Svíar ásælast hlut í Skeljungi 21. janúar 2010 08:40
Sænska fyrirtækið Atlantic Tank Storage, dótturfyrirtæki Scandinavian Tank Storage, er á meðal þeirra þriggja sem lagt hafa fram tilboð í 49 prósenta hlut Íslandsbanka í Skeljungi og tengd félög, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Aðrir sem boðið hafa í hlutinn eru núverandi meirihlutaeigendur, þau Guðmundur Örn Þórðarson, Birgir Þór Bieltvedt og Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir, auk Guðbjargar Matthíasdóttur, útgerðarkonu í Vestmannaeyjum. Tilboð í félagið voru opnuð 21. desember og stefnt á að bindandi tilboð berist í næsta mánuði. Íslandsbanki segir það almenna reglu að gefa ekkert uppi um þá sem bjóða í fyrirtæki í eigu bankans. "Við teljum að það geti fælt fjárfesta frá ferlinu og höfum því ákveðið að gera það ekki. Að sjálfsögðu munum við greina frá því hver eignast þau," segir Halla Sigrún Hjartardóttir, forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar Íslandsbanka. Eftir því sem næst verður komist hefur Atlantic Tank Storage öðru fremur áhuga á olíustöðinni í Hvalfirði og nýtingu á birgðarými í Reykjavík en ekki áhuga á smásölurekstri Skeljungs. Félagið, sem er með olíustöðina í Hvalfirði á leigu, er talið leita eftir því að tryggja sér aðgengi að henni áfram en markmiðið er að leigja fyrirtækjum aðstöðu hér til að geyma olíu um nokkurra mánaða skeið. Móðurfélag Atlantic Tank Storage rekur birgðageymslur víða á Norðurlöndunum og á meginlandi Evrópu. Þá er ekki loku fyrir það skotið að uppstokkun verði á eignarhaldi og rekstri Skeljungs í kjölfar sölu Íslandsbanka á félaginu en svo kann að fara að birgðarýmin verði skilin frá rekstrinum verði tilboði Svíanna tekið. Núverandi eigendur, sem eiga forkaupsrétt að Skeljungi, eru búsettir í Danmörku og er óvíst um fjárhagslega burði þeirra í dag. Birgir rak um tíma pitsustaði Dominos auk þess að eiga fjórðungshlut í Magasin du Nord og í fasteignafélaginu Sjælsø Gruppen ásamt Straumi.
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira