Fleiri fréttir

Síminn prófar langdrægt 3G farsímakerfi

Síminn hefur fengið úthlutað tilraunaleyfi frá Póst og fjarskiptastofnun fyrir langdrægt 3G farsímakerfi. Helstu kostir kerfisins umfram hefðbundin GSM kerfi eru sagðir þeir að drægni nýja kerfisins er 50 prósentum meiri auk þess sem mögulegur gagnahraði er þúsundfaldur á við það sem býðst í langdrægum GSM kerfum. Síminn vinnur þessa dagana að uppsetningu á búnaðinum á Suðurlandi og áætlar að hefja tilraunir í þessari viku.

Gullverðið fór yfir 900 dollara á únsuna

Verð á gulli sló enn eitt metið í morgun er það fór yfir 90 dollara á únsuna. Á markaðinum í London var verðið komið í tæpa 907 dollara nú undir hádegið.

Spá 8% gengislækkun krónunnar á árinu

Í nýrri gengis- og stýrivaxtaspá greiningar Glitnis segir að gengi krónunnar muni lækka um 8% yfir árið og að gengisvísitalan muni standa nærri 130 stigum við lok ársins.

Dæmigerður mánudagur á markaðnum

Gengi fjármálafyrirtækja lækkaði almennt við upphaf viðskiptadagsins í Kauphöll Íslands í dag á meðan Alfesca hækkaði. Gengi bréfa í SPRON hefur lækkað mest, eða um 3,15 prósent. Á eftir fylgja Kaupþing, Exista, Glitnir og Straumur sem hafa lækkað á bilinu rúmlega tvö til eitt prósent. Gengi Landsbankans hefur lækkað minnst fjármálafyrirtækjanna, eða um tæpt prósent.

OMX í útrás til Indlands

Norræna kauphöllin OMX, sem Íslendingar eru hluti af er komin í útrás til Indlands. Um helgina var gengið frá samkomulagi þess efnis að OMX setti upp kauphallarkerfi í borginni Mumbai þar sem fjármálamiðstöð Indlands er til staðar.

Störf í hættu vegna endurskipulagningar EMI

Allt að 2000 störf hjá EMI útgáfurisanum gætu verið í hættu eftir mikla endurskipulagningu á fyrirtækinu í kjölfar nýrra eigenda. Þúsundir listamanna gætu átt hættu á að fara frá fyrirtækinu.

Saga Capital telur brot á reglum ekki skipta máli

Í máli fjárfestingarbankans Saga Capital gegn Dögg Pálsdóttur sem Vísir sagði frá í vikunni er ágreiningur um hvort Dögg og fyrirtæki hennar Insolidum hafi vitað hver ætti stofnfjárbréf í Spron sem fest voru kaup á.

Gullverð komið í methæðir

Verð á gulli fór í rétt rúma 900 dali á únsu til skamms tíma á hlutabréfamarkaði í Bandaríkjunum í gær. Þetta er hæsta verð sem nokkru sinni hefur sést á eðalmálminum sem hefur hækkað mjög í verði upp á síðkastið, hraðar en reiknað hefur verið með. Óróleiki á fjármálamörkuðum hefur valdið því að fjárfestar hafa leitað í hefðbundnar, sem margir hverjir kalla gamaldags, en gulltryggðar fjárfestingar á borð við olíu, steinsteypu og gull.

Baugur og Formúlan

Baugur kveðst ekki hafa keypt þriðjungshlut í liði Williams í Formúlu 1 kappakstrinum líkt og látið er að liggja á vef International Herald Tribune í gær. Orðrómurinn um aðkomu Baugs hefur hins vegar verið lífseigur

Range Rover og pelsar rjúka út

Góðborgarar vestanhafs ríghalda nú um veskin, en mikið dró úr sölu á lúxus varningi í jólamánuðinum, eftir stöðuga aukningu misserin á undan. Íslendingar láta þó ekki smávægilegar efnahagskrísur hræða sig frá stórinnkaupum.

Atvinnuleysi í algjöru lágmarki

Atvinnuleysi í desember síðastliðinn var 0,8% eða að meðaltali 1.357 manns, sem eru 36 fleiri en í nóvember síðastliðinn eða 2,6% aukning. Atvinnuleysi er um 28% minna en á sama tíma fyrir ári þegar það var 1,2%, eftir því sem fram kemur á vef Vinnumálastofnunar.

SPRON hækkar mest annan daginn í röð

Gengi SPRON hækkaði um tæp 3,4 prósent í lok viðskiptadagsins í Kauphöllinni í dag. Þetta er annar dagurinn í röð sem gengið hækkar en í gær fór það upp um rúm fjögur prósent. Sparisjóðurinn hefur hins vegar ekki átt góðu gengi að fagna síðan hann var skráður á markað í október en það hefur lækkað um 9,5 prósent frá áramótum.

Bank of America kaupir Countrywide

Bank of America greindi frá því í dag að samningar hafi náðst um að hann kaupi fjármálafyrirtækið Countrywide, stærsta fasteignalánafyrirtæki landsins, fyrir fjóra milljarða dala, jafnvirði 251 milljarð íslenskra króna. Kaupin eru sögð nauðlending Countrywide sem geti forðað því frá gjaldþroti.

Mikill áhugi fjárfesta á kaupum í Nyhedsavisen

Lars Lindström starfandi forstjóri útgáfu Nyhedsavisen segir að mikill áhugi sé meðal fjárfesta á kaupum í Nyhedsavisen. Danskir fjölmiðlar hafa undanfarna daga fjallað mikið um málið í viðskiptafréttum sínum.

Greining Glitnis spáir stýrivaxtalækkun í maí

Greining Glitnis telur að Seðlabankinn muni stíga fyrsta vaxtalækkunarskrefið á árinu á vaxtaákvörðunardegi bankans 22. maí næstkomandi með 0,25 prósentustiga lækkun niður í 13,5%.

Tölvur á 25 þúsund krónur seldust upp á 20 mínútum

Tölvuframleiðandinn Asus hefur sett á markaðinn fyrstu örtölvu sína, Eee pc., og er eftirspurnin gríðarleg. Tölvan kostar aðeins 25 þúsund krónur og fyrstu 200 eintökin seldust upp á 20 mínútum í einni versluninni.

Rífandi gangur á SPRON

Gengi hlutabréfa í SPRON hefur hækkað um 5,5 prósent frá því viðskipti hófust í Kauphöllinni í dag og leiðir það gengishækkun á öllum íslenskum bönkum og fjármálafyrirtækjum sem þar eru skráð. Þetta er annar dagurinn í röð sem gengið tekur kipp en það hefur hækkað um tæp tíu prósent á tveimur dögum.

Frekari afskriftum spáð hjá Merrill Lynch

Bandaríski fjárfestingabankinn Merrill Lynch gæti neyðst til að afskrifta hátt í 15 milljarða bandaríkjadala, jafnvirði rúmra 940 milljarða íslenskra króna, vegna tapa á fasteignalánum fyrirtækisins, samkvæmt heimildum bandaríska dagblaðsins New York Times. Gangi það eftir eru afskriftirnar talsvert meiri en áður hafði verið reiknað með.

Seðlabankar grípa til aðgerða

Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, segir merki um samdrátt í þarlendu efnahagslífi og boðaði aðgerðir til að sporna gegn því að einkaneysla dragist saman samhliða verðbólguþrýstingi. Kaupþing reiknar með stýrivaxtalækkun hér á landi fyrr en áætlað var.

Stærstu viðskipti í sögu VBS

VBS fjárfestingarbanki hf. hefur haft milligöngu um kaup á öllum eignarhlutum Blikastaða ehf. og Íslenskra aðalverktaka hf. í landi Blikastaða í Mosfellsbæ. Þetta eru stærstu viðskipti í 10 ára sögu VBS, en kaupverð landsins er trúnaðarmál.

Hlutabréf hækkuðu á Wall Street

Hlutabréf í Kauphöllinni á Wall Street hækkuðu lítillega í dag eftir að fréttir bárust af því að Bank of America hyggðist koma Countrywide, stærsta fasteignalánafyrirtæki Bandaríkjanna, til bjargar. Dow Jones hækkaði um 0,92%, Standard & Poor's hækkaði um 0,79% og Nasdaq hækkaði um 0,56%.

Bank of America til bjargar Countrywide

Viðræður eru langt komnar um kaup Bank of America, eins af stærstu bönkum Bandaríkjanna, á Countrywide, stærsta fasteignalánafyrirtæki landsins. Countrywide hefur beðið afhroð í lausafjárkrísunni sem skekið hefur fjármálaheiminn upp á síðkastið og gengi þess fallið um heil 89 prósent.

Fyrsta hækkun ársins í Kauphöllinni

Gengi hlutabréfa í FL Group rauk yfir tíu prósent þegar mest lét í mikilli uppsveiflu í fyrstu viðskiptum dagsins áður en það gaf eftir fyrir SPRON. Úrvalslvísitalan endaði í plús í fyrsta sinn á árinu í dag.

Milestone fjárfestir í makedónskum víniðnaði

Milestone, fjárfestingarfélag Karls Wernerssonar, hefur kynnt plön um að fjárfesta í Makedóníu, meðan annars í þarlendum víniðnaði, fyrir sex milljónir evra, að sögn makedónska vefmiðilsins Makfax.

Dræm jólasala í Bandaríkjunum

Bandarískar stórverslanir komu heldur verr út úr nýliðnum jólamánuði en vonir stóðu til og eru margir stjórnenda þeirra svartsýnir um framhaldið. Talsverðu munar hins vegar á milli verslana.

Óbreyttir stýrivextir hjá Evrópska seðlabankanum

Evrópski seðlabankinn ákvað í dag að halda stýrivöxtum sínum óbreyttum en þeir eru nú fjögur prósent. Það er samræmi við spá greiningaraðila en um helmingur þeirra telur að þeir verði óbreyttir út árið.

Forstjóra Bang & Olufsen sparkað

Stjórn danska raftækjaframleiðandans Bang & Olufsen rak forstjóra fyrirtækisins í dag. Fyrirtækið birti í gær slakt uppgjör sem olli því að fjárfestar losuðu sig við bréf í félaginu með þeim afleiðingum að markaðsvirðið féll um rúm 25 prósent.

Óbreyttir stýrivextir í Bretlandi

Englandsbanki, seðlabanki Bretlands, ákvað í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum í 5,5 prósentum. Mjög hefur verið þrýst á bankastjórnina að koma til móts við ótta manna um samdrátt í efnahagslífnu og lausafjárskort með lækkun vaxta þrátt fyrir verðbólguþrýsting í hagkerfinu.

Hráolíuverð lækkar þrátt fyrir samdrátt

Heimsmarkaðsverð á hráoloíu lækkaði um tæpan dal á helstu fjármálamörkuðum í dag í kjölfar þess að olíubirgðir í Bandaríkjunum jukust á milli vikna. Þótt eldsneytisbirgðir hafi aukist í landinu hefur heldur dregið úr hráolíubirgðum, sem hafa ekki verið minni í þrjú ár, samkvæmt upplýsingum bandaríska orkumálaráðuneytisins.

Erfiðleikar Gnúps hækka skuldatryggingaálag ríkisins

Skuldatryggingaálag á skuldbindingar íslenska ríkisins til fimm ára hækkaði mikið í gær og stendur nú í 126,7 punktum. Hæst fór álagið upp í 130 punkta í gær úr 75 punktum daginn áður. Til samanburðar má geta þess að álagið var innan við 20 punkta í október síðastliðnum og á bilinu 5-15 punktar í sumar.

Blair í hlutastarf hjá JP Morgan

Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, hefur verið ráðinn til bandaríska bankans JP Morgan sem ráðgjafi í hlutastarfi.

Allt á uppleið í Kauphöllinni

Gengi Bakkavarar og Færeyjabanka hefur hækkað um rúmlega sex prósent eftir að viðskipti hófust í Kauphöll Íslands í dag. Þetta er mesta hækkun dagsins en á eftir fylgja bréf í SPRON, Existu og FL Group sem öll hafa hækkað um rúm fjögur prósent.

Söluaukning hjá Sainsbury's

Sala jókst um 3,7 prósent hjá stórmarkaðnum Sainsbury's, þriðja stærstu verslanakeðju Bretlands á síðasta fjórðungi síðasta árs. Þetta er nokkuð í takti við spár markaðsaðila.

Gróði í álinu

Bandaríski álrisinn Alcoa, sem meðal annars rekur álverið á Reyðarfirði, hagnaðist um 632 milljónum bandaríkjadala, jafnvirði rúmra 40 milljarða íslenskra króna, á síðasta fjórðungi nýliðins árs. Þetta er 76 prósenta aukning á milli ára. Tekjur fyrirtækisins hafa aldrei verið meiri á einu ári þrátt fyrir lægra álverð undir lok árs.

Fresta tillögum um breytingar fram yfir hlutahafafund

Novator í Finnlandi, félag í eigu Björólfs Thors Björgólfssonar, hefur ákveðið að fresta tillögum sínum um skipulagsbreytingar á finnska símafélaginu Elisa þar til eftir hluthafafund 21. janúar.

Rússar kaupa stærsta gullnámusvæðið í Armeníu

Verð á gulli hefur aldrei verið hærra í sögunni og það veldur því að fjölmargir leita nú að áhugaverðum gullnámusvæðum í heiminum. Rússar hafa fest kaup á stærsta gullnámusvæði í Armeníu stjórnvöldum þar til töluverðar hrellingar

Gnúpur semur við lánardrottna

Skuldir Gnúps hafa minnkað, eignir verið seldar og starfsemi verður dregin saman. Pálmi Haraldsson í Fons kaupir hlut Gnúps í FL Group á 10 milljarða.

Íslenska fjármálakerfið stendur á traustum grunni

"Við blasir að bankar og sparisjóðir standa traustum fótum og að íslenska fjármálakerfið standi að sama skapi á traustum grunni, enda ekkert bent til annars en þess," segir Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra á vefsíðu sinni í dag. Björgvin hitti Jón Sigurðsson nýskipaðan formann Fjármálaeftirlitsins í dag.

Sjá næstu 50 fréttir