Banki vill fyrirtæki varaþingmanns vegna 320 milljóna króna skuldar Breki Logason skrifar 9. janúar 2008 18:49 Dögg Pálsdóttir
Saga Capital fjárfestingarbanki fór fram á það í dag að fá fyrirtækið Insolidum ehf, sem er í eigu Daggar Pálsdóttur varaþingmanns og hæstaréttarlögmanns og sonar hennar Páls Ágústs Ólafssonar, til umráða. Fyrirtækið vill bankinn fá vegna rúmlega 320 milljóna króna skuldar Insolidum vegna kaupa á stofnfjárbréfum í Spron sem bankinn sá um að fjármagna. Það var þétt setið í dómssal 102 klukkan 13:15 í dag þar sem helstu fjölmiðlar landsins voru mættir til þess að fylgjast með málinu. Um er að ræða fyrsta málið í langan tíma þar sem svokölluðu veðkalli er ekki svarað og farið er dómstólaleiðina. Insolidum er í eigu Daggar og sonar hennar og eru eignir félagsins einungis metnar í hlutabréfum. Saga Capital lánaði fyrir kaupum á stofnfjárbréfum í Spron en Insolidum keypti 0,5% í Spron áður en Sparisjóðurinn var settur á markað þann 23.október. Fram kom í dag að skuldin nemur rúmum 320 milljónum króna en Insolidum keypti stofnfjárbréfin í Spron á 582 milljónir króna. Insolidum hefur nú þegar afhent bréf sín til Saga Capital en bankinn vill fá fyrirtækið í heild sinni þar sem eignir Insolidum nái ekki upp í skuld félagsins við bankann. Dögg og sonur hennar lögðu fram veð í fyrirtæki sínu og er það ástæða þess að Saga Capital gerir svokallað innsetningarkröfu í fyrirtækið. Eins og margir vita féllu hlutabréf í Spron mikið eftir að félagið var sett á markað en upphafsgengi í félaginu var 18,9. Í dag er t.a.m gengi félagsins rúmlega 7. Á fyrstu tveimur mánuðunum í Kauphöllinn féll fyrirtækið um 50%. Staðan á hlutabréfamarkaðnum undanfarið hefur gert það að verkum að svokölluð veðköll hafa verið tíð. Það kom m.a. fram í fjölmiðlum að í nóvember hefðu verið yfir 600 veðköll í landinu. Þegar Saga Capital gerir veðkall vegna skuldar Insolidum neitar fyrirtækið að svara veðkallinu og vildi heldur ekki selja bréfin. Insolidum vildi heldur ekki greiða ákveðna viðbótartryggingu eins og um var samið. Veðkallið hljóðaðið upp á um 320 milljónir sem var í samræmi við verðfall á bréfunum í Spron. Svar Daggar tveimur klukkustundum eftir að bankinn sendir út veðkallið var á þá leið að hún sæi ekki ástæðu til þess að "panica". Þau litu á fjárfestinguna til langstíma og að staðan á markaðnum væri ekki eitthvað sem vert væri að gera veður útaf. Tveimur dögum síðar er annað hljóð komið í strokkinn og talar Dögg þá um að hún sé ekki hrædd við að taka málið til umfjöllunar. Dögg riftir þá samningum þeim sem gerðir höfðu verið vegna málsins en þá hafði Dögg kannað málið og setur spurningamerki við söluna á bréfunum í upphafi. Þar telur hún m.a að um ólögleg innherjaviðskipti hafi verið að ræða og að hún og sonur hennar hafi verið blekkt með kaupunum. Málið er langt frá því að vera einfalt og tókust lögfræðingar hart á í dómsalnum í dag. Meðal annars er ágreiningur um það hvort Insolidum hafi haft frumkvæði að kaupum á bréfunum eða hvort Saga Capital hafi boðið þeim bréfin til kaupa að sínu frumkvæði. Vitnað var í tölvupóst frá Páli Ágústi til starfsmanns lánasviðs bankans þar sem hann sagði félagið hafa hug á að bæta við sig hlutum í Spron áður en fyrirtækið færi á markað. Skömmu síðar hefur Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson forstjóri bankans samband við Pál Ágúst og bíður honum til kaupa hlutinn, sem þau svo keyptu. Þarna vilja Dögg og sonur hennar meina að svokallaðir kínamúrar hafi verið brotnir en það kveður m.a á um að sölu- og lánasvið megi ekki hafa samráð sín á milli. Þetta kallaði lögfræðingur Saga Capital góða þjónustu í dómssalnum í dag. Því mótmælti lögfræðingur Insolidum. Sá þáttur er snýr að innhverjasvikum spilaði einnig stórt hlutverk í dag. Lögfræðingur Saga Capital kallaði þann hluta málsins samsæriskenningu sem stæðist ekki. Því mótmælti lögfræðingur Insolidum og rakti þann þátt málsins. Dögg og sonur hennar vilja meina að stjórnarmaður í Spron hafi búið yfir upplýsingum sem almenningur hafi ekki haft á sinni könnu. Í máli lögfræðings Insolidum kom fram að einn aðaleigandi Sundagarða hf, Gunnar Þór Gíslason, situr í stjórn Spron. Þann 17.júlí er svokölluð samrunaáætlun undirrituð á stjórnarfundi Spron. Þar lá fyrir mat á markaðsvirði félagsins sem unnið var af Capacent. Verðmatið hljóðaði upp á 59,4 milljarða. Sundagarðar hf er einn af aðaleigendum Saga Capital en hlutur þeirra er í kringum 11%. Þremur dögum eftir þennan fund stjórnar Spron hringir forstjóri Saga Capital í Pál Ágúst og bíður honum til sölu umrædd bréf í Spron. Insolidum kaupir síðan 0,5% hlut á 560 milljónir sem þýðir að Spron var metið á yfir 100 milljarða. Deilan snýst því aðallega um hver það var sem átti bréfin sem Insolidum keypti. Saga Capital segist hafa selt bréfin úr eigin safni en Insolidum telur augljóst að bréfin hafi verið í eigu Gunnars Þórs Gíslasonar stjórnarmanns Spron og eins af eigendum Saga Capital. Í máli lögfræðings Insolidum í dag kom fram að ef bornir eru saman listar frá 17.júlí, þegar verðmatið lá fyrir á stjórnarfundinum sem Gunnar sat, og síðan 24.júlí þegar búið var að selja þeim bréfin. Kemur í ljós að Gunnar var búinn að selja tæp 2% af stofnfjárbréfum sínum. Fór hann úr 5% niður í 3%. Saga Capital hafi aldrei á þessum tíma verið tilkynntur eigandi bréfanna. Í dag var einnig rætt um kaupnótu sem gerð var vegna kaupanna og er dagsett þann 27.júlí. Þar kom ekkert fram um hver eigandi bréfanna var og viðurkenndi lögfræðingur Saga Capital að um mistök hefði verið að ræða. Það skipti hinsvegar ekki máli þar sem ljóst sé hver eigandi bréfanna var, Saga Capital. Lögfræðingur Insolidum segir hinsvegar að slegið hafi verið upp þagnarmúr af hálfu Spron, Sundagarða og Saga Capital um hver eigandi bréfanna var. Það eina sem sýni fram á að það hafi verið Gunnar Þór Gíslason séu stofnfjárskrárnar frá 17.júlí og 24.júlí þar sem hann sé sá eini sem selt hafi svo stóran hluta. Saga Capital segist ekki geta upplýst um hvar bankinn keypti bréfin en Insolidum segir það skipta höfuðmáli. Í dag fór einungis fram aðalmeðferð í málinu og var það lagt í dóm. Dómari sagði niðurstöðu að vænta á næstunni. Lögfræðingur Insolidum impraði á því í lok máls síns að ef dómari samþykkti að Saga Capital fái fyrirtæki Daggar og sonar hennar verði ekki hægt að áfrýja málinu til Hæstaréttar. Því þá verði skipt um stjórn í félaginu og hin nýja stjórn hafi lítinn áhuga á að rannsaka meint ólögleg viðskipti við sjálft sig.
Tengdar fréttir Varaþingmanni stefnt af Saga Capital Fjárfestingarbankinn Saga Capital hefur stefnt varaþingmanninum og hæstaréttarlögmanninum Dögg Pálsdóttur. 8. janúar 2008 16:32 Stjórnarmaður í SPRON þvertekur fyrir ólögleg innherjaviðskipti Gunnar Þór Gíslason, stjórnarmaður í SPRON, segir að Sundagarðar ehf. hafi selt Saga Capital bréf sín í SPRON. „Ég veit hins vegar ekkert hvað varð um þau bréf eftir það," segir Gunnar. 9. janúar 2008 20:05 Mest lesið Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Viðskipti innlent Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Viðskipti innlent Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Viðskipti innlent Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Viðskipti innlent Þegar þreyttir starfsmenn mæta til vinnu eftir frí Atvinnulíf Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Viðskipti innlent Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Viðskipti innlent Ofát í fjarvinnu Atvinnulíf Á ég að greiða inn á lánið eða spara? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Festi hagnast umfram væntingar Þota Play komin úr viðgerð eftir skemmdir vegna hagléls Evrópa verði upp á Kína komin verði af tollunum Sigurður viðskiptastjóri innviðalausna hjá Ofar Hagnaður minnkar um 38 prósent og arðgreiðsla óákveðin Funda með ráðherra vegna tollanna: „Ég ætla ekki að setjast í neitt dómarasæti“ Á ég að greiða inn á lánið eða spara? Loksins, mathöllin og fleiri staðir fá nýja rekstraraðila „Við erum að bæta við atvinnustoð í samfélaginu“ Kristján og Leó kaupa Landsbankahúsið á tæpa þrjá milljarða Sjómönnum sagt upp: Skipulagsbreytingar vegna veiðigjalda Vaxtalækkun í ágúst sé nánast útilokuð Opnuðu loks Hygge eftir 245 daga bið Verðbólgan hjaðnar á ný Gáfust upp á Facebook og opna verslun fyrir notaðar íþróttavörur Endurskipuleggja reksturinn „í vinsemd og virðingu“ Tekjur jukust um helming milli ára Sjá meira
Varaþingmanni stefnt af Saga Capital Fjárfestingarbankinn Saga Capital hefur stefnt varaþingmanninum og hæstaréttarlögmanninum Dögg Pálsdóttur. 8. janúar 2008 16:32
Stjórnarmaður í SPRON þvertekur fyrir ólögleg innherjaviðskipti Gunnar Þór Gíslason, stjórnarmaður í SPRON, segir að Sundagarðar ehf. hafi selt Saga Capital bréf sín í SPRON. „Ég veit hins vegar ekkert hvað varð um þau bréf eftir það," segir Gunnar. 9. janúar 2008 20:05