Ólík þróun í veltu atvinnugreina, mikill samdráttur í heild 19. janúar 2010 12:37
Ólík þróun veltu í hinum ýmsu atvinnugreinum undanfarið er til marks um hversu misjöfn skilyrði íslenskra fyrirtækja eru um þessar mundir. Velta í ýmsum útflutningsgreinum hefur þannig aukist talsvert á meðan þær greinar sem mest eru undir hælnum á innlendri eftirspurn horfa fram að afar snarpan samdrátt í veltu.Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar er gluggað í tölur sem Hagstofan birti nú í morgun yfir veltu fyrirtækja samkvæmt VSK-skýrslum til og með október á síðasta ári. Úr þeim má lesa að á haustmánuðum, þ.e. september og október, var heildarvelta íslenskra fyrirtækja tæpir 460 milljarðar kr., sem samsvarar 4,5% samdrætti í krónum talið frá sömu mánuðum árið áður.Ef veltuþróunin er hins vegar leiðrétt með vísitölu neysluverðs kemur upp úr kafi að samdráttur í fyrirtækjaveltu á þessu tímabili var ríflega 13% að raunvirði. Séu fyrstu 10 mánuðir síðasta árs bornir saman við sama tíma árið 2008 reiknast okkur til að samdráttur veltu hafi verið tæplega 16% að raunvirði.Sjávarútvegur getur vel við unað þessa dagana, enda hefur verð sjávarafurða rétt talsvert úr kútnum frá fyrri hluta síðasta árs auk þess sem gengisfall krónu hefur lækkað innlendan kostnað í hlutfalli við markaðsverð erlendis í krónum talið. Þó ber að hafa í huga að langstærstur hluti kostnaðar í útgerð er tengdur gengi krónu beint eða óbeint.Velta í fiskveiðum var ríflega 21% meiri að nafnvirði í september og október í fyrra en á sama tíma árið 2008, og að raunvirði jókst veltan um 10% á milli ára. Þá jókst velta í matvæla- og drykkjarvöruiðnaði, sem að verulegu leyti skrifast á landvinnslu sjávarafla, um 10% á milli ára að nafnvirði en stóð í stað að raungildi.Veltusamdráttur var hins vegar í framleiðslu málma á tímabilinu hvort sem litið er til krónutölu eða raunvirðis, enda varð mikið verðfall á áli á seinni hluta síðasta árs. Athygli vekur að velta í greinum á borð við textíliðnað og pappírsiðnað jókst verulega á milli ára, þótt þar sé um lágar upphæðir að ræða í samanburði við útflutningsatvinnuvegina stóru.Ekki ætti að koma á óvart að velta í byggingastarfsemi og mannvirkjagerð skrapp mikið saman á milli ára. Á ofangreindu tímabili veltu þessar greinar 40% færri krónum en á sama tíma árið áður, og að raunvirði nam samdráttur veltu í þeim á fyrstu 10 mánuðum ársins meira en 46% frá sama tíma árið áður.Bílasala átti einnig undir högg að sækja og velti 31% færri krónum á haustmánuðum í fyrra en á sama tíma árið 2008. Var þó bílasala farin að skreppa talsvert saman það ár frá góðærinu 2007. Umboðs- og heildverslun hélt hins vegar þokkalega sjó á tímabilinu, á meðan smásöluverslun skrapp saman um 7%.Fjörkippurinn sem hljóp í ferðaþjónustu síðastliðið sumar virðist einnig hafa verið að mestu yfirstaðinn í fyrrahaust, þar sem velta hjá hótelum og veitingastöðum minnkaði um 8% að raunvirði í september og október frá sama tíma árið 2008.
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira