Hlutur Björgólfs Thors í Verne Holdings minnkar um helming 18. janúar 2010 14:43
Skúli Helgason formaður iðnaðarnefndar Alþingis segir að hlutur fyrri hluthafa í Verne Holdings hafi minnkað um helming með tilkomu góðgerðarsjóðsins Wellcome Trust. Þar með hefur hlutur Björgólfs Thors Björgólfssonar væntanlega farið úr 40% og niður í 20%.Skúli Helgason fjallar um málið í grein á vefsíðunni pressan.is. Þar segir að á fundi iðnaðarnefndar Alþingis í morgun upplýsti Vilhjálmur Þorsteinsson stjórnarformaður Verne Holdings (móðurfélags Verne Global) að Wellcome Trust, góðgerðarsjóðurinn breski verði ráðandi aðili í verkefninu og muni fjármagna það héðan í frá.„Hlutur fyrri hluthafa minnkar því verulega og má ætla að hann dragist saman um helming eða svo. Æskilegt væri að allar upplýsingar um samsetningu eigendahópsins lægju fyrir hið fyrsta en um þær ríkir trúnaður á þessu stigi máls.Wellcome Trust hefur tengsl við öfluga kaupendur gagnaversþjónustu m.a. í Bandaríkjunum og standa vonir til þess að með aðkomu sjóðsins opnist leið fyrir stóra viðskiptasamninga, því verkefnið stendur jú og fellur með því að samningar takist við þriðju aðila sem tilbúnir eru að kaupa þjónustu gagnaversins," segir í grein Skúla.Þar kemur einnig fram að iðnaðarnefnd sendir nú frumvarpið um fjárfestingarsamninginn til umsagnar og að því búnu mun nefndin taka málið til meðferðar. Ljóst er að samningurinn er mikilvæg forsenda þess að verkefnið geti orðið að veruleika, því hann tryggir ákveðinn fyrirsjáanleika varðandi almennt rekstrarumhverfi verkefnisins næstu 20 árin.Sú ívilnun sem felst í samningnum er hófleg, hefur verið áætluð 0,7% af heildarfjárfestingunni en hún er nauðsynleg til að skapa stöðugleika og traust á Íslandi sem vænlegum fjárfestingarkosti. í þessum geira.„Það er reyndar eitt helsta verkefni stjórnmálanna í dag, að endurvekja traust á Íslandi eftir bankahrunið og það væri mikill fengur fyrir íslenskt atvinnulíf að geta bætt við nýjum geira, sem er í senn vistvæn, tryggir fjölda vel menntaðs fólks störf í geira með mikla vaxtarmöguleika og skapar öflugt viðnám gegn atvinnuleysi á því svæði landsins þar sem atvinnuleysistölur eru hæstar," segir Skúli.
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira