Skuldatryggingaálag ríkisins á leið upp úr þakinu 21. janúar 2010 11:53
Skuldatryggingaálag á íslenska ríkið hefur snarhækkað í morgun og eru 5 ára skuldatryggingar á ríkissjóð nú verðlagðar á 648 punkta samkvæmt CMA gagnaveitunni. Það jafngildir 95 punkta hækkun frá lokun í gær. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að í samtali við Reuters skýrir Mats Olausson, greinandi hjá SEB bankanum sænska, hækkunina með aukinni óvissu vegna Icesave og því að fjárhagsvandræði Grikklands, sem mikið er horft til á mörkuðum þessa dagana, hafi almennt hækkað skuldatryggingaálag þeirra ríkja sem búi við slæmar horfur í ríkisfjármálum. Skuldatryggingaálag á Grikkland hafði í gær hækkað um 24% frá áramótum og stóð í 350 punktum. Á sama tíma hafði skuldatryggingaálag á Ísland hækkað um 35%, en þá er undanskilin hækkunin í morgun sem bætir rúmum 20 prósentum við þá hækkun. Álagið á Ísland er nú á svipuðum slóðum og það var um miðjan júlí í fyrra, en álagið lækkaði hratt að áliðnu sumri samhliða minnkandi áhættufælni á alþjóðamörkuðum og framvindu Icesave-málsins á Alþingi. Má segja að þróunin frá áramótum sé spegilmynd þróunarinnar síðsumars í fyrra, þar sem aukin óvissa tengd Íslandi og vaxandi áhættufælni á mörkuðum almennt hafa lagst á eitt um að þrýsta skuldatryggingaálaginu á landið hratt upp, að því er segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Voni að allir fái starfið aftur Viðskipti innlent Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Viðskipti innlent Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Sjá meira