Malcom Walker búinn að setja sig í samband við Arion-banka 20. janúar 2010 18:41
Breski kaupsýslumaðurinn Malcolm Walker, forstjóri Iceland verslanakeðjunnar í Bretlandi, hefur óskað eftir viðræðum við Arion banka vegna tilboðs hans og Baugsfeðga í tæplega 96% hlut bankans í Högum. Malcolm Walker er einn þeirra sem standa að tilboði Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, föður hans og annarra fjárfesta í eignarhlut Arion banka í Högum, en feðgarnir freista þess nú að eignast á ný 95,7% hlut í fyrirtækinu sem þeir misstu í nóvember síðastliðnum. Malcolm Walker, forstjóri Iceland-keðjunnar í Bretlandi hefur sett sig í samband við stjórnendur Arion banka og óskað eftir viðræðum um tilboðið. Þetta fékkst staðfest hjá Arion banka í dag. Þær upplýsingar fengust að stjórnendur bankans hefðu ekki sest niður með Walker enn og ekki væri ljóst hvort af fundinum yrði. Stjórn Arion banka fundaði m.a um málefni Haga í gær í rúmar fjórar klukkustundir án niðurstöðu. Samkvæmt heimildum fréttastofu eru skiptar skoðanir um í hvaða farveg málið eigi að fara, en einhverjir innan stjórnarinnar eru þeirrar skoðunar að hafna eigi tilboði Jóns Ásgeirs og félaga og setja hlutinn í söluferli. Aðrir eru þeirrar skoðunar að heppilegast sé að bíða, enda liggi ekki fyrir nægilega miklar upplýsingar um Haga til að taka vel upplýsta ákvörðun. Eitt af því sem stjórn bankans hefur skoðað er hvort það yrði Högum til tjóns ef tilboðinu yrði hafnað, en samkvæmt upplýsingum fréttastofu hefur það ekki komið til tals að feðgarnir stofni matvörukeðju í beinni samkeppni við verslanir Haga ef Arion banki hafnar tilboði þeirra. Samkvæmt upplýsingum innan úr stjórn Arion banka er þó þetta eitthvað sem stjórnendur bankans hafa haft bak við eyrað vegna tilboðsins.
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira