamninga til að bjarga verðmætum sjóðsins og sjóðsfélaga. Ekki hafi verið tekin afstaða til fyrirhugaðra nauðasamninga Existu. Stjórnarmaður í VR skorar hins vegar á stjórn sjóðsins að hafna nauðasamningum.

Vísitala íbúðaverðs lækkaði um 12% á einu ári

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 302,1 stig í desember 2009 og lækkar um 2,2% frá fyrra mánuði. Síðastliðna 3 mánuði lækkaði vísitalan um 3,8%, síðastliðna 6 mánuði hefur hún lækkað um 2,8% og lækkun síðastliðna 12 mánuði var 12%.

Reykjavík Geothermal semur við alþjóðlegan fjárfestingasjóð

Reykjavík Geothermal hefur samið við alþjóðlega fjárfestingasjóðinn Ambata Capital Partners um fjármögnun sjóðsins á jarðorkuverkefnum á vegum Reykjavík Geothermal. Tilkynnt var um samstarfið á ráðstefnunni World Future Energy Summit sem nú stendur yfir í Abu Dhabi.

Bakkavör fékk heimild til nauðasamings

Bakkavör Group hf. hefur verið veitt heimild til að leita nauðasamnings við kröfuhafa sína í samræmi við fyrri tilkynningu félagsins frá því í gærdag til kauphallarinnar.

Ritstjóri FT myndi segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni

Einn af ritstjórum breska viðskiptablaðsins Financial Times myndi segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave frumvarpið. Hann telur að samningurinn sem nú er við lýði muni verða til þess að íslenska ríkið lendir í greiðsluþroti.

Velta skuldabréfa nam 6,36 milljörðum króna

Heildarvelta skuldabréfa í dag nam 6,36 milljörðum króna. Þar af voru verðtryggð ríkisbréf upp á 3,28 milljarða króna og óverðtryggð ríkisbréf upp á 3,08 milljarða króna.

Hlutur Björgólfs Thors í Verne Holdings minnkar um helming

Skúli Helgason formaður iðnaðarnefndar Alþingis segir að hlutur fyrri hluthafa í Verne Holdings hafi minnkað um helming með tilkomu góðgerðarsjóðsins Wellcome Trust. Þar með hefur hlutur Björgólfs Thors Björgólfssonar væntanlega farið úr 40% og niður í 20%.

Fjármálagerningar Bakkavarar á athugunarlista

Kauphöllin vill ítreka athugunarlistamerkingu fjármálagerninga Bakkavarar Group hf. fyrir fjárfestum, vegna umtalsverðrar óvissu varðandi félagið og verðmyndun fjármálagerninga þess.

Sjá næstu 50 fréttir